Vikan

Útgáva

Vikan - 09.08.1973, Síða 10

Vikan - 09.08.1973, Síða 10
i i ) Sagt er, að þetta sé ömurlegasti blettur á jaröríki, — Walled City í Hong Kong, neðanjarðarbær, þar sem 60.000 mannverur búa á jafn mörgum fermetrum. tbúarnir þekkja ekki sólarljósið nema af afspurn og lifa á þvi að selja sjálfa sig og eiturlyf. En mitt i öllum þessúrh ó- skapnaði er ofurlitil glæta. Agnar Espegren, sem er norskur trúboði, hefur starfað þar í mörg ár og rekur trú- boðsskóla fyrir börnin og leyfir þeim að njóta dagsbirt- unnar nokkra tima á dag. Hann er leiðsögumaður okkar i þessari ferð. Án hans hefðum við tæpast komizt inn og alls ekki út aftur. Agnar Espegren,norski trú- boðinn, sem starfað hefur í mörg ár i neðanjarðarborg- inni og rekur þar trúboðs- skóla fyrir börn. Walled City — hinn ömur- legi staður, þar sem hvorki Bretum né Kínverjum hef- ur tekizt að halda uppi lög- um og regiu. Myndin er tekin úr lofti. 10 VIKAN 32. TBL. Walled City: bær án laga, þar sem búa 60.000 manns. Þú munt aldrei rata þangað, ef þú ert ekki i fylgd meö kunnugum. Og þú skalt aldrei voga þér þangað, ef þú átt ekki vini þar niðri. Tveir ljús- myndarar frá „China Mail” reyndu að svindla sér inn á svæö- iö i fyrrahaust, til að gera „grein ársins”. Þeir komust út með lffið I lúkunum. En myndavélarnar voru i lélegu ásigkomulagi, þegar þeir stuttu seinna voru komnir i sólarljósið Hong Kong meginn múrsins. Og filmurnar flutu i skolpinu inni i kjallarabænum. Hingað koma eng:r feröamenn. Enginn hefur áhuga á að reka á- róður fyrir svæöinu, sem taliö er heimsins versta fátæktar- og und- irheimahverfi. Og ef þú ert svo heimskur að hætta þér inn um eitt þeirra þröngu sunda, sem liggja þangað og viröa að vettugi hið mannlega viövörunarkerfi, sem lætur hátt i, þegar þú gengur nið- ur 15 þrepin til fyrstu nöktu.íjósa- perunnar — munt þú að öllum lik- indum hafa mesta löngun til að snúa við, þegar þú sérð fyrsta „varömanninn”, þar sem gatan liggur til þriggja átta. Hann á skyndilega annrikt og það er á- stæöa þess, að þú verður var hans. Nokkrum sekúndum seinna veit hverfið, að þú ert inni á svæð- inu. Vakað er yfir hverju fótmáli þinu. í lok marz var framið stórt bankarán I Hong Kong. Einn lög- regluþjónn var drepinn og tveir særðir hættulega. Afbrotamenn- irnir hafa ekki fundizt. Það var sagt, að lögreglan hefði rannsak- að hvert einasta hús I Walled City. Þeir sem þekkja .þar til yppta öxlum yfir slikri fullyrö- ingu. Fyrir þvi eru margar á- stæður. Enginn rannsakar hvert hús I Walled City. Ekki einu sinni lögreglan. Þvi þetta er bær án laga. Eng- inn ákveður hér, fyrir utan hinn ósýnilega stjórnanda. Hver það er, veit enginn. Þegar Kina gaf Bretlandi þann hluta Hong Kong, sem heitir Kowloon árið 1860, var Walled City ekki nefnt. Svæðið átti fyrst og fremst aö vera frlriki klnverskra diplómata. Bretland hefur jafnvel gert kröfu til kjall- arabæjarins, sem varö fátæktar- og undirheimahverfi, þegar diplomatarnir fluttu. Peking hef- ur alltaf neitað þeirri málaleitan. Er það þá Peking, sem fjar- stýrir Walled City? Nei, segja þeir, sem þekkja vel til. — Peking hefur misst tökin. Þú gengur yfir landamæri til annars lands, þeg- ar þú gengur niður þrepin 15. Land, þar sem stjórnleysið hefur skapað sér eigin lög. Kannski strangari en I þeim löndum, þar sem sólin skln. Bær undir jörðu. Sólarljós slapp slðast inn, þegar bærinn var byggður 1848 á Cing- timabilinu. Sterkur múr umlukti hann, og útgangarnir fjórir voru lokaöir með járngrindum. Þá gat þétta kallast kastali, þvi gegn þeirra tima vopnum var hann ; V. r 'v;.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.