Vikan - 27.03.1975, Blaðsíða 11
I NÆSTU lflKU
HVAÐ A AÐ SPARA?
Um fátt er meira rætt um þessar mundir en slæmt
efnahagsástand og a6 nú veröi allir a6 spara og
heröa sultarólina. En hvaö á aö spara? Bílinn, á-
fengi og tóbak, skemmtanir, feröalög, allt þetta er
tiltölulega auövelt aö spara viö sig. En mörgum
finnst óhugsandi aö spara viö sig i mat. baö má þó
gera með þvi að haga innkaupum skynsamlega.
Og þá er fyrst aö gera sér grein fyrir eyöslunni.
brjár fjölskyldur af mismunandi stærðum héldu
búreikninga fyrir Vikuna i einn mánuö, og niður-
stööurnar birtast i næsta blaði.
MAÐURINN ODREPANDI
/,Hann hafði reynt að drekkja sér, hann hafði
kastaö sér fyrir bila, hann haföi stokkiö úr
flugvél, en hann hafði ekki hlotiö svo mikiö sem
skrámu. Hann var fyrir löngu orðinn þekktur úr
blöðunum sem ofurhuginn, sem ekkert virtist geta
grandað. Blaöamenn og ljósmyndarar höföu vart
látið hann i friði, er hann sýndi sig. baö haföi veriö
ákaflega gaman i fyrstu, en er frá leiö', leiddist
honum þetta.” betta er sýnishorn úr smásögu eft-
irEinar Loga Einarsson, sem birtist i næstu Viku.
PERÚTISKA
Tiskuhönnuöirnir leita viöa fanga, þegar þá
skortir hugmyndir. beir reyna að skyggnast inn i
framtiðina og móta eitthvað nýtt og spennandi, en
mest leita þeir þó til fortiöarinnar. Viö sjáum allt-
af sömu hugmyndirnar ganga aftur i fatatiskunni.
bá er lika algengt, að tekin séu fyrir einstök lönd,
og þjóðbúningar þeirra notaðir til þess aö skapa
linuna. 1 næstu Viku birtast nokkrar skemmtileg-
ar myndir frá Perú, sem sýna innfæddar konur i
sinum þjóðbuningum og tiskusýningastúlkur i
fatnaði, sem geröur hefur veriö i svipuðum stil.
SPENNANDI KJÖTFARSRÉTTIR
Lesendur Vikunnar kunna vel aö meta mat-
reiösluþætti blaösins, enda er matur nokkuð, sem
öllum kemur viö. 1 næstu Viku birtast uþpskriftir
af nokkrum réttum úr kjöthakki, sem sanna þaö,
að þaö er ekki endilega nauösynlegt aö kaupa
heilu steikurnar, þó maður eigi voná gestum, sem
ætlunin er aö gera vel viö I mat. Kjöthakk má
matreiöa á svo marga vegu,og hér veröur sagt,
hvernig á aö matreiöa mexikanskt buff, pönnu-
buff, stórkostlegan veislurétt, sunnudagsbuff frú-
arinnar og chili con carne.
PRINSESSAN GJAFVAXTA
baö hefur naumast fariö fram hjá mörgum, aö i
furstadæminu Mónakó ríkir fræg og glæsileg
fjölskylda. Furstafrú Grace Kelly þykir glæsileg
kona, og blöö hafa verið óspör á myndir af henni.
En nú hefur hún eignast haröan keppinaut, sem er
dóttir hennar Caroline. Stúlkan er orðin gjafvaxta
og þykir bráöfalleg og þar aö auki sennilega meö
bein I nefinu. Væntanlega á þaö fyrir henni aö
liggja aö ganga einhvern tima i hjónaband, og
heimspressan hefur látið uppi ýmsar skoðanir á
þvi máli. Myndir og frásögn áf þessari laglegu
prinsessu birtast f næsta blaði.
VIKAN Útgefandi: Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttjr. Blaða-
menn: Matthildur Edwald, Trausti Ólafsson, Þórdís Árnadóttir. útlits-
teikning: Þorbergur Kristjnsson. Ljósmyndari: Sigurgeir Sigurjónsson.
Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og
dreif ing i Síðumúla 12. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu
kr. 150.00. Áskriftarverð kr. 1.500.00 fyrir 13 tölublöð ársf jórðungslega eða
2.925.00 kr. fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrir-
fram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst.
Vikan
13. tbl. 37. árg. 27. mars 1975
BLS. GREINAR
24 Gengur mannkynið af sjálfu sér
dauðu, II. grein. Hljóðlausa
sprengjan.
VlDToL:
4 Hús er ekki aðeins þak yf ir höf uð-
ið. Vikan heimsækir Guðmund
Þór Pálsson arkitekt og fjöl-
skyldu.
SOGUR:
16 Lolita. Smásaga eftir Dorothy
Parker.
20 Morðmál Ágústar Jónssonar. VI.
kaf li nýrrar skáldsögu eftir Jónas
Guðmundsson.
28 Ættaróðalið. Framhaldssaga eftir
Söndru Shulman. 4. hluti.
YMISLEGT:
2 Úrslit í sölukeppni Vikunnar.
12 Póstur.
14,,Þetta vareinmitt það, sem þurfti
aðgera". Sagt frá námskeiði Vik-
unnar og F.I.B. í skyndiviðgerð-
um.
30 Stjörnuspá.
34 Svolítið um sjónvarp. Kynning á
efni næstu viku.
36 3m — músík með meiru í umsjá
Edvards Sverrissonar.
38 Á fjórum hjólum. Bílaþáttur
F.I.B. og Vikunnar i umsjá Árna
Árnasonar.
40 Draumar.
41 Matreiðslubók Vikunnar í umsjá
Drafnar H. Farestveit.
44 Sængurfötin breyta svipnum.
13. TBL. VIKAN 11