Vikan


Vikan - 06.07.1972, Síða 40

Vikan - 06.07.1972, Síða 40
Sllkar umræður eru oftast til gagns. Börn á öllum aldri hafa gott af þvi að vita að það sé ekki ljóttað verða reiður og alls ekki hættulegt. Og að þaö sé fallegtað sættast, verða vinir á ný og tala um deiluna, svo að ljós verði sjónarmið beggja. Það getur verið erfitt fyrir foreldra að hjálpa börnum sinum til aö leysa deilumál, sérstaklega ef þau eru sprottin af afhrvðisemi. en ef vcl tekst til, þá er mikill sigur unn- inn. NATASJA Framhald aj bls. 15. lifið yrði ekki eingöngu dans á rósum. Ég yrði aldrei reglu- iega örugg um hann, það var margt sem ég þurfti að læra og margt að setja mig inn í, en hvað gerði það til þegar hjarta mitt syngur af gleði! Andrei tók ennþá fastar um hendur mínar. —- Kveldu mig ekki, sagði hann. — Segðu mér fljótt hvort þú ætlar að koma með mér... eða krefst ég of mikils? —- Alltof mikils, hvíslaði ég, en ég hafði aldrei getað stað- izt glettnina í bláum augum hans og hann vissi það. Hann gaf mér ekki tíma til að and- mæla, ekki tíma til að segja nokkurt orð. Hann hló, þegar armar hans lukust um mig og ég hló líka. Svo kyssti hann mig þangað til ég stóð á öndinni . . . Sögulok. NEPAL Framhald aj bls. 22. ferðin kostar yfir sjö þúsund krónur, herbergið fyrir einn þrjú þúsund og sex hundruð krónur yfir nóttina. En skemmtileg reynsla er það. Rúmin eru búin súrefnistjaldi og í matsalnum getur maður fengið súrefnisgrímur. Frá hót- elinu er örstutt til frumstæðra Sérpaþorpa, og Namche Bazar, þaðan sem aliir leggja upp er ganga á Everest, er aðeins tveggja tima ferð í burtu. Líka er hægt að klifa svolítið upp í fjallið, ef menn treysta sér, og að sumarlagi er vel hægt að komast upp í fimm þúsund metra hæð yfir sjávarmál án sérstaks útbúnaðar ef maður er heppinn með veður. En vilj- irðu komast upp á tind, þarftu fimm hundruð til sex hundruð burðarmenn og nokkrar smá- iestir af útbúnaði. Þá má einnig fara fótgang- andi til hins dularfulla kon- ungsríkis Mustang við tíbesku landamærin — það tekur fimmtán daga ef maður hask- ar sér svolítið. Mustang býr við meiri einangrun en nokk- urt annað land i heimi. Þar hefur aldrei verið gefið út blað, enda kann enginn að lesa. Óhugsandi er að bíll komist þangað nokkurn tíma, því að leggja veg þangað væri álíka erfitt og að komast til Mars. Ennþá árið 1964 taldi konung- urinn í Mustang engum efa bundið að jörðin væri eins og hálfmáni í laginu. Djöflar og guðir eru allsráðandi í þessu litla konungsríki, enda situr þar enn allt við það sama og var á þrettándu öld, svo ekki sé farið enn lengra- aftur. Þeir, sem ekki nenna að klifr- ast um fjöll og firnindi, geta valið um margar ferðir, sem ferðamálaráðuneytið í Kat- mandu skipuleggur út um landið. Þarna eru margar góð- ar la'xár, og hægt er að kaupa sér leyfi til að véiða landdýr. Fjallheimur Himalaja er full- ur af alls konar undradýrum, snjóhlébörðum, villtum jakux- um. tígrisdýrum, steingeitum, lambgömmum. Og gróðurinn er í öllum regnbogans litum. Sér- fræðingar frá Sameinuðu þjóð- unum eru nú komnir til lands- ins til að hjálpa Nepölum að koma sér upp þjóðgörðum, svo að þessu landi, sem stundum er kallað þak heimsins, verði bjargað frá þeirri umhverfis- eyðileggingu, sem nú er mest- ur voði í heimi hér. A láglendinu nálægt landa- mærum Indlands er hið heims- fræga Tiger Top Hotel. Þaðan geta menn farið í ferðalög til að ljósmynda tígrisdýr, hvíta nashyrninga, fíla og hlébarða. Gestirnir búa í lúxusinnréttuð- um smáhýsum uppi í trjám og íeriðast i eintrjáningum eftir frumskógafljótunum, þar sem fullt er af krókódílum og fram- andlegum vaðfuglum. Og aðeins í nokkurra mílna fjarlægð frá hótelinu er Lum- bini, fæðingarstaður Búdda, sem milljónir pílagríma heim- sækja ár hvert. ☆ í HÚMI NÆTURINNAR Framhald aj bls. 35. með hann á geðveikrahæli. — Var þetta stig veikinnar nokkru sérstöku að kenna? — Já. — Segðu mér af því. — Nei. — Segðu mér það, Vera. — Nei, nei, nei. Aldrei! Ég greip höndunum fyrir andlitið. — Vera! Röddin var skipandi og nú byrjaði þetta hræðilega, hljóðlausa fótatak aftur, reglu- leg hreyfing fótanna, fimm sinnum áfram, fimm sinnum aftur á bak. Eitthvert lag var að ásækja mig, sorgarmars frá einhverri jarðarför, sama hverri, alveg sama. Þær eru allar eins: Mold 40 VIKAN 27. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.