Vikan - 06.07.1972, Síða 6
SÍÐAN SÍÐAST
FEGURSTA KONA
SL. 300 ARA
Dr. Roy Strong, forstöðumaður manna-
myndasafns Bretlands, National Port-
rait Gallery, segist ekki vera í nokkr-
um vandræðum með að benda fólki á
þá konu, sem fegurst hafi verið fyrir
300 árum og segist dr. Strong vera þess
fullviss, að enn sé engin kona jafn-
fögur.
Sú sem um ræðir, er Nell Gwyn,
ávaxtasölustúlka, sem varð ástkona
Karls II. Safn dr. Strongs er að undir-
búa sýningu á myndum af fögrum kon-
um úr mannkynssögunni og fór Strong
í gegnum fleiri hundruð myndir áður
en hann valdi 50 til að fara á sýning-
una. Og á meðfylgjandi mynd er dr.
Strong með tvær myndir af hinni fögru
Nell Gwynn.
SÖTZT EFTIR LÍFI
HUSSEINS
Palestínuaröbum er mjög uppsigað við
Hussein Jórdaníukonung og er aðal-
ástæðan sú, að hann hefur verið harð-
ur í afstöðu sinni gagnvart þeim og
hermdarverkum þeirra. Eins og menn
muna, þá kom til borgarastyrjaldar í
landinu í fyrra og lauk henni með
sigri kóngsmanna. Nú hefur nýlega
komizt upp um samsæri til að myrða
kóng og sýnir myndin auglýsingaspjöld
skæruliða Palestínuaraba. Er það
mynd, sem að hálfu leyti er Hussein
og hálfu Móse Dajan, landvarnarráð-
herra ísraels, þannig að ljóst ætti öll-
um að vera hverjum augum arabar
þessir líta á kóngsa.
NATALIE WOOD
FELLUR AFTUR
Hún fellur fyrir Robert Wagner, það
er að segja. Þau giftust árið 1957, en 5
árum síðar skildu þau. Bæði giftust
aftur og hafa nýverið fengið skilnað
frá mökum sínum og þegar þau komu
saman til Lundúna fyrir nokkru, ruku
blaðamenn og slúðurdálkahöfundar af
stað. Þau sögðu já, við ætlum að gift-
ast aftur.
VATNAHJÖL ARSINS
Japanskt fyrirtæki hefur sett á mark-
aðinn vatnahjól, sem þeir kalla vatna-
hjól ársins. Er hjólið fótstigið eins og
önnur hjól, en flýtur á gúmmípúðum
og er stýrt með „framhjólinu“. Vest-
ur-þýzkt fyrirtæki hefur fengið umboð
í Evrópu og krefst svo mikils sem 30
þúsund íslenzkra króna fyrir stykkið.