Vikan - 09.08.1973, Blaðsíða 15
SÍÐAN SÍÐAST
Muriel Belmondo
29 ára gömul systir leikarans
fræga, Jean-Paul Belmondo,
er farin að láta til sin taka á
sviðinu. Hún dansar annað
aðalhlutverkið i nútima-
balletinum Requiem, sem
sýndur er um þessar mundir i
Paris. Þessi mynd sýnir hana
standa á öðrum fæti i hlut-
verki sinu i ballettinum.
Þær eru tvær
Þær eru tvær konurnar, sem
bera nafnið Ingrid Bergman.
önnur er leikkonan fræga, til
hægri á myndinni og hin er
eiginkona leikstjórans fræga
Ingmars Bergman og það er
hánn, sem er á milli þeirra.
Myndin var tekin á kvik-
myndahátiðinni i Cannes, þar
sem leikkonan Ingrid Berg-
man var forseti dómnefndar.
Kóngauppeldi
Það er erfitt að vera þjóð-
höfðingi og það verða dönsku
prinsarnir að læra. Þeir fengu
að kynnast þvi litilsháttar i
vor, þegar þeir fóru viða með
foreldrum sinum. Hérna er
Jóakim litli reiðubúinn að
heilsa skipstjóranum á
Dannebrog með handabandi.
Óttast ekki dauðann
Marlene Dietrich kom ný-
lega fram i sjónvarpsþætti i
Bandarikjunum. Þar söng hún
sömu lög og fýrir 19 árum og
fékk 250.000 dollara þóknun
fyrir. Marlene var ekki ánægð
með árangurinn og kenndi þvi
um, að hún fékk ekki að ráða
þvi, að Orson Welles stjórnaði
þættinum. Hún sagðist ekki
hafa getað neitað að koma
fram i þættinum, þvi að hún
hefði þarfnast peninganna
handa Mariu dóttur sinni og
barnabörnunum. Aðspurð
kvaðst Marlene ekki óttast
dauðann, enda væru flestir
vinir sinir látnir. Meðalþeirra,
sem hún nafngíeindi, voru
Hemingway, Remarque og
Edith Piaf.
-V