Vikan - 13.04.1972, Page 18
SITT
LÍTIÐ
AF
HVERJU
Þegar George Harrison stakk
upp á því við Dylan að hann
syngi „Blowin* in the wind“ á
Bangla Desh-hljómleikunum,
sagði Dylan: „Ef þú syngur „I
Wanna Hold Your Hand“ . . .
Náttúru og Svanfríði fer stöð-
ugt fram og hyggur Náttúra á
plötu ekki síðar en í júlí/ág-
úst. Ámundi ætlar að gefa
hana út á nafni hljómsveitar-
innar . . . Þeir sem vilja ger-
ast áskrifendur að ROLLING
STONE, sem er stórkostlegt
blað, skrifi: Rolling Stone
Magazine/28 Newman Street/
London, W 1 P3A, England ...
Helgi P. er með svo háa rödd
að hann getur ekki eignazt
börn . . . Ég kann það ekki.
Býður einhver sig fram? . . .
Platan með Jerry Garcia úr
Grateful Dead er stórgóð . . .
Colin Blumstone, sem einu
sinni söng með the Zombies,
er kominn á kreik aftur og bú-
inn að taka upp LP . . . Rod
Stewart hefur nýlega lokið við
að taka upp sína fjórðu LP.. .
Harvest er skratti góð plata og
Jiefur verið líkt við John Wes-
ley Harding Dylans . . . Krist-
inn P. hefur afsalað sér titlin-
um „Hassan 1“ . . . Mitch
Ryder, sem einu sinni var
toppurinn í Detroit Wheels, er
byrjaður aftur með hljómsveit
sem heitir bara Detroit, þræl-
gott rock ‘n‘ roll . . . Mjög efni-
legt tríó, Þrenning, kom ný-
lega fram á þjóðlaga- og vísna-
kvöldi hjá Vikivaka . . . Allt^f
hefur mér láðs að minnast á
gott vísnakvöld í Norræna
húsinu sl. haust, þar sem Árni
Johnsen kom fram ásamt nor-
rænum vísnasöngvurum. Nú
er ég búinn að minnast á það.
Það var mjög gott vísnakvöld
. . . Joe Cocker er byrjaður
aftur, húrra fyrir því . . . Ný
plata með Hollies er væntan-
leg, Mikki Rickfors er sagður
góður söngvari . . . Beach Boys
hafa bætt við tveimur mönn-
um, bassaleikaranum Blondie
Chaplin og trommaranum
Ricky Fataar, sem báðir voru
Þessi maður er sextugur og heitir
Thomas Parker. Venjulega er
hann kallaður Colonel Parker og
er umboðsmaSur Presleys.
í suður-afríkönsku hljómsveit-
inni The Flame, þá er Beach
Boys „uppgötvuðu“. Dennis
Wilson meiddi sig i hendinni
og getur ekki spilað á tromm-
ur meir, en heldur sig nú við
pianó. Næsta plata frá BB ber
heitið „Carl and the Passions
— So Tough“ . . . George
Harrison og Patti húsmóðir
hans meiddust nýlega í bíl-
slysi. Harrison fékk að fara
strax heim, en Patti fékk heila-
hristing og varð eftir á spítal-
anum í London . . . Donovan
hefur undanfarið verið að
halda hljómleika á írlandi . . .
Paul McCartney hefur verið
skammaður fyrir plötuna sem
alls staðar var bönnuð. írar
skrifa skammarbréf og skora á
hann að koma með Wings til
írlands og halda hljómleika ...
Wings komu reyndar fram í
febrúar og hafa gert töluvert af
því síðan, láta vita af komu
sinni með 2 til 3 klst. fyrirvara
. . .Hefur þeim verið tekið vel
. . . Mary Hopkin hefur sagt
upp samningi sínum við Apple
... John, Ringo & George gerðu
Paul tilboð í hluta hans í Apple
og ætti hann því að geta hætt
að vera Bítill. Því miður hafa
ekki borizt fregnir um viðbrögð
Pauls, en hann og Lennon hitt-
ust ekki alls fyrir löngu og
slógust að minnsta kosti ekki
. . . Leonard Cohen sagði ný-
lega í viðtali við MM að plöt-
urnar sínar væru „ömurlegar“.
Það bezta sem hann hefði gert
fengi enginn að heyra því að
það væri „spontant" . . . Keith
Emerson er að vinna að sóló-
plötu og sólóplata með Peter
Frampton er komin út og hef-
ur fengið góða dóma. Með hon-
um við upptöku voru m. a.
Ringo Starr, Billy Preston og
Jim Price . . . Eruð þið búin
að fá ykkur „Concert for
Bangla Desh? . . . Elton John
kom nýlega fram með sinfón-
iuhljómsveit og var konsertinn
tekinn upp fyrir sjónvarp. í
miðjum klíðum kom lögga upp
á svið og rak alla út, þar sem
einhver brandarakarl tilkynnti
um sprengju í húsinu . . . MC5
„Papa" John Creach, fiðlarinn í Jefferson Airplane. Hann hefur spilaS
með þeim í plötu, einnig Hot Tuna og nú síðast kom út sólóplata með
honum.
18 VIKAN 15. TBL.