Vikan - 06.07.1972, Side 5
að hann taki ekki eftir neinu.
Hvernig á ég að koma orðum
að eða geta náð í hann?
Ein þungt hugsandi.
P.S. Hvernig er skriftin og staf-
setningin?
PrófaSu aS gera eins og hann:
kallaSu á hann á götu og spurSu
hann um einhvern sameiginleg-
an kunningja ykkar, þótt þú
kannski þurfir ekkert endilega
á þeim upplýsingum aS halda.
Þetta yrSi mjög trúlega til þess
aS hann gizkaSi á aS þú sért
hrifin af honum, og stígur þá
væntanlega næsta skrefið — það
er að segja ef hann er hrifinn
af þér.
Skriftin er væntanlega á byrjun-
arstigi og stafsetningu er einn-
ig ábótavant.
Var svolítið leiðinleg
við hann
Kaeri Póstur!
Ég hef lengi aetlað að skrifa þér.
Meðal annars til að þakka þér
og Vikunni allt sem þið skötu-
hjúin hafið fram að faera.
Einnig til að biðja þig um góð
ráð. Málið sem mig vantar ráðn-
ingu við kemur hérna. Það
byrjaði náttúrlega eins og flest
mál, sem þú hefur haft með að
gera. Ég er nefnilega ofsalega
hrifin af strák, sem ég hef verið
með þrisvar. Ég var ekki hrifin
af honum í tvö fyrstu skiptin,
var meira að segja svolítið leið-
inleg við hann. En öðru máli
gegnir um þriðja skiptið, því þá
varð ég alvarlega hrifin, en
hann virtist hafa minni áhuga.
Við erum ekki saman núna. —
Þegar við hittumst eða heyr-
umst getum við talað um allt
milli himins og jarðar, sama
hvað það er, og erum góðir
vinir. Hvernig á ég að fara að
því að ná í hann?? (Ekki snúa
út úr.) Að lokum: hvernig á
Vatnsberinn við Drekann, Tví-
burana eða Meyjuna? XOZ.
P.S. Hvernig er stafsetningin?
Hvað lestu úr skriftinni?
Fyrst þiS eruS góSir vinir, ætti
þetta aS geta reddast. Haltu
bara áfram að tala viS hann um
allt milli himins og jarSar þeg-
ar þiS hittizt og heyrizt, þó
skaltu hafa einhvern hemil á
málæSinu, því annars er hætt
viS aS hann þreytist lika á aS
tala viS þig. Líklega hefur hann
orSið eitthvaS ragur af því aS
þú varst svona leiSinleg viS
hann í fyrri skiptin, en ef þú
leggur af þaS hátterni ætti allt
aS falla í Ijúfa löð.
Vatnsberi og SporSdreki eru
gerólíkir í smekk og hugarfari,
en hafa oft undarlega gaman af
aS ögra hvor öSrum. Vatnsberi
og Tvíburi dragast mjög hvor
aS öSrum og eiga yfirleitt vel
saman. Vatnsberi og Jómfrú
geta einnig vel átt saman, þó
varla nema á andlega sviSinu.
Stafsetningin er ágæt. Skriftin
bendir til mikillar athafnasemi
og mikils af fersku lífsfjöri.
Hress yfir Laxness-
blaði
Virðulegi Póstur!
Kærar þakkir fyrir allt, bæði
bréfin sem þú birtir og eru
sjálfsagt ágætar heimildir um
lesendur Vikunnar, það er að
segja yngri kynslóðina af þeim,
svo og annað efni.
Ég var mjög hrifinn af blaðauk-
anum sem þið birtuð um Hall-
dór Laxness á sjötugsafmæli
hans. Ekki get ég að því gert að
mér finnst dýrkun okkar ís-
lendinga á afburðamönnum
okkar oft keyra úr hófi, þetta
eru þó aldrei nema menn sem
hafa sína bresti þegar vel er að
gáð, og sömuleiðis mætti gefa
meiri gaum mönnum, sem slaga
kannski hátt upp í snillingana
hvað hæfileika og afrek snertir,
enda þótt þeir hafi ekki fengið
Nóbelsverðlaun eða komizt á
annan hátt á toppinn. En hvað
um það, Laxness er alls góðs
verður og þessi blaðauki ykk-
ar með honum var frábær. —
Myndir eins og þessar, sem
sýna rithöfundinn á ýmsum ald-
ursskeiðum, segja meira en
margur hyggur. Þetta eru
myndir, sem fæstir hafa sjálf-
sagt séð éður, og hljóta þvf að
hafa mikið gildi fyrir allan al-
menning, sem vill þekkja sitt
höfuðskáld sem bezt.
Þið mættuð vel birta fleiri slíka
blaðauka, þegar tilefni gefast.
Vikulesandi.
Póstsendum.
VERÐLISTINN,
box 958,
Reykjavík.
27. TBL. VIKAN 5