Vikan


Vikan - 13.04.1972, Qupperneq 14

Vikan - 13.04.1972, Qupperneq 14
Engum, sem sá liinar svartklæddu, dökkeygðu systur í glæsileguni húsa- kynnum Charles Blanchette,, liefði getað dottið i hug að aðalumræðu- efni þeirra á daginn væri að leggja á ráðin um morð. Varla var búið að koma fyrra fórnardýrinu í gröfina fyrr en þær systurnar, Barbara og Bettina, komu sér saman um að nauðsynlegt væri að ryðja eiginmanni Bettinu úr vegi lika. Leonard Day var ekki eingöngu hættulegur öryggi þeirra, þar sem hann var eiginlega meðsekur um morðið á Charles Blanchette, eiginmanni Barböru, hann hafði líka farið á bak við konu sína og nauðgað mágkonu sinni. Hann var drykkfelldur og yfirgangssamur maður og var nú búinn að fá tang- arhald á tvíburasystrunum. Þær áttu nægilegt arsenik eftir til að kála honum, en þær þorðu ekki að reyna sömu aðferðina. Þær ræddu um hvort ekki væri liægt að myrða hann með þvi að hleypa raf- magni í baðvatnið, þegar hann væri i baði, en hvorug þeirra var nægi- lega vel að sér í rafmagnsfræði, til að þora að eiga við það. Þeim datt jafnvel í hug að stinga hann til bana og útbúa svo sýndarinnbrot, þegar Leonard væri einn heima, en Jiau- guggnuðu líka á því. Næstu kvöld Iæsti Barbara djr- unum að svefnherbergi sínu, svo Leonard kæmist ekki inn og Jiegar hann hamaðist á hurðinni, lét hún sem hún svæfi. En nokkrum dögum síðar komst hann inn til hennar meðan Bettine var í baði. — Það þýðir ekkert fyrir Jiig að vera lengur í fýlu, Babs, sagði hann. — Hér er það ég sem ræð. Ég veit að þú mvrtir manninn þinn. Það er þvi bezt fyrir Jiig að gera eins og ég segi. í kvöld læsir þú ekki dyrum þinum. Skilurðu það? Barböru var Ijóst að hún gæti al- drei haldið Leonard lengi frá sér. í þeirri viku sagði liann upp starfi sínu og hélt sig heima allan daginn. — Ég er ekki svo heimskur að vera að þræla fyrir sextán pundum á viku, þegar ég á mágkonu, sem veltir sér í peningum! Það er ágætt fyrir ykkur, stúlkur minar, að láta mig sofa og livila mig á daginn, Jiví meiri gleði hafið Jiið af mér á nótt- unni. Þennan dag skrifaði Leonard undir sinn dauðadóm, rétt eins og Charles Blanchette liafði gert á und- an honum. Nú var þeim orðin Jiað nauðsvn að losna við hann. Tæki- færið kom af hreinni hendingu eitt kvöldið í Belfast. Hann var mjög drukkinn, Jiegar hann kom heim. Hann staulaðist upp stigann og kom upp á stigapallinn, rétt í Jivi að Barbara kom út úr baðherberginu, nakin undir sloppnum. Hann réðist á hana og reif liana úr sloppnum, en Barbara gat sparkað í magann á honum, svo hann valt niður stigann. Hann reyndi að standa upp, en Jiá gat hún sparkað aftur í hann, svo hann valt alla leið niður og hún öskraði: —- Ég hata þig! Ég hata þig! Svstir hennar kom hlaupandi frá svefnherberginu og sá mann sinn velta niður stigann. Bettina tók um úlnlið hans og þreifaði eftir slagæð- inni, sem sló ennjiá. Hún leit á syst- ur sína . . . Nokkru síðar Jireifaði Barbara á slagæðinni á Leonard Day og sagði svo systur sinni að maður hennar væri látinn. Þær flýttu sér ekki neitl. Barbara sótti spegil og bar hann að vitum lians. Þar sem engin móða kom á speg- ilinn, sáu þær að hann var stein- dauður. Þær flýttu sér samt ekki neitt til að hringja á sjúkrabil, en þurrkuðu vandlega öll fingraför. Svo lningdu Jiær á sjúkrabílinn.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.