Vikan - 09.08.1973, Blaðsíða 30
BORG ÁN LAGA
Framhald af bls. 11
glæpamenn stjórni starfsemi
sinni frá Walled City. Það er svo
margt sagt. Við þorum ekki að
skrifa nema brot af þvi, sem við
heyrðum.
Það er svokallaður stórmark-
aður á heróini i Hong Kong, og
margir falla i svað heróins og
fjöldi nýrra neytenda eykst stöð-
ugt. Opium og morfin koma á
djúnkum frá Shanghai og Hang-
chow. Hluti þeirra efna verður
eftir i Hong Kong, til að sjá fyrir
þörfum markaðarins þar, en
meirihlutinn er sendur áfram.
Trúboðinn sýndi okkur tréhurð án
snerils. Ljósgeislar láku út um
gisna hurðina, og við heyrðum
raddir aö innan. — Ef þú kannt
merkið, veröur huröin opnuð,
sagði hann. — Það þýðir, að þú
gætir keypt eins mikið heróin og
þig lystir.
Þaö eru bara þeir stóru, sem
kunna merkið. Heildsalarnir.
þeir, sem selja þeim, sem selja
þeim, sem selja þeim, sem neyta
þess. . .
Vingjarnlegur Kinverji stoppar
annan Kinverja á götuhorni. —
Þú virðist útslitinn, segir sá fyrri.
Og af þvi þú virðist bezti maður,
skal ég gefa þér meðal, sem
hressir þig upp'.
Sá, sem við var mælt þykir hinn
fyrri viðsjárveröur og hugsar
með sér, að hann skuli aldrei nota
efnið. En af þvi að hann er raun-
verulega útslitinn og þreyttur,
tekur hann það um kvöldið. Sá ó-
kunni hafði rétt fyrir sér. Þetta
var stórkostlegt efni, sem færði
hann upp til skýjanna frá hinni
myrku tilveru sinni. t nokkra
tima. Næsta dag eru aðstæðurnar
jafn ömurlegar.
Kannske án þess að vita af þvi,
dregst hann að sama götuhorni
aftur. Og hann heldur, aö það sé
tilviljun, þegar hann hittir mann-
inn aftur. Sá hefur ekkert á móti
þvi aö gefa skammt númer 2, þvi
hann veit, að það þarf þrjú skipti,
til aö tryggja sér nýjan viðskipta-
vin Þá er maður orðinn eitur-
lyfjaneytandi og þræll heróinsins.
Það kemur til með að kosta pen-
inga. 1 byrjun er dagsþörfin litil.
Svo eykst hún. Og til að útvega
peninga til eigin neyzlu, verður
maður að tryggja sér viðskipta-
vini. . .
Hann lærir fljótlega aðferðirn-
ar fjórar við að taka heróinið. Sú
fyrsta er kölluð „sogaðferðin”.
Heróinduftið er lagt á silfurpapp-
ir, sem er hitaöur upp yfir eldi,
•heróinið bráðnar og rennur sam-
an i oliukenndan vökva. Fljótlega
fer að rjúka og þá er reykurinn
soginn i gegnum rör,
Loftvarnabyssuaöferðin er
einnig mikið notuð. Duftið er sett
á glóð sigarettu sem halda verður
i ióðréttri stöðu til að heróinið
falli ekki af. Sigarettan litur út
eins og fallbyssa beint til lofts.
Þriðja aðferðin er að sprauta i
vefi, og sú fjóröa að sprauta i æð.
Það er fimm sinnum ódýrara en
sogaöferðin, en mikið hættulegra.
Hvað kostar dagsskammtur?
Frá 15—100 Hong Kong dollara,
þ.e.a.s. 250—1600 krónur. Eftir
þrjá daga syndir maður i þvi, sem
Kinverjarnir kalla „Bitra haf-
inu”, og sundtökin verða æ mátt-
minni. Þó að hægt sé að komast til
lands meö hjálp trúboða mannúð-
arstofnana er ekki meira en einn
tiundi hluti þeirra, sem fá tæki-
færi til afvötnunar, sem snúa til
‘heilbrigðs lifernis. Jafnvel eftir
^TTÍJVlA
STCAþJí
CHIC
30 VIKAN 32. TBL.