Vikan


Vikan - 13.04.1972, Page 37

Vikan - 13.04.1972, Page 37
Hún var mjög fegin því að bílstjórinn talaði ekki við hana. Þau óku gegnum mannlausar götur. Það var farið að skyggja. Það hefði átt að vera bjart enn- þá, en mistrið var mikið og loftið þungt. Bílstjórinn hemlaði fyrir ut- an húsið sem hún bjó í. Þar var nægilegt pláss'. Rouen virt- ist yfirgefin borg. Daniéle borg- aði, tók ferðatöskuna og gekk að útidyrunum. Bilstjórinn ók hægt i burtu. Daniéle drap á dyr hjá hús- verðinum. Hann var undrandi. þegar hann sá hver þetta var, en Daniéle hirti ekki um að gefa honum skýringu. — Eru nokkur bréf til min? spurði hún. Hann leitaði í hólf- inu og tautaði eitthvað fyrir munni sér. Daniéle beið og hjarta hennar sló hratt. — Nei, sagði maðurinn að lokum, — það eru engin bréf til yðar. Daniéle muldraði einhver þakkarorð, tók töskuna og gekk að stiganum. Húsvörðurinn stóð kyrr og horfði á eftir henni. Daniéle kom upp á stigapall- inn, opnaði dyrnar að íbúð sinni og gekk inn. Enginn beið henn- ar. Enginn myndi nokkru sinni framar bíða hennar. Hún læsti svo dyrunum að veröld hinna lifandi . . . Kirkjuklukkurnar í Rouen kölluðu hina trúuðu borgara til tíða. Therése var nýkomin heim úr ferðalaginu. Hún var að enda við að lesa bréfið frá Daniéle. „ ... til að hitta Gérard. Það er mín síðasta von . . .“ — Við verðum að hjálpa henni, sagði hún við föður sinn. — En þú lofaðir lögfræðingn- um ... Móðir Therése kom inn í stof- una. — Geta þau ekki komið hingað, bæði tvö, sagði hún. — Þau gætu borðað hér í kvöld! Rétt í ,þvi hringdi siminn. Það var Gérard. — Þú verður að koma hing- að og borða i kvöld, sagði Ther- ése í ákveðnum róm. Faðir hennar yppti öxlum. — Þú verður örugglega glaður ... Ég ætla að fara heim til hennar núna.. . Það var farið að skyggja. Gérard var hamingjusamur. Hann tók fjögur þrep i stökki upp stigann og stanzaði andar- tak á stigapallinum, til að ná andanum. Nú átti hann að hitta Daniéle eftir örfá augnablik. Um áttaleytið, hafði Therése sagt. Klukkuna vantaði tvær mínútur í átta. Gérard var með hjartslátt, þegar hann hringdi dyrabjöllunni. Therése opnaði. Gérard náði því að sjá þrútið andlit hennar og grátbólgin augun, áður en hún fleygði sér í faðm hans og þrýsti andlitinu upp að öxl hans. Hún skalf af niðurbæld- um gráti. Gérard skildi ekki neitt. Yfir öxlina á Therése sá hann móður stúlkunnar, sem laut höfði. — Kæri drengurinn minn, sagði hún með skjálfandi rödd. — Daniéle er dáin ... Gérard hafði upp orðin eftir henni. Hann hélt Therése dálít- ið frá sér og horfði spyrjandi á hana. Stúlkan kinkaði kolli. Hún kom ekki upp nokkru orði. — Já, sagði hún að lokum, — það er satt, hún svipti sig lifi . . . Það varð óhugnanleg þögn. Gérard gat ekki hreyft sig, ekki talað, ekki einu sinni andað. Honum fannst hjarta sitt frjósa. En skyndilega hrökk hann við, sneri sér við, þaut út og niður stigann. Dáin ... Gérard hleypur, — hann hleypur allt hvað af tekur. Borgin er hljóð, göturnar mann- lausar Hann hleypur ... hrað- ar og hraðar. Það er eins og hann sé í kapphlaupi við tím- ann. Þetta getur ekki verið. Hann veit það. Tárin renna nið- ur kinnar hans, inn í opinn munninn. Ungi maðurinn hæg- ir á sér. Daniéle er dáin. Það er ljós í einstaka glugga. í stóru íbúðinni sinni er dóm- arinn ábyggilega sofnaður und- ir dúnsænginni sinni. Hann byltir sér í svefni, en það er aðeins vegna þess að honum er of heitt. Dómara dreymir lík- lega aldrei, að minnsta kosti ekki um þá sem þeim ber skylda til að dæma. Herra Leguen situr og meltir matinn. Hann er á skyrtunni og ætlar að fá sér myntulíkjör eftir andartak. Hann þolir ekki svo vel kaffi nú orðið. í fangelsinu sofa fangarnir órólegum svefni. Þeir hafa erf- iðar draumfarir og hljóða upp úr svefninum. Gérard tekur aftur til fót- anna. Húsið sem Daniéle býr . er þarna rétt hjá. Hann hleyp- ur inn, fram hjá húsverðinum. — Hvert eruð þér að fara? kallar húsvörðurinn. Gérard svarar ekki. Hann þýtur upp stigann, þangað til hann kemur að íbúð Daniéle. Hann rífur í handfangið, hring- 15. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.