Vikan

Útgáva

Vikan - 16.01.1975, Síða 5

Vikan - 16.01.1975, Síða 5
Spjallað við Heiðar Jónsson um tiskusýningar, snyrtingu og sitthvað fleira. — Ef kona fer inn á hefðbundin verksvið karla er hún talin klár. En ef karlmaður fer inn á hefð- bundin verksvið kvenna er hann talinn skrýtinn. Er ekki eitthvað bogið við þetta? Væri ekki full ástæða fyrir karlþjöðina að stofna félagsskap hliðstæðan rauð- sokkahreyfingunni og berjast fyrir þvi, að karlar fái að spreyta sig á hefðbundnum kvennagrein- um, án þess að fá almenningsálit- ið upp á móti sér? Sá, sem þetta mælir, heitir Heiðar Jónsson, og hann talar af reynslu. Hann hefur i mörg ár sýnt föt á tiskusýningum, leið- beint stúlkum i tiskuskólum og selt og kennt meðferð á snyrtivör- um kvenna. t haust komst hann i blaðafréttir, er umboðsmaður frægra skemmtikraftá i London vildi ólmur gera úr honum stjörnu. Hver er þessi Heiðar, og hvern- ig hefur leið hans legið inn á þessi svið, er spurning, sem marga langar áreiðanlega til að fá svar við. Heiðar tók bóninni um að spjalla um þessi mál mjög vel, þvi það, sem hann hefði gert um dagana, hefði hann gert af þvi að hann hefði haft áhuga á þvi og alltaf látið sér standa á sama, hvað fólk segði. Enda yrði erfitt að lifa hér i heimi, ef stöðugt ætti að vera með áhyggjur af þvi, sem einhverjum öðrum fyndist. — Mér fyndist skemmtilegra að spjalla við þig heima, sagði hann, þegar við höfðum ákveöið að hittast dagstund. — Ég er svo mikill heimilismaður, og þar er ég langt frá þeim ys og þys, sem fylgir minni vinnu. Heiðar býr i risibúö I Tjarnar- götunni ásamt konu sinni Bjark- eyju Magnúsdóttur og börnum þeirra tveimur, Júliusi Steinari, 5 ára og Sigriði Láru, 3 ára. Þótt þetta sé alveg i miðbænum er ró- legt þarna á loftinu, en kyrrðin er þó rofin þegar flugvélarnar skriða rétt yfir þakgluggana i aö- flugi að Reykjavikurflugvelli. Bjarkey er alveg heima og hugsar um heimilið og börnin og segist ekki láta það á sig fá, þótt sumir furði sig á þvi, aö hún skuli ekki fara út að vinna. Það er ómögulegt fyrir börn, að báðir foreldrarnir séu$ stöðugum þeyt- ingi. Heiðar þurfi að ferðast mik- ið vinnu sinnar ’ vegna, og þvi hafði þaö oröið aö samkomulagi, aö hún væri heima, meðan börnin væru litil. 3. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.