Vikan - 15.06.1972, Side 18
Þessi fjörutiu og sjö ára gamli,
myndarlegi og bláeygði maður
með mjúku baritonröddina, sem
talar amerisku' með' þýskurn
áherslum, tekur þann fjandskap
ekki nærri sér.
Kissinger hlýtur ærna aðdáun
fyrir skarpskyggni sina og skipu-
lagsgáfur, en oft reka menn sig á
ýmislegt i fari hans, sem kallað
er tevtónskt. Hann þykir
stundum ofurnákvæmur og
strangur. En hann á fleiri hliðar,
þar á meðal ýmsar, sem ekki
hefðu verið taldar passa við
venjulegt „kraut” frá
Þýskalandi. Það hefur nefnilega
komið i ljós, að i fristundum er
piparsveinninn Kissinger
skemmtilegur samkvæmismaður
og hrifandi kavaléri. Hann hefur
svo oft sést i félagsskap ungra
kvenna úr þeim hópi, sem
virðulegastur þykir i Washington,
að farið er að kalla hann
..Casanova Hvita hússins.”
Meira að segja hefur verið
fullýrt, að hann sé mikill
áhlaupamaður i kvennamálum.
Einu sinni kvartaði hann við
siðameistara forsetans: „Það
bregst aldrei að i samsætum fái
ég sljóa áttræða kerlingu á aðra
hönd en einhvern kvenmann
mállausan á ensku á hina.”
Siðameistarinn lofaði bót og
betrun, og stóð við það. t einu
miðdegissamsætinu þar i húsi
fékk Kissinger skömmu siðar þá
frægu atvinnublondinu Zsa Zsa
Gabor sem borðdömu. Fara ekki
sögur af öðru en Kissinger
forsetaráðunautur hafi verið
harðánægður með þá úthlutun,
enda þótt Zsa Zsa tæki hann að
visu fyrir Kiesinger, fyrrverandi
rikiskanslara Vestur-
Þýskalands, og kallaði uppyfir
sig undrandi: „En hvað hann
getur talað góða ensku!” En
skrafskjóður höfuðborgar
Bandarikjanna fengu fyrst byr
undir báða vængi þegar Henrv
lét sjá sig i næturklúbbi einum
með stúdinu að nafni Nancy Mc
Ginnis, af forrikri fjöldkyldu.
„Hann kvænist áreiðanlega
bráðum,” var sagt. Litlu siðar
sást Kissinger opinberlega með
blaðakonunni Gloriu Steinem.
Ekki stóð þá á orðrómi þess efnis,
að samband þeirra væri allnáið.
Kissinger lét ekki staðar numið,
ljómandi eins og sólin lét har.n
ljósmynda sig með filmsmástirn-
inu Jill St. John. Gróusögurnar
náðu fjöllunum hærra, og blaða-
fulltrúi Hvita hússins vakti at-
hygli Kissingers á þeim, ekki laus
við áhyggjur. Kissinger svaraði
hvatskeytlega: „Ef ég væri á
eftir karlmönnum, gæti ég skilið
að yður stæði ekki á sama.”
ng „Hénry the Kiss”, eins og
hann er gjarnan kallaður. fer sinu
fram, hvað sem hver segir. Hann
sést stöðugt i fylgd með ungum og
fallegum stúlkum, og alltaf
nýjum og nýjum.
Blaðurekjóðurnar segja að hann
velji sér kvenfólk eftir
tækifærum, likt og aðrir
karlmenn velja föt. Á
frumsýningu á Guðföðurnum með
Marlon Brando i aðalhlutverki
mætti hann þannig með Ali
McGraw, sem fræg er úr Love
Story. Samantha Eggar, fræg og
fögur Hollywooddis, fer oft með
forsetaráðunautnum i helgar-
ferðir. Fullyrt er i Washington að
hann hafi einnig hæfilegt kvenfólk
að gripa til, þegar veðrið er svo
vont að ekki er hægt að fara
neitt.
En vitaskuld lætur Kissinger
einkalif sitt aldrei ganga fyrir
stjórnmálunum. Undanfarna
þrjátiu mánuði hefur hann sjö
sinnum rætt leynilegaVið norður-
vietnamska framámanninn Le
Duc Tho i Paris. Ennfremur
fimm sinnum við Xuan Thuy,
formann norður-vietnömsku
samnlnganefndarinnar þar i
borg. Og allir vita að þaö var
Kissinger, sem undirbjó jarð-
veginn fyrir Nixon i Peking. Og
sennilega hefur hann farið i
svipuðum erindagerðum til
Moskvu, hvort sem það verður nú
til nokkurs.
A unglingsárunum i Furth
reyndist Adolf Heinz Kissinger
eistaklega lipur knattspyrnu-
maður. Henry Kissinger er engu
siðri sem iþróttamaður hvort
heldur er i stjórn- eða
kvennamálum.