Vikan

Tölublað

Vikan - 09.08.1973, Blaðsíða 23

Vikan - 09.08.1973, Blaðsíða 23
'cp SKRAUTLEG ÁPRENTUÐ EFNI ÁHRIF FRÁ ÁRUNUM 1950-60 REI VERIÐ Jakkar og blússur meö kimanósniði og belti. (Judo) Toppar og kjólar meö bikini eöa sundbolssniði. (Sund) Auglýsingar, tei kn i m y ndaseríur og pop-list hafa ,,inspirerað" efnaf ram leiöendur og útkoman eru ósegjanlega litrik og skrautleg efni í kjólum, blússum og sky rtubolum. Á árunum 1950-60 stóð rokkið sem hæst, gæjarnir stældu Elvis Presley og skvísurnar gengu með hestahala og tyggigúmmí, í þröngum gallabuxum eða pilsum með klauf og strigaskóm, kjólum með hringskornum pilsum ‘ og breiðum beltum, háhæluðum skóm með gati á tánni og kisugleraugum með gervigimsteinum. Þessara áhrifa gætir mjög í fatnaði frá London. Áhrif frá tízkunni á árunum 1920-30 má sjá í róman- * tískum midisíðum samkvæmiskjólum úr ,,antik" shiffon eða silkiefnum, hötfum dregnum ofan í augu, háls- fesfum, hárgreiðslum og snyrtingu. Á þessumsíðum má sjá glöggleg dæmi um þessi áhrif. Ljósmyndirnar eru úr nýjum frönskum og enskum tízku- blöðum. RÓMANTÍSK ÁHRIF FRÁ ÁRUNUM 1920—30

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.