Vikan

Tölublað

Vikan - 27.03.1975, Blaðsíða 36

Vikan - 27.03.1975, Blaðsíða 36
Fyrst var þaö Detroit, þá Memphis, Muscle Shoals og Philadelphia. Þetta voru stað- imir I Bandarlkjunum, þar sem meginstefnurnar i soultónlistinni voru lagðar. Nú mun það vera Miami eða „The Miami Sound” sem er númer eitt. Sá, sem fyrstur var kenndur við Miami og þá tónlist, sem þaðan kom, var George McRae. Lagið hans var, eins og flestir eflaust vita, Rock Your Baby. Hljómsveitin, sem spilaöi undir með George, heitir KC and the Sunshine Band, og er fjallað um hana líka hér i þættinum. Samvinna hljóm- sveitarinnar og George McRae hefur verið töluverö, og m.a. söng George meö hljómsveitinni á nýjustu plötu hennar, Queen of Clubs. George McRae á að baki langa leið á holóttum vegi, ef svo mætti segja. Hann hefur lengi barist fyrir viðurkenningu sem söngvari, en hana hefur verið erfitt að fá. Meginvandamálið hefur að sjálfsögðu veriö að verða sér úti um eina rétta lagið. Kona Georges, Gwen, hefur ekki látið sitt eftir liggja i þessum bissniss og hefur undanfarin ár verið nokkuð iðin viö plötuútgáfuna. Lögin hennar hafa notið nokkurra vinsælda i nágrannabyggöunum, en ekki söguna meir. En eftir „gegnumbrot” George hefur vel- gengni þeirra beggja vaxið jafnt og þétt, og hafa þau nú i huga aö gera stóra plötu saman. Þess má jafnvel geta hér, að þau sungu bæði raddir á nýlegu albúmi Bill Wyman’s, Monkey Grip. En áður en lengra er haldiö er vert að lita á sögu þeirra hjónakorna. Þvi hefur verið fleygt, að sagan af þvi, hvernig þau hittust, hafi veriö skálduð af einhverjum rit- höfundi. Það byrjaði allt, þegar drukkinn sjóari hitti fallega stelpu á veitinga'stað I Flórfda. Hún skóf ekki utan af skoðun sinni á honum og sagöi siöan, að hún talaöi ekki við ókunna. Ari seinna kom þaö nákvæmlega sama fyrir á sama veitingastaðnum. Nokkrum dögum seinna hittust þau á götu, og það endaði meö þvi, að hann fylgdi henni heim. Viku seinna giftust Gwen og George McRae. Þau áttu tónlistina þegar aö sameiginlegu áhugamáli. George var fæddur i West Palm Beach i Flórída þann 19. október 1944. Hann byrjaði aö syngja I kirkjukór, þear hann var sex ára gamall. 1 gagnfræðaskóla stofnaði hann eigin rokkhljóm- sveit, sem hlaut nafnið The Jivin’Jets. Sú hljómsveit var leyst upp eftir að skólanum lauk, og George gekk I flotann. Gwen fæddist I Pensacola þann 21. desember 1943. Hún hlaut frekar kristilegt uppeldi af fjöl- skyldu, sem var mikið I músik. Gwen starfaði á unga aldri mikið með svokölluöum „gospel” hljómsveitum eins og t.d. Lafay- ettes og Independents. Eftir giftinguna áttu þau saman nokkra mánuöi, en skildu síðan I 18 mánuði, meöan George gengdi herþjónustu I Japan. Þegar hann kom heim endurreisti hann hljómsveitina sina The Jivin’Jets, GeorgMcRae og var Gwen þá aðalsöngkonan. En það gekk frekar illa, og hljóm- sveitin leystist upp. Þau byrjuðu þá að koma fram saman sem dúett. Arið 1967 réðust þau I klúbb á Palm Beach I Flórida, sem hét Candy Bar Club. unnu þau sex kvöld vikunnar sem söngvarar, en á daginn sáu þau um að hreinsa til I klúbbnum til þess að drýgja tekjurnar. Eftir átta mánuði þar hættu þau, og George fór að vinna ýmist sem bifvélavirki, gluggahreinsari eða vélvirki vitt og breitt um bæinn jafnframt þvi, sem þau hófu hálf- gert minniháttar konsertferðalag um Flórida. Vinnustaðirnir voru áfram litlir klúbbar. A einum slikum voru þau kynnt fyrir þáverandi soul-stjörnu Betty Wright og framkvæmdastjóra hennar, Willie Clarke. Þau höföu hrifist mjög af söng þeirra hjóna og vildu óö og uppvæg rétta þeim hjálparhönd. Þau fengu hjá fram- kvæmdastjóranum slmanúmer til þess að hringja i varðandi plötu- samning. En það simanúmer var aldrei notað. George fannst, að þau væru ekki næstum þvi tilbúin til sliks. Tveimur árum seinna kom á fund þeirra hátt metinn „pródúser” að nafni Brad Shapiro. Hann hafði þá aö baki samstarf með m.a. Wilson Pickett. 