Vikan - 13.04.1972, Qupperneq 6
SÍÐAN SÍÐAST
Bandarískir unglingar í D. B. Cooper-boium, sem renna út eins og heitar lummur.
„D.B. Cooper“ er á góSri
leið með að verða
að einskonar þjóðhetju á
vesturströnd Banda-
ríkjanna. En hver
er hann? Svarið fæst í
eftirfarandi grein.
D. B. Cooper, where did you go?
We're looking for you high and low.
With your pleasant smile
And your dropout style,
D. B. Cooper, where are you now?
Þessar línur eru úr laginu D. B.
Cooper, where are you?, sem banda-
ríski söngvarinn Tom Bresh samdi og
söng inn á plötu um áramótin. D. B.
Cooper er ágizkað nafn manns sem 24.
nóvember á fyrra ári stökk út úr flug-
vél yfir Washington-fylki í Banda-
ríkjunum með 200.000 dollara (17.6
millj. ísl. kr.) í tösku. Peningana hafði
hann fengið frá flugfélaginu North-
west Airlines fyrir að sprengja ekki
vélina í loft upp.-
Þetta furðulega ævintýri hófst með
því að vél af gerðinni' Boeing 727 var
á leiðinni frá Washington D. C. til
Seattle í Washington-fylki, og var
millilent á nokkrum stöðum, þar á
meðal Portland í Oregon. Þar kom um
borð maður nokkur, ,sem samkvæmt
farþegalistanum heitir D. B. Cooper.
Hann var klæddur í venjuleg, grá
jakkaföt og var með dökk gleraugu.
Maður þessi, sem á engan hátt skar
sig frá öðrum farþegum, fékk sér sæti
aftast í vélinni og ekkert gerðist þar
til hann kallaði til sín eina flugfreyj-
una og fékk henni miða. Hún reiknaði
Flugfreyjunni þótti þetta allt spennandi en
flugstjórinn var grimmur.
með að hann ætlaði að bjóða henni út
þegar komið væri til Seattle, en þegar
hún stakk miðanum í veskið sitt, gerði
hann henni skiljanlegt með höfuð-
hreyfingu að hún ætti að lesa hann
strax. Á miðanum setti hann fram þær
kröfur, að þegar komið væri til
Seattle-Tacome International Airport,
yrðu honum fengnir 200.000 dollarar
og fjórar fallhlífar. Andlitið datt af
flugfreyjunni, en hún reyndi að láta
á engu bera og fór fram í flugstjórn-
arklefann. Um leið og hún lagði af
stað, sneri hún sér við og „D. B.
Cooper“ benti henni að koma aftur.
Þegar hún kom að sæti hans opnaði
hann þunna skjalatösku og sýndi
henni sprengju. „Ef fyrirmælum mín-
um verður ekki fylgt,“ sagði hann,
„þá sprengi ég vélina í loft upp.“
Flugfreyjan kyngdi nokkrum sinn-
um og fór síðan fram og tilkynnti flug-
stjóranum um þennan kröfuharða
farþega. Haft var samband við for-
stjóra flugfélagsins, Donald W. Nyrop,
sem fyrirskipaði að gengið skyldi að
öllum kröfum ræningjans. Þegar lent
var á flugvellinum í Seattle, voru pen-
ingarnir og fallhlífarnar til reiðu og
eftir að hvorttveggja var komið um
borð, leyfði „Cooper“ farþegunum og
tveimur flugfreyjanna að fara frá
borði. Eftir í vélinni voru flugmenn-
irnir og ein flugfreyja, sem halda átti
sem gísl.
Flugvélarræninginn fyrirskipaði síð-
an að flogið yrði með sig til Mexico,
en eftir að tekizt hafði að sannfæra
hann um að slíkt væri ógjörlegt án
millilendingar til eldsneytistöku, féllst
hann á að lent yrði í Reno. En enginn
vafi leikur á að „D. B. Cooper“ vissi
nákvæmlega hvað hann var að gera.
Hann fyrirskipaði að flogið yrði undir
10.000 fetum og ekki hraðar en 200
m|ílur á klukkustund, sem er nær
hættulega lítill hraði. Einnig fyrirskip-
aði hgnn að dyrum aftast í vélinni
yrði ekki læst, en Boeing 727 er eina
stóra farþegaþotan sem notuð er að
einhverju marki í Bandaríkjunum og
hefur hurð fyrir neðan stélið er leyf-
ir sæmilega öruggt fallhlífarstökk. —
Síðan lokaði hann flugfreyjuna inni í
klefanum hjá flugmönnunum og eftir
það hefur enginn séð „D. B. Cooper".
Fimm flugvélar eltu þotuna frá Seattle,
en enginn sá Cooper stökkva; um það
bil 50 km norður af Portland varð
hins vegar vart við minnkun loftþrýst-
ings í farþegarými vélarinnar, þannig
að áætlað er að þar hafi hann stokk-
ið. Hundruð manna, með hunda og
önnur hjálpargögn, hafa síðan leitað
mannsins, en hann er ófundinn enn og
sömuleiðis 200.000 dollararnir sem hann
var með með sér.
Aðeins 72 klukkustundum eftir að
þetta átti sér stað, komu á markaðinn
í Portland bolir með ýmsum áletrun-
um, til dæmis: „D. B. Cooper, hvar
ertu?“ Ræninginn er orðinn að eins
konar þjóðhetju á vesturströnd Banda-
ríkjanna. Óteljandi unglingar — svo
og fullorðnir — klæðast þessum bol-
um og platan sem minnzt var á í upp-
hafi, hefur selzt geysivel. „D. B. Coop-
er“ er sams konar hetja og Bonnie &
Clyde. Og fjöldi fólks hefur lýst því
yfir vestur þar, að það voni heitt og
innilega að ræninginn finnist ekki —
hvað þá að hann sé dauður — því að
það beri mikla virðingu fyrir manni
með „slíkt hugrekki". Frh. á bls. 50.