Vikan


Vikan - 13.04.1972, Blaðsíða 4

Vikan - 13.04.1972, Blaðsíða 4
MINNI HLAUP BETRI KAUP Já vissulega, þú þarft ekki annaö en aö líta inn í vefnaðarvörudeildina í Kjörgarði og velja fallegt efni úr okkar stórglæsilega úrvali. Allir litir, mörg mynstur. GEFIÐ GAUM AÐ HEIMA SAUM P0STURINN Atkvæöisréttur í veiöifélagi Kæri Póstur! Ég hef áður skrifað þér og feng- ið gott svar við spurningu. Nú langar mig að spyria um rétt til atkvæðagreiðslu í veiðifélagi. — Hér var stofnað veiðifélag í sumar sem nær yfir mestallt vatnasvæði sveitarinnar. Nokkr- ar jarðir sem hlut eiga í vatna- svæðinu eru nú í eigu manna sem ekki eru búsettir hér og hafa sumir jarðaeigendur gefið öðrum umboð til að fara með atkvæðisrétt sinn. Ég get ekki skilið að bóndi sem á jörð og greiðir atkvæði fyrir sig geti einnig farið með umboð fyrir annan jarðareiganda og þannig haft möguleika á að greiða tvisvar eða oftar atkvæði um sömu tillögu eða sama mál og þannig margfaldað atkvæðisrétt sinn ef hánn hefur nógu mörg umboð, en bóndi sem á fleiri en eina jörð hefur ekki nema eitt atkvæði eins og rétt er, því þá ekki að láta það vera svo að einn maður greiði aðeins eitt atkvæði. Formaður veiðifé- lagsins heldur því fram að jarð- areigandi sem greiðir atkvæði fyrir sig megi einnig greiða at- kvæði fyrir aðra ef hann hefur umboð til þess. Þetta finnst mér ótrúlegt og stórt gat í lögin ef satt er. Hvað er rétt í þessu? Vertu sæl, Vika mín, þökk fyrir allan fróð- leik. Sigmundur Jónsson. Formaður veiðifélagsins hefur rétt fyrir sér, jarðareigendur, sem ekki eru búsettir á félagssvæð- inu og geta sjálfir ekki mætt til atkvæðagreiðslu, geta veitt öðr- um umboð til að greiða atkvæði fyrir sig, og er engri loku fyrir það skotið að sá, sem umboðið fær, eigi sjálfur jörð á svæðinu og hafi þar með atkvæðisrétt fyrir sjálfan sig. Þó má umboðið ekki vera eldra en þriggja mán- aða. Cannabis skaðlaust? Frómi Póstur- Tilefni þessa bréfs er niðurstöð- ur rannsóknarnefndar Banda- ríkjastjórnar um cannabis, þ. e. marijuana og hashish. I þeim kemur fram, eins og kunnugt er orðið, að ekkert bendi til þess að neyzla cannabis leiði til neyzlu sterkari efna, eins og til dæmis heróíns og LSD. Leggur nefndin til, að felldar verði nið- ur refsingar gagnvart þeim er neyta cannabis í heirrrahúsum. Þegar mér bárust niðurstöður skýrslu nefndarinnar til eyrna, varð mér að orði: „Ja, þar skeit íslenzka þjóðin í bólið sitt." — Undanfarið hefuyr allt verið yf- irfullt af alls konar gagnslausum fundum um hin svokölluðu „eit- urlyfjavandamál", og rétt í þann mund að íslendingar hafa lært að segja marijuana og hashis skammlaust, vitna færustu vís- indamenn að cannabis sé algjör- lega skaðlaust. (Hitt vita svo a11- ir, að óhófsneyzla á hverju sem er, meira að segja mjólk, getur skert heilsu). Tillaga mín er því sú, að við látum af þessum andskotans molbúahætti og leyfum neyzlu cannabis hér á landi, svo maður geti einhvern tíma fengið al- mennilegt hass, ekki þennan „skít" sem nú er ! umferð. (Written while stoned) Steinn. Vi8 höfum heyrt af skýrslunni sem þú skrifar um, en ekki haft tækifæri til að kynna okkur efni hennar nákvæmlega. Það er út af fyrir sig gott að heyra að menn sem hafa vit á hlutunum hafi þetta mál til rannsóknar; það ætti að vera vel til þess fallið að ryðja frá móðursýkis- ofboði því og grillum, sem aII- mjög hefur borið á í .hugmynd- um manna og hjali um cannabis, síðan það komst í tízku á Vest- urlöndum. En ertu nú alveg viss um að þú hafir lesið það rétt að þetta sé alveg skaðlaust? Það eru óneitanlega nýjar fréttir. Þótt það sé fáránleg heimska að flokka hass með sterkum og stórhættulegum eiturlyfjum eins og heróíni, eins og oft er þó gert, þá hefur nú hingað til verið talið að beztu manna yfir- sýn að það væri manneskjunni enginn heilsubætir, frekar en til dæmis tóbak og áfengi, þetta löghelgaða eitur sem eyðileggur líf og heilsu milljóna manna ár- lega. Segja má að í því felist 4 VIKAN 15. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.