Vikan - 27.03.1975, Page 12
DQstunnn
Samvinnuskólinn
Kæri Póstur!
Þakka þér fyrir allt gamalt og
gott.
Hvaöa próf þarf ég aö hafa til
aö komast i Samvinnuskólann, og
hvaö tekur námiö mörg ár?
Hvernig eiga nautiö (strákur)
og krabbinn (stelpa) saman?
Hvernig er skriftin og stafsetn-
ingin? Hvaö lestu úr skriftinni, og
hvaö helduröu, aö ég sé gömul?
Meö fyrirfram þökk fyrir biri-
inguna.
Sallý.
Inn i Samvinnuskólann er kraf-
ist gagnfræða- eða landsprófs, og
námið i skólanum tekur tvo vetur.
Nautið og krabbinn eiga sæmi-
lega saman. Skriftin er ekki á-
ferðarljót, en svolftið ómótuö.
Stafsetningin er ágæt, en greinar-
merkjasetningu er ábótavant.
Skriftinbendirtil stöðugiyndis, og
þú ert fimmtán ára.
Hvaða próf þarf?
Kæri Póstur!
Ég hef séö þarna i Vikunni, aö
þú hefur hjálpaö mjög mörgu
fólki meö hin margvislegustu
vandamál og svaraö spurningum
þess greiölega. Þess vegna vona
ég, aö þú svarir nokkrum spurn-
ingum, sem mér liggur pinulitiö á
aö fá svör viö. Hér koma þær:
1. Hvaöa próf þarf maöur aö
hafa tilaöfá inngöngu i eftirtalda
skóla: a) Verslunarskólann, b)
iönskóla, c) menntaskóla, d)
bændaskóla?
2. Hvað tekur nám i þessum
skólum marga vetur?
3. Er það satt, aö hljómsveitirn-
ar Sólskin, Roof Tops og Hljómar
séu hættar eöa aö hætta?
4. Hvernig getur maöur pantaö
tima á miöilsfund hjá Hafsteini
Björnssyni miöli.
Jæja, þá eru spurningarnar
ekki fleiri, en ég vil enda þetta
bréf á þvi aö þakka fyrir allt góöa
efniö i Vikunni, sérstaklega smá-
sögurnar. Ég biö þig. enn aö
reyna aö svara þessum spurning-
um, sérstaklega númer 1. og 2.
Svokemur þetta venjulega: Hvaö
lestu úr skriftinni, og hvaö
helduröu, aö ég sé gamall af
henni ab dæma? Hvernig er staf-
setningin? Hvernig eiga saman
vatnsberinn (strákur) og
fiskarnir (stelpa)?
Vertu svo margblessaöur, og
guö gefi, aö þiö getiö gefiö Vikuna
út áfram.
H.A.J.
1. og 2. a) Nýlega var gerö
breyting á fyrirkomuiagi
Verslunarskóia islands og felldir
niður tveir fyrstu bekkirnir. Nú
setjast nemendur strax i 3. bekk
aö loknu landsprófi með lág-
markseinkunn 6 eða að loknu
gagnfræðaprófi, en þá þurfa þeir
að hafa fengiö meöaltalseinkunn
7 I samræmdu fögunum, þ.e. is-
lensku 1 og 2, stærðfræði, ensku
og dönsku. Þeir, sem stundað
hafa nám I framhaldsdeildum
gagnfræðaskólanna á viðskipta-
kjörsviði og fengið lágmarkseink-
unn 6,geta einnig hafið nám i 3.
bekk skólans, og þeir, sem hafa
stundað nám á viðskiptakjörsviöi
i 2 ár og fengið lágmarkseinkunn
6 út úr þvi námi, geta sest I 4.
bekk. Verslunarpróf er tekið að
loknu tveggja vetra námi.og 6,50 I
einkunn á verslunarprófi veitir
rétt til náms I lærdómsdeild skól-
ans, sem er tveggja vetra nám til
stúdentsprófs og skiptist lær-
dómsdeildin I máladeild og hag-
fræðideild.
b) Undirbúningsmenntunar-
kröfur eru ekki þær sömu i öllum
greinum. t sumum greinum
nægir skyldunámið, en gagn-
fræöaprófs er krafist i ýmsum
greinum. Námið tekur 3-4 ár.
c) Landspróf er skilyrði til inn-
töku I alla menntaskólana hér.
Námið tekur yfirleitt 4 vetur, en
getur tekið skemmri tima, þar
sempunktakerfið er komið I gang
d) Bændaskólinn á Hólum
starfar I tveimur deildum, og til
inngöngu i yngri deild er aöeins
krafist skyldunáms, en nemendur
með gagnfræðapróf geta sest
beint I eldri deildina. A
Hvanneyri er krafist gagnfræða-
prófs, og þar tekur það eitt ár að
veröa búfræöingur. 1 báðum þess-
um skólum er um ýmsa aöra
möguleika að ræða, og ráölegg ég
þér að hafa beint samband viö
skólastjórana um upplýsingar
þar að lútandi, ef þú hyggur á
nám þar.
3. Edvard Sverrisson segir
mér, að þær séu atlar búnar að
syngja sitt siöasta i þess orðs
fvllstu merkingu.
4. Þú verður að panta tima hjá
Guðspekifélagi tslands, Ingólfs-
stræti 22, simi 17520.
Skriftin er ósköp subbuleg, en á
vonandi eftir að lagast, þvi ég
giska á, að þú sért 14 ára.
Stafsetningin er i lagi. Vatnsberi
og fiskar geta átt vel saman. Svo
þakkar Vikan allar góðar óskir,
og þú getur verið alveg rólegur,
hún er ekkert á grafarbakkanum.
Hættulegt partý
Kæri Póstur!
Ég er mjög mikill aödáandi
Vikunnar og vænti þess að þú aö-
stoöir mig viö vandamál mitt. Svo
er mál meö vexti, aö fyrir nokkr-
um vikum hitti ég strák á balli og
fór meö honum i partý á eftir. Svo
núna um daginn fór ég til læknis,
og hann sagöi aö ég væri bomm.
Nú þori ég ekki að segja mömmu
frá þessu, þvi hún verður alveg
tjúll. Mig langar svo til þess aö fá
fóstureyöingu. Hvert get ég snúiö
mér, og hvaö mundi þaö kosta?
En þaö er ekki allt búiö enn, þvi
ég veit hvaö gæinn heitir, en veit
ekki hvar hann á heima. Elsku
12 VIKAN 13.TBL.