Vikan - 15.06.1972, Blaðsíða 5
um, okkur dreymir þá mjög oft.
Hvað merkir það? Hvaða merki
eiga vel við nautið og krabb-
ann? Hvað lestu úr skriftunum?
Vertu svo blessaður í von um
að bréfið verði birt.
Tvær í draumavímu.
Þetta að ykkur dreymir þá bend-
ir varla til annars en þið séuð
með þá á heiianum.
Jómfrúin og steingeitin eiga
prýðilega við nautið, og sama
má raunar segja um krabbann
og fiskana. Vogin og bogmaður-
inn geta líka komið til greina.
Beztu merkin fyrir krabbann eru
tvíburarnir, vatnsberinn og fisk-
arnir, þar næst nautið, jómfrúin,
vogin, sporðdrekinn og jafnvel
bogmaðurinn.
Úr þessum „skriftum" er ekkert
lesandi.
Eftir hvern?
Ágæti Póstur!
í byrjun viljum við þakka Vik-
unni fyrir allt gamalt og gott
efni, og einnig það afleita. Við
spyrjum eins og margir aðrir um
stjörnumerkin. Hvernig eiga
Mærin og Vogin saman og
Hrúturinn og Mærin.
Svo langar okkur líka að spyrja
um kvæði. Eftir hvern og úr
hvaða kvæðasafni? Við komum
þessu nefnilega ekki fyrir okk-
ur.
Látum' reynist létt um vik,
leiðin kunn í göngum.
Afturgengin augnablik
að mér sækja löngum.
Stundin týnist ein og ein,
eftirsjónin lifir.
Vaka, vaka manna mein,
myrkrið færist yfir.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna. Og að lokum, hvað
lestu úr skriftinni?
Rekan og járnkarlinn.
Jómfrúin og Vogin eiga ágæt-
lega saman. Hrúturinn og Jóm-
frúin eiga hins vegar frekar erf-
itt með að umbera hvort annað
og gera það sjaldan nema brýna
nauðsyn beri til. En þá geta þau
líka orðið hvort öðru að miklu
liði.
Vísurnar þær arna kannast Póst-
urinn ekki við í fljótu bragði, en
ef einhver lesenda er fróðari,
vonum við að hann verði svo
góður að senda okkur upplýs-
ingar um höfund þeirra og í
hvaða bók eða kvæðasafni þær
birtust.
Þessar rithandir eru næsta líkar,
vitna báðar um dugnað og bjart-
sýni.
Var voða
almennilegur
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður
og mig langar til þess núna.
Það var þannig að ég var með
strák um páskana, hann var voða
almennilegur við mig, en hann
talaði aldrei neitt mikið við mig
(þetta skeði úti á landi), svo
þegar ég eða við vorum komin
heim, þá bauð hann mér og
vinkonu minni að verða sam-
ferða heim og svo hringdi hann
i mig á hverju kvöldi í tvær
vikur. Svo hitti ég hann aftur á
þessum stað sem ég hitti hann
fyrst. Þá talaði hann ekkert við
mig og hefur alveg hætt að
hringja.
Kæri Póstur, ég vona að þú get-
ir gefið mér ráð og að bréfið
lendi ekki [ ruslakörfunni. Hvað
iestu úr skriftinni?
Með fyrirfram þökk.
Ein í vanda.
Kannski hefurðu, án þess kann-
ski að meina það, verið eitthvað
afundin við hann í símanum
þessar tvær vikur, sem hann
hringdi í þig upp á hvert kvöld,
svo að hann hefur fengið þá
hugmynd að þú kærðir þig ekk-
ert um hann. En kannski hefur
hann einfaldlega misst áhugann
á þér, þótt mikill væri á tíma-
biii. Bezta ráðið til að ganga úr
skugga um það er að tala við
hann sjálf og gefa honum til
kynrta að þú hafir áhuga. Það
eru þá ekki hundrað í hættunni
þótt hann snúi upp á sig.
Skriftin bendir til að þú mættir
venja þig á meiri reglusemi í
vinnubrögðum.
Explorer
international
Ötrúlegt en satt.
Explorer býður upp á
allt þetta.
LV/MV
6 bylgjur
Einstaklega
langdrægt enda gert fyrir
hin erfiðu hlustunarskil-
yrði í Noregi.
Kristaltær FM bylgja.
v'1 •,
:Ö-:
/ ,-V
• I \
FM
oo
/
. /
Stuttbylgju fínstilling
(Lupa) sogar inn hinar
fjarlægustu stöðvar á
stuttbylgjunni. Tækið er
hægt að nota sem
miðunarstöð.
Kvarðaljós.
Úttök fyrir:
Segulband, plötuspilara,
heyrnartæki, auka hátal-
ara og straumbreyti.
Árs ábyrgð.
Bátabylgja
180-59 m
Fyrir DX:ing
og fjarskipti bif-
reiða 60—10 m
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10A, sími 16995
24, TBL. VIKAN 5