Vikan - 27.03.1975, Side 13
Póstur, hjálpaðu mér. Meö fyrir-
fram þökk fyrir birtingu.
Ein í vandræðum.
P.s. Hvað lestu úr skriftinni?
Hvað heldurðu, aö ég sé gömul?
Lögleg fóstureyðing kostar ekki
neitt, en til þess að fá leyfi fyrir
henni þarftu samþykki tveggja
lækna, a.m.k. þegar þetta er
ritað. Fóstureyöingu skyldi þó
engin viti borin manneskja hug-
leiða nema út úr algerri neyð, og
hefði þér verið nær að athuga aö-
eins þinn gang, áður en þú Iagöist
með pilti, sem þú veist nánast
ekkert um. Ekki trúi ég samt ööru
en að þú getir haft uppi á honum
ef þú leitar vel, og það ættirðu tvi-
mælalaust að gera, þvi hann
veröur að bera slna ábyrgö. Þvl
miðurer kynferöisfræösla nánast
engin I islenskum skólum, og
margir krakkar hugieiða aldrei,
að kynlif kunni aö hafa nokkra
ábyrgö i för meö sér. Þú og
margir aðrir eru fórnarlömb van-
rækslu fræðsluyfirvalda, sem
humma það fram af sér áratug
eftir áratug aö veita fræðslu um
jafn sjálfsagt mál og kynlifið er.
Skriftin bendir til draumlyndis og
þú gætir verið orðin 16 ára.
Komdu sæll Póstur!
Ég hef áður skrifað þér og
feiigið góð svör. En nú ætla ég að
biðja þig að svara eftirfarandi
spurningum:
1. Hver er utanáskriftin til
óskalagaþáttarins fyrir 12 ára og
yngri?
2. Kostar eitthvað að láta birta
nafnið sitt i Æskunni?
3. Hvernig er skriftin, og hvað
lestu úr henni? Hanna Sig.
1. Óskalagaþátturinn „Lagiö
mitt”, Kikisútvarpinu, Skúlagötu
4, Reykjavik.
2. Nei.
3. Skrift þin er vel læsileg, en
vonandi á hún eftir að þroskast.
Þú afsakar, að ég sleppti
nokkrum spurningum um
Osmondsf jölskylduna, svörin
hefðu hvort eð er öll orðið á eina
leið, þvi ég veit akkúrat ekkert
um þá frægu fjölskyldu.
Kappakstur
' Kæri Póstur!
Mig langar að biðja þig að gera
mér smá greiða, og hann er að út-
vega mér upplýsingar um ein-
' hvern erlendis, sem sér um að
koma kappakstursmönnum á
framfæri. Ég vona, að þér takist
þetta fyrir mig, þvi ég hef geysi-
legan áhuga á að komast á braut.
Virðingarfyllst,
islenskur Emmerson.
Snúðu þér beint til Félags
islenskra bifreiöaeigenda, Ar-
múla 27, Reykjