Vikan


Vikan - 13.04.1972, Page 20

Vikan - 13.04.1972, Page 20
Áður en nóttin var komin, var það þegar komið greinilega i Ijós, að vinur minn lmfði regnzl getspakur. Umferðardeild lögreglunnar á staðnum slaðfesti tilveru þessarar ferfættu plágu, en lögreglumennirnir komu til okkar á vélhjól- um, meðcui við sátum að lcvöldverði . . . Fyrir neðan var lauslega krotaður bréafuki, sem þó var lengri en bréfið sjálft: „Corinne er við ágæta heilsu og sendir þér beztu kveðjur. Hún komst vel yfir fæðingu sonar okkar og er nú fegurri en nokkru sinni. Strákurinn er in- dæll — þú verður áreiðanlega skotinn í honum. Við létum hann heita í höfuðið á þér. Ég gæti verið hamingjusamasti maður í heimi, en ég er samt kvalinn af ótta, sem er því hræðilegri, því fráleitari sem hann er. Komdu fljótt — upp á gamlan kunningsskap okkar.“ Við iþessari bón var ekki hægt að daufheyrast. Ég leit á póststimpilinn. Bréfið hafði verið sett í póst fyrir hálfum mánuði. Ég var ekki nema fimm mín- útur að taka saman hinar fyrir- ferðarlitlu föggur mínar og greiða reikninginn. Þegar yfir ána kom, var ég svo heppinn að ná í lest, sem var rétt að leggja af stað frá stöðinni í Toledo. Ég varð að bíða tvær klukkustundir í Madrid, en hraðinn á Meginlandshraðlest- inni bætti mér fullkomlega upp þá töf. Ég komst til Parísar og þar upp í lestina í sambandi við sundferjuna. Þrjátíu klukkustundum eftir að mér barst bréfið, gekk ég niður landganginn á sundferj- unni — og mætti þá hlýju hand- taki mannsins sem hafði kall- að mig til Englands. — Ég fékk skeytið þitt frá París, sagði hann, rétt eins og til að gera grein fyrir óvæntri komu sinni þarna að landgang- inum. — Ég gat ekki lýst því, hve feginn ég varð, þegar ég vissi von á þér. Ég fór að segja honum frá öllum flækingnum á bréfinu áður en það náði til mín, en hann greip fram í fyrir mér, og það óþarflega snöggt, að því er mér fannst. — Komdu! Hann greip í tösk- una mína og lét sem hann sæi ekki lestina en stefndi á hliðið, út að veginum. — Ég er hérna með bíl. Við getum talað sam- an á leiðinni. Húsið mitt er í næsta héraði, fáar mílur hand- an við Sussexmörkin. Við kom- umst þangað fljótar á bíl en með iestinni. Fínheitin á bílnum, sem beið okkar, gáfu til kynna, að hvaða vandræðum, sem Alan kynni að eina í, þá voru þau áreiðanlega ekki í neinu sambandi við efna- hag hans. Ég sagði eitthvað í þá átt, þegar bíllinn rann af stað, en það var rétt eins og hann heyrði það ekki. — O, já. Það hefur gengið sæmilega hjá mér. En ég hef verið of áhyggjufullur upp á síðkastið til að geta hafzt nokk- uð almennilegt að. Veizt þú — nú máttu ekki halda, að ég sé orðinn brjálaður — en þú manst eftir stóra úlfinum gráa, sem við sáum rétt hjá Skrattaleg- steininum, þarna kvöldið góða? — Já, sagði ég með snöggum áhuga. — Og hvað um það? — Heldurðu ekki, að skepnu- skrattinn hafi elt mig hingað! Ég píndi upp úr mér ein- hverjum hlátri, en hefði ekki vinur minn verið jafn önnum kafinn við aksturinn, hefðu til- finningar mínar sennilega kom- ið í ljós. — O, seisei, sagði ég glettnis- lega. — Er þetta ekki full reyf- arakennt, kall minn? Það er nú býsna langt stökk frá Bretagne til Sucsex, og svo er smá þrösk- uldur í veginum, sem kallaður er Ermasund. — Mér er sama um allar vegalengdir og þröskulda. Ég mundi þekkja skepnuna hvar sem væri og ég er viss um, að sama skepnan hefur verið að leita á húsið vikum saman — eða nánar til tekið síðan dreng- urinn fæddist. Drengurinn! Þarna kom enn einn sennilegur tengiliður við sögu gamla fógetans. — Það er drengur? sagði ég, nánast til þess að segja eitthvað. — Auðvitað er það drengur, sagði hann önugur. — Sagði ég þér ekki í bréfinu, að við létum hann heita í höfuðið á þér? — Og þá heldur, að úlfurinn ætli að gera litla snáðanum mein? — Hvað annað? svaraði hann snöggt. — Skepnan hefur hvað eftir annað reynt að brjótast inn í barnaherbergið, en sem betur fór sást hún og var rekin á flótta, áður en hún gæti gert neitt illt af sér. En það ein- kennilega er, að hún reynir al- drei að ráðast á fullorðið fólk. Og það ætti að gera okkur hæg- ara fyrir. — Okkur? bergmálaði ég. — Já. Þú verður að hjálpa mér til að rekja slóð dýrsins í gren þess og senda kúlu gegn um hjartað í því. Mér mun ekki finnast Corinne og barninu vera óhætt, fyrr en ég sé það steindautt. Ég mátti taka á allri minni karlmennsku til þess að reka ekki upp hæðnishlátur. Ég tautaði eitthvert svar — ham- ingjan má vita, hvað það var — og það sem eftir var leiðar- innar sat ég þögull, eða tautaði einhver þýðingarlaus einsat- kvæðisorð. Gremjulegar hugs- anir nægðu mér til að fylia huga minn. Enn einu sinni hafði ég flækzt í aðsteðjandi hættu — en litla hugmynd hafði mað- urinn, sem hjá mér sat um eðli hlutverks þess, sem hann hafði leitað aðstoðar minnar við. Við vorum fljótt komnir á enda þessa fimmtíu mílna leið eftir ströndinni, en þá beygðum við inn í landið, skammt frá staðnum þar sem orrustan við Hastings var talin hafa verið háð. Tuttugu mínútum síðar beygði bíllinn inn að hliði að stíg með trjám til beggja handa, og nú sá ég húsið í fyrsta sinn. „Einbúi“ var það nefnt og nafnið virtist eiga vel við. Gamla hrörlega húsið stóð uppi á brekku, með skógarengi um- hverfis, og enda þótt það væri býsna óvarið gegn stormunum, sem stundum koma utan af sjónum, var útsýnið þaðan ágætt. Til suðurs var langa strandlengjan, en svo tóku við kalkklettar, auðir og yfirgefnir mætti greina þakið á bænda- að mestu, enda þótt á stöku stað býli. Einbúi hafði upprunalega verið byggt sem bændabýli í stærra lagi —• enda þótt það hefði sennilega verið á dögum Elísabetar gömlu. Húsið var glæsilegt sýnishorn af bygging- arlist þess tíma með kvistum úr timbri, skrítnum hornum og eikarbjálkum í stofunum. Löngu hlykkjóttu gangarnir voru með tröppum, sem lágu ýmist upp eða niður, svo að stundum gat verið erfitt að átta sig á því, á hvaða hæð maður væri staddur, nema þá með því að líta út um glugga. í stuttu máli sagt var húsið eins og sniðið fyrir æturrölt gamal- dags húsdraugs. Ég var einmitt í þann veginn að gera einhverja gamansama athugasemd í þ áátt, þegar ég steig út úr bílnum. En þá kom ég auga á hörkulegan svipinn á Alan og hætti við það. Á þess- ari stundu virtist hann ekki vera í neinu skapi til að taka gamni, hvorki um dularfull efni né annað. ÚLFKONAN FRÁ JOSSELIN '' &íÁiA , Á . ' ‘ (W t ' .ú. í- ■■‘"Æ<á '; /'L-' - -t\ p. J STUTT FRAMHALDSSAGA - ÞRIÐJI HLUTI 20 VIKAN 15.TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.