Vikan

Tölublað

Vikan - 27.03.1975, Blaðsíða 33

Vikan - 27.03.1975, Blaðsíða 33
um. En ég hafði, satt að segja, sterkan grun um að þér bæruð hlýjar tilfinningar til stjvipmóður minnar og sonar hennar. — Vitleysa, sagði hann hneykslaður. — Ég get fullvissaö yður um, aö englendingurinn er eini maðurinn, sem Blanche hef- ur nokkurn áhuga á. Maxine fann svolitinn sting i brjósti sér, en nágranni hennar hélt áfram: — Þegar þér eruö til staöar, þá sé égekki aðrar konur! Til allrar hamingju kom bróöir hennar rétt i þessu. — Maxine, kallaði hann. — Hvar hefurðu verið? Ég er búinn að leita að þér um allt. — Sjáöu Roland, Gaston Rondeíle var aö gefa mér þennan fallega hest. Roland gekk hægt til þeirra, með hendur fyrir aftan bak og tortryggni i augunum. — Ég þakka innilega fyrir þessa stórkostlegu gjöf, Gaston, sagði Maxine glaðlega. — En komiö nú inn og heilsið upp á hitt fólkið, þau verða öll glöö yfir aö sjá yður. Hún teymdi hestinn i áttina að hesthúsunum og Roland fylgdi henni. — Ætlarðu að giftast honum? spurði Roland og gat ekki leynt þvi hve hneykslaður hann var. — Svona talar ekkiungur herra- maður við systur sina, sagöi hún ásakandi. — Ætlarðu að giftast honum? endurtók Roland. — Ég hélt hann væri ástfanginn af mömmu, en hann vill kannski heldur kvænast þér. Ég skil það nú reyndar vel. Þú ert ekki sfgrátandi. Einu sinni fyrir löngu siðan, heyrði ég Gaston spyrja mömmu hvort hún myndivilja giftast honum, ef hún væri frjáls. Hún roðnaði og brosti, en hún sagði ekki nei. Svo bætti hann við: — Þaö var meöan pabbi var lifandi. Maxine þrýsti andiitinu upp að silkimjúkum makka hestsins. Höfðu þau verið það ástfangin, að þau hefðu myrt húsbóndann á Arlac? En Gaston hefur meiri áhuga á eigninni en Blanche, sagði hún viö sjálfa sig. Annars hefði hann ekki veriö að stiga i vænginn viö mig nú. Hún gat ekki losað sig við þennan hræöilega grun. Aður en Guy Bertran dó, hafði enginn dregið það i efa, aö Blanche og Roland væru erfingj- ar hans. Framhald i næsta blaði Sængur og koddar DON- og FIÐURHREINSUNIN Vatnsstíg 3, sími 18740 (Örfá skref frá Laugavegi) Fyrir fermingar. Fyrir vorið. LEÐURJAKKAR. i miklu úrvali. GRAFELDUR HE Ingólfsstræti 5. Reykjavik, simi 28130. 13. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.