Vikan - 27.03.1975, Side 8
þaö, þvi þar áttu berbergi krakk-
anna aft vera i öörum endanum,
en svefnherbergi okkar i hinum.
Mér fannst alveg ómögulegt aö
hafa þau svona langt i burtu, þvi
viö vorum vön aö vera hvert ofan
i ööru i litlu ibúöinni. En kannski
var þetta skammsýni, þvi börn
vaxa miklu hraöar en maður
heldur og vilja þá gjarnan vera
meira út af fyrir sig. Þegar Guð-
mundur fór aö gera drög að þessu
húsi,leistmér strax velá það. Ég
lét hann lika alveg um aö skipu-
leggja þaö i smærri atriöum, t.d.
eldhúsiö. Sjálf hafði ég enga
ákveöna skoðun á þvi, hvernig ég
vildi hafa eldhús, enda var ég vön
ósköp gamaldags eldhúsi. Hann
hefur lika miklu meiri reynslu i
að skipuleggja eldhús en ég.
Meðal þeirra eldhúsa og mat-
staða, sem Guðmundur hefur
teiknað er mötuneyti Landspital-
ans. Sjúkrahús og skólar eru hans
aðalviðfangsefni, og eins og hinir
arkitektarnir, sem við höfum
heimsótt til þessa, gerir- hann
ekki mikið af þvi að teikna ibúð-
arhús.
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvík sími28200
— Maður teiknar aðallega
ibúðarhús til tilbreytingar og þá
helst fyrir fólk, sem er svolitið
frjálslynt og tilbúið að reyna
nyjar leiðir, segir hann.
Meðal þeirra skóla og sjúkra-
húsa, sem Guðmundur og sam-
starfsmaður hans Jón Ólafsson
húsgagnaarkitekt, hafa teiknað,
eru Ármúlaskóli i Reykjavik,
Leirárskóli, Laugagerðisskóli og
sjúkrahúsið i Vestmannaeyjum.
Nú er Fjölbrautaskólinn nyi i
Breiðholti á teikniborðinu
Sjúkrahúsið fræga i Vest-
mannaeyjum er það verkefni,
sem Guðmundi hefur verið kær-
ast til þessa. Bygging þess tók 12
ár, frá þvi byrjað var að teikna,
og oft var hann með annan fótinn i
Eyjum.
— Samvinnan við Vestmanna-
eyinga var sérstaklega góð og
skemmtileg, og ég á góðar minn-
ingar um hana. En byggingar-
timinn var allt of langur. Það nær
auðvitað engri átt, að bygging
sjúkrahúss skuli þurfa að taka 12
ár. IJramfarirnar i læknavisind-
um eru örar, og þær krefjast
stööugt nýrrar skipulagningar
þessara húsa. Þvi þurfti stöðugt
að vera að gera breytingar á hús-
inu, meðan á byggingu stóð — og
ég er satt að segja alveg undrandi
á, hve vel þær tókust, þvi ég hafði
aldrei reiknað með þessu, þegar
ég teiknaði húsið upphaflega.
Svona breytingar tefja fyrir og
hækka byggingarkostnað, og þvi
þyrfti skilyrðislaust að ganga
þannig frá fjárveitingum til
sjúkrahúsa, að hægt sé að ljúka
byggingu þeirra á sem skemmst-
um tima, svo að þau séu ekki orð-
in úrelt, þegar þau loks eru tilbú-
in.
— Það þarf vist ekki aö spyrja,
hvernig þér leið, meöan hraun-
flóðið ógnaði sjúkrahúsinu?
— Nei, minnstu ekki á það.
Maður beiö milli vonar og ótta —
en sem betur fer átti sá dagur
eftir aö renna upp, er þetta lang-
þráöa sjúkrahús var loksins tekiö
i notkun.
Þ.A.
Séð inn eftir ganginum, sem ligg-
ur úr stofu að svefnherbergja-
gangi. Hér sjást vcl steyptir
veggirnir, sem skilja að borð-
stofu, eldliús og þvottahús.
Innréttingar í eldhúsinu eru úr
furu, eins og aðrar viðarinn-
réttingar í húsinu.
8 VIKAN 13. TBL.