Vikan - 27.03.1975, Síða 7
Stofa og arinstofa sjást vel á þessari mynd, sem er tekin rétt
við dyrnar fram i fremri forstofu.
Simakrókurinn fyrir enda svefnherbergjagangs var upphaflega
hugsaður sem sjónvarpskrókur. l>aðan er hægt að ganga út I garð-
inn. Hillurnar til hægri teiknaði Jón Ólafsson samstarfsmaður
Guðmundar, en á bakhlið þeirra sem snýr að eldhúsinu eru hillur
og skápar fyrir leirtau.
inum eru dyr út i garðinn með
rennihurð fyrir, og er þvi auðvelt
að opna út, þegar þurfa þykir.
Barnaherbergin fjögur eru öll
hlið við hlið, og við endann á
röðinni er hjónaherbergið — eða
öllu heldur herbergin. Fyrir fram-
an svefnherbergið er fataher-
bergi, þar sem veggir eru þaktir
skápum. M.a. eru þar vinnuskáp-
ar Ragnhildar. 1 öðrum er
saumavélin á borði og i hinum
strauvélin, og ljós er yfir báðum
vélunum.
l>essi mynd er tekin úr þvottahús-
inu yfir i eldhúsið, en þaðan sést
inn i borðstofuna. Borðið fremst á
myndinni er ekki aðeins vinnu-
borð, þvi hægt er að matast við
það með þvi að sitja á kollum
þvottahússmegin.
— Þetta er ákfalega þægilegt
fyrirkomulag, segir Ragnhildur.
— Þarna stendur saumavélin allt-
af tilbúin, þegar ég þarf að gripa
til hennar, og eins strauvélin. Eg
þarf aldrei að vera á flakki með
þessar vélar, og þær eru aldrei
fyrir. Þegar ég er búin að nota
þær.loka ég einfaldlega skápnum.
Inn af svefnherberginu eru bað-
herbergi og litið herbergi, sem
upphaflega var hugsað sem
vinnuherbergi fyrir Ragnhildi.
Hún er tækniteiknari og vinnur nú
á rafmagnsverkfræðistofunni
Rafhönnun frá 8—3.
Ég spurði hana, hvort hún hefði
verið með i ráðum, þegar húsið
var teiknað, eða hvort Guðmund-
ur hefði verið „einvaldur”?
— Hann var búinn að teikna
allt annað hús. En mér leist ekki á
Electrolux
i. .V.U&«2| II
Eldavélin NOVA 160
Hún hefur 4 hellur með stiglausri stillingu (2
hraðhellur, 1 steikarhellu, 1 hellu með sjálf-
virkum hitastilli). Tveir ofnar) Sá efri rúmar
54 litra. Hraðræsir hitar ofninn i 200 gráður C
á 6 1/2 min. Gluggi á ofni'með tvöföldu gleri.
Grill með teini og rafmótor. Sjálfvirkt
stjórnborð með rafmagnsklukku, viðvörun-
arbjöllu og steikarmæli. HxBxD =
850x695x600 mm.
LITIR: Ljósgrænt, koparbrúnt og hvitt.
Vörumarkaðurinnhf.
ÁRMULA 1A, SIMI 86112, REYKJAVI K
13. TBL. VIKAN 7