Vikan - 15.06.1972, Side 32
Sannleikurinn er sá, að ég
veit fjandakornið ekkert um
the Dubliners nema það, að
þeir eru í algjörum sérflokki
hvað snertir flutning og túlk-
un þjóðlaga. Heldur lítið hef-
ur heyrzt í þeim hér á landi.
nema þá helzt á þjóðlagakvöld-
um hjá Vikivaka og plötur
þeirra eru svo sjaldséðar hér,
að þá þær koma, eru nokkrir
fanatíkerar þegar búnir að rífa
þær út. Áhugafólki er þó bent
á, að í Fálkanum, helzt á Lauga-
veginum, fást alltaf öðru hvoru
plötur þeirra, en rétt er að
nota þetta tækifæri og hvetja
hljómplötusala til að standa sig
betur í því að flytja inn þjóð-
lagaplötur. Til að mynda hefur
aldrei (mér vitanlega) fengist
hér plata með Pete Seeger.
The Dubliners eru fimm og
eins og nafnið bendir til, þá
er heimaborg þeirra Dublin á
írlandi. Þeir eru sífellt á ferða-
lögum um allan heim, og ætti
því að vera hægur vandi fyrir
framtakssama kaupsýslumenn
að fá þá til að koma hér við, þó
ekki væri nema á einn konsert.
The Dubliners heita Luke
Kelly, Ronnie Drew, John
Sheahan, Barney McKenna og
Ciaron Bourke. Og svo vitnað
sé til ákalla nýstofnaðs Ásatrú-
arsöfnuðar hér á landi, þá skul-
um við vona að Óðinn gefi, að
einhverntíma í nánustu fram-
tíð verði þessi heiðursmenn vel-
komnir á íslandi. Þangað til
verðum við að láta okkur
nægja plötur þeirra. Af þeim
verður enginn svikinn.
GINGER BAKER
SALTAÐUR
Ginger Baker, fyrrum tromm- ■
ari Cream, Blind Faith og Air-
force, hefur stofnað nýja hljóm-
sveit sem hann kallar SALT,
og eru þeir að hefja æfingar í
Lagos í Nígeríu um þessar
mundir. Baker hefur að undan-
förnu haft mikinn áhuga á af-
rikanskri tónlist og hefur hann
dvalið töluvert í Nígeríu; m.a.
kom út plata með honum og
afrískönskum trumbukór, hét
sú plata Atunde og vakti hrifn-
ingu þeirra flestra er til heyrðu.
Meðlimir SALT eru Tunde
Kuboye (bassi), Laolu Akins
(afrískanskar trumbur) og
bræðurnir Taiwo og Yehine
Lijadu sem syngja og eru þess-
ii fjórir allir innfæddir Níger-
íumenn. Auk þeirra eru
í hljómsveitinni Berkeley Jon-
es (gítar), Steve Gregory (ten-
ór sax og flauta), Bud Beadle
(baritón- og alt-saxófónn og
Framhald á bls. 35.
32 VIKAN 24. TBL.