Vikan - 09.08.1973, Blaðsíða 20
Óhætt er að fullyrða, að viðtöl við sjónvarpsfólk sé eitt
vinsælasta efni, sem Vikan flytur. I bréfum, sem blaðinu
hafa borizt, eru þau sem birtast á skerminum kölluð
„heimilisvinir allra landsmanna", og má það til sanns
vegar færa.
Hrönn Hafliðadóttir, sem heyrir þessu fólki til, varð
góðfúslega við þeim tilmælum Vikunnar að taka á móti
blaðamanni og Ijósmyndara eina dagstund. Með þessu
viðtali höfum við heimsótt alla sjónvarpsþuli, sem starf-
að hafa til þessa dags. Nú stendur hins vegar til að fjölga
þulum, og munum við reyna að gera þeim einhver skil
síðar.
Það vareinn eftirmiðdag snemma í júlí, sem við heim-
sóttum Hrönn Hafliðadóttur á heimili hennar og eigin-
mannshennar, isólfsÞ. Pálmarssonar. Þau búa í þriggja
herbergja íbúð í Hlíðahverfi ásamt börnum sínum tveim-
ur, Hafliða Birgi, sem er 10 ára, og Apdreu Jónheiði, sem
er8ára. Reyndar hafði lengi staðiðtil að taka viðtal við
Hrönn, en margra hluta vegna hafði það dregizt. Síðast
þegar við gerðum tilraun til þess, var hún á förum til
Norðurlanda i sönvför með Pólýfónkórnum.
Það er þvi ekki úr vegi að
spyrja Hrönn fyrst um sönginn.
— Það er tónlist i ættinni. Faðir
minn, Hafliði Jónsson, er pianó-
leikari. Fyrir fimm árum byrjaði
ég að syngja með Pólýfónkórn-
um. Ari eftir að ég byrjaði að
syngjá með kórnum, fór ég að
læra söng hjá Göggu Lund. — Það
er ekkert likt, hvað það er auð-
veldara að syngja og vera virki-
lega góður liðsmaður i kór, þegar
maður hefur lært eitthvað.
— Ykkur var vel tekið á Norð-
urlöndum?
— Já mjög vel. En þetta var
erfið vinna og ég get vaf^a sagt,
að ég hafi séð neitt af Stokkhómi,
þó að viö værum þar nærri viku.
En það var mjög gaman og
þroskandi.
— Þú ætlar að halda áfram að
syngja?
— Já, áreiöanlega.
— Ertu ekkert að hugsa um að
leggja fyrir þig söng eða fara ut-
an til náms?
— Nei, ekki sem atvinnu. En ég
ætla að halda áfram að læra
næsta vetur og sjá til hvað verð-
ur, en það borgar sig ekki, aö
halda áfram of lengi. — Ég sé
ekki, að ég hafi neina aðstöðu til
að fara utan til náms. Við skulum
segja, að ég sé ekki nógu ung til
þess. Það tekur svo mörg ár.
1 einu horni stofunnar er pianó.
Þvi spyr ég Hrönn, hvort hún leiki
mikið á það.
— Ég var ekki búin að búa i
mörg ár, þegar ég fékk mér þetta
pianó, en það er nú orðið falskt af
notkunarleysi, þvi ég má aldrei
vera að þvi að æfa mig.
Ræktar þú tónlistaráhuga hjá
börnunum?
— Já, ef þau hafa áhuga, þá
hjálpa ég þeim, en ég held þeim
ekki að tónlistinni. En pianóið er
alltaf opið og börnin geta notað
það éins og þau vilia.
— Nú var reyndar ástæða til
þess, að við völdum þig til viðtals,
sú, að þú ert sjónvarpsþulur.
Hvernig stóð á þvi, að þú sóttir
um það starf?
— Mér datt það bara i hug og
sendi inn umsókn á laun. Það var
enginn, sem vissi um þessa um-
sókn mina. Siðan var ég kölluð
þangað upp eftir og prófuð fyrir
framan sjónvarpstökuvélina. Ég
var látin lesa upp texta. Siðan var
komið óvænt með tilkynningu og
ég beðin um að lesa hana upp. Nú,
ég var ráðin og hef verið þarna i
tæp þrjú ár.
— Farið þið eftir einhverri
siðahandbók, hvernig þið komið
fram, hvernig þið lesið upp,
hversu oft þið litið upp, — eða nið-
ur?
— Nei, við fáum að mestu
frjálsar hendur um, hvernig við
vinnum okkar verk. Við mætum
einum og hálfum tima fyrir út-
sendingu til förðunar og hár-
greiðslu. Siðan fer ég yfir textann
og kynni mér hann. Ég persónu-
lega treysti bara á texta, sem ég
hef á blaði á borði fyrir framan
mig.
— Hvað með klæðnað. Borgar
sjónvarpið fataskáp ykkar?
— Nei, hann er alveg á okkar
eigin kostnað. Það er ekki mjög
dýrt aö fata sig upp fyrir sjón-
varpið. Þessi föt, sem ég er i, eru
min eigin föt, og ég geng i þeim
við önnur tækifæri. Að vfsu verð-
ur að.gæta vel að þvi að vera i
hreinum og óslitnum fatnaði, þvi
að það sést glettilega mikið, ef
flikin hefur verið þvegin oft.
Þegar ég fer i bæinn að kaupa föt,
bið ég um eitthvað, sem er fallegt
i hálsinn, fallegt að framan, þvi
að það eí aðeins blússan eða
treyjan, sem sést. Reyndar verð-
ur að gæta nokkuö að litavali, þvi
að mjög sterkir og andstæðir litir
koma ekki vel út á skerminum.
MYNDIR: SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
RÆTT VIÐ HRÖNN HAFLIÐAC
20 VIKAN 32. TBL.