Vikan - 09.08.1973, Side 32
JÓHANNA
HIN
ÓBUGANDI
Joan Baezer stundum kölluð móðir poptónlistar.
Þrátt fyrir það telur þessi litla kona með miklu
röddina sig fyrst og fremst vera hugsjónamanneskju
,,t fyrstu sá ég ekkert nema rústir. Rauða-Krossbifreiö kom akandi
og fólk klætt hvitum sorgarbúningum fylgdi henni. Stúlka leiddi reiö-
hjól yfir rústirnar. Ég skildi ekki þaö sem hún sagöi. Ég stóö fyrir
framan varnarbyrgi, sem oröið hafði fyrir sprengjuárás. Enginn haföi
lifaö árásina af. Gömul kona sat viö yústirnar og muldraði sömu orðin
hvað eftir annaö fyrir munni sér. Túlkurinn þýddi þau fyrir mig: Hvar
ertu nú, sonur minn?”
Joan Baez segir frá þessu svipbrigðalaust. Daglegur viöburöur i
Hanoi, en umrætt atvik gerðist á aðfangadagskvöld árið 1972. Joan Ba- ,
ez virðist ekki vita hvaö uppgjöf er. ,,Þó að ég segi aö eitthvaö sé hræöi-
legt, bætir það ekki neitt. Ég verð aö sjá hlutina og reyna að færa þá til
betri vegar. Ef viö nýttum allan þann kraft, sem viö eyðum i angistina,
heföum við náö miklu lengra.”
32 VIKAN 32. TBL.