Vikan - 27.03.1975, Blaðsíða 2
Vikan efnir alltaf öðru
hverju til keppni meðal
sölubarna sinna, sem á
hverjum fimmtudegi
ganga á milli húsa í hvern-
ig veðri sem er til þess að
bjóða blaðið. Eru margir
vaskir drengir og stúlkur í
þeirra hópi/ sem sýna mik-
inn dugnað og áhuga í
starfi sínu.
Vikan lét gera skemmti-
lega skyrtuboli með mynd-
um af vinsælum teikni-
myndapersónum, og urðu
mörg sölubarnanna til þess
að vinna sér inn slíka boli,
sem þau höfðu mjög gam-
an af. En aðalverðlaunin í
síðustu sölukeppni, sem
stóð í þrjá mánuði, var
glæsilegt reiðhjól frá Ern-
inum á Spítalastíg 8, og var
ekki lítill spenningur með-
al söluhæstu barnanna,
sem heimsóttu ritstjórnina
einn daginn til þess að fá
upplýst, hver hefði hreppt
hjólið. Því miður gátu að-
eins fimm börn verið við-
stödd afhendingu vegna
anna í skólum eða vegna
f jarlægðar.
Tíu söluhæstu börnin
fengu viðurkenningu. Jón
Eyjólfsson bar sigur úr
býtum og fékk hjólið góða
að launum. úlfar Pálsson
á Akureyri hlaut einnig
sérstaka viðurkenningu
fyrir mjög góða frammi-
stöðu. Hin börnin átta voru
Þröstur Valdemarsson,
Ragnar Gunnlaugsson,
Sigurður Haraldsson,
Aðalheiður Ársælsdóttir,
Sigrún Benediktsdóttir,
Bragi Hilmarsson, Ásta
Þorláksdóttir og Guðlaug
Sturludóttir, sem öll hlutu
Tinnabækur frá Bókaút-
gáfu Fjölva í verðlaun.
2 VIKAN 13. TBL.