Vikan - 09.08.1973, Page 21
Tl: PÁLL HERMANNSSON
„Höndum mínum virðist
ganga vel að rækta allt í
kring um sig". Hrönn og
Hawai-rósin, sem opnaði
sig til heiðurs blaðamanni.
Bezt er að vera i fremur mildum
litum.
— Hvað með framburð? Er
ykkur ekki uppálagt að tala norð-
lenzku?
— Nei, það eina, sem okkur er
uppálagt, er að tala skýrt og
greinilega, en þó má það ekki
fara út i öfgar, vegna þess að það
má ekki vera óeðlilegt. Ég hef
verið mikið fyrir norðan, þvi að
mamma er ættuð að norðan, og
hef sameinað' þetta að nokkru
leyti og tala sunn-norðlenzku, ef
svo má segja. — Annars er það
mismunandi, hvað maður er vel
fyrirkallaður. Stundum kemst
varla óbjagað orð út, en stundum
er allt i lagi og ekkert gerist,
þetta rennur bara eins og mjólk
úr fernu.
„Það var mikil leynd yfir
umsókn minni, og enginn
vissi um það fyrr en ég var
ráðin."
— t>ú vinnur eitthvað annað en
húsmóðurstörf og sem sjónvarps-
þulur?
— Já, ég vinn á morgnana i
dómsmálaráðuneytinu. Eg vinn
mikið við bréfaskriftir, skjala-
meðferð og þvi um likt. Annars er
svo mikið pappirsflóð þarna og
mörg eyðublöðin, að ég get varla
sagt, að ég sé komin inn i starfið,
þó að ég hafi unnið það i hálft
annað ár. Það lærist alltaf eitt-
hvað nýtt á hverjum degi.
— Aður vann ég i fjögur ár viö
prófarkalestur á Visi. Ég hef allt-
af haft gaman af islenzku. I
menntaskóla var þetta uppá-
haldsfagið mitt og ætlaði ég að
standa mig virkilega vel á stú-
dentsprófi i islenzku, en það fór
nú á annan veg, að mér fannst.
Siðan hóf ég nám i islenzkum
fræðum i Háskólanum og ætlaði
að mennta mig meira i islenzku,
en varð að hætta námi fljótlega,
þvi ég fékk höfuðsjúkdóm. Allt
námið byggðist á fyrirlestrum og
ekkert mátti missa úr.
— Var ekki hálf leiðinlegt að
sitja og lesa prófarkir i fjögur ár?
— Nei, alls ékki. Ef maður er
svolitið glaðlyndur, er alltaf hægt
að hafa nóga skemmtun. Svo hef
ég alltaf átt gott með að lynda við
fólk.
Ibúð Hrannar er öll blómum
skreytt, og er hægt með réttu að
segja, að þar kenni margra
grasa.
— Ég virðist hafa það, sem
kallað er á dönsku máli ,,grönne_
Framhald á bls. 36
Hrönn og börnin: Andrea
Jónheiður og Hafliði Birg-
ir.
ir
/o
x s »
30 á
5TTUR SJÓNVARPSÞUL
32. TBÉ. VIKAN*2l