1 fylgd með honum var annar maður aö nafni Henry Stone. Simanúmerið, sem George haföi fengiö fyrir tveimur árum, haföi einmitt verið hjá Stone. Það varð úr samningum þeirra I Pósthólf 533 Mývatnssveit 23. janúar 1973. Sæll aftur. — Ég skrifaði þér fyrir nokkru og bað um heimilisfang hljóm- sveitarinnar Pelican. Ég skrifaði lfka um hljómsveitina Bay City Rollers og minnti þig á gamalt loforð. Nú,ég bið aftur um það sama. Geturðu ekki birt heimilis- fang Pelican fyrir mig? Ég fyrir- gef alit með Bay City Rollers, ef pú gerir það. Ég setti ekki nafn mitt undir siðast og ætla ekki aö gera þaö núna heldur. Það getur ekki skipt svo miklu máli fyrir þig aö vita, hvað ég heiti. Ég blö eftir heimilisfanginu, bless, — nafnlaus. Sæll (sæl) nafnlaus. Ég þakka þér fyrir fyrra bréf. Þvl miöur móttók ég þaö aldrei. Slíkt getur alltaf gerst og ekkert við þvi að gera. Hvað um það, — ég skal kannast viö að hafa gefið ákveðin fyrirheit um Bay City Rollers. Þvi miður er það svo, aö upplýsingar um sumar hljóm- sveitir liggja ekki á lausu, þ.e. upplýsingar, sem eitthvert vit er I. Þetta á þó aðallega viö um hljómsveitir, sem ekki eru alveg á toppnum. Upplýsingamiðill Islenskra poppskrifara er ein- göngu erlend blöð og timarit, og upplýsingar þar I frá eru oft á ttðum I anda stjörnudýrkunar og auglýsinga og oftlega harla litið á þeim á að byggja. Ég hef reynt eftir mætti að skrifa greinar, sem byggja á staðreyndum, frekar en pistla meö slúöurdálkafyrir- komulagi. Þvl er það nú svo, að ýmislegt situr á hakanum, eins og t.d. greinin um Bay City Rollers. Heimilisfang Pelican er hið sama og umboðsmanns þeirra, millum, og fyrsta platan hét Two Hearts in a Tangle. Nokkrar fylgdu I kjölfarið, en engin þeirra náði vinsældum. En fyrir tilstilli þessara tveggja manna komst Georg á samning við United Artists og kona hans á samning hjá Columbia. Plötur Georges geröu litla lukku, en plötur konunnar gerðu nokkru meiri lukku, svo George hætti að syngja inn á plötur og einbeitti sér að ferli konu sinnar. Einnig var hann drjúgur viö að syngja bakraddir hjá öðrum listamönnum. Þannig stóöu málin árið 1974 um vorið, þegar George átti af tilviljun leið hjá stúdló nokkru I Miami, sem hann haföi nokkrum sinnum unnið I. Casey nokkur og Rick Rinch, sem eru nú aðalmennirnir I áöurnefndri hljómsveit, K.C. and the Sunshine Band, höföu nýlokið við aö hljóðrita skemmti- lega laglínu, en hún var ekki heppileg fyrir rödd Caseys, sem átti að syngja hana. Auk þess vantaði þá texta. Þá datt George McRae inn um dyrnar af tilviljun, og endirinn varð sá, að þeir báöu hann um að humma fyrir þá lag- llnuna. Þeir urðu frá sér numdir yfir þvl, hvernig George fór meö laglínuna og ákváðu aö láta George syngja lagið inn á plötu. Það gekk fullkomlega, og útkoman varö Rock Your Baby, sem siöar komst á loppinn bæði i Englandi og Bandarlkjunumðog yfirleitt vltt og breitt um heiminn. Eftirleikurinn varð honum næsta auðveldur, en lögin, sem á eftir komu, voru I Can’t Leave You Alone, Gwen’s Move Me Baby og fl. K.C. and the Sun- shine Band og platan þeirra, Queen of Clubs, komst á vinsældalista, og þar með segja þeir, að Miami sándiö hafi komist á blaö, og allt fyrir tilstilli George McRae og lagsins Rock Your Baby. Óm ars Valdimarssonar, Bústaöavegi 103, Reykjavík. Svar til Ernu á Akureyri: Sá, sem spilar á orgelið i Brimkló, heitir Pétur Pétursson og á heima I Reykjavik. Komdu sæll og blessaður. Þakka þér fyrir allt þaö skemmtilega I þættinum, sem var á gamla árinu. Vona, aö þaö gangi ennþá betur á nýja árinu. Jæja, mig langar til aö spyrja þig svolitiö um eftirlætiö mitt hann Elton John. Þaö er skrifaö svo litiö um hans einkalif. Kannski hann hafi lltinn tfma? En þá koma spurningarnar: 1. Er hann trúlofaöur eöa giftur? 2. Hvaö er hann gamall, og hvar á hann heima? 3. Hvernig er augna- og hára- liturinn? 4. Hvenær er hann fæddur og hvar? 5. Hvaö er hann búinn aö gefa út margar plötur I allt? 36 VIKAN 13. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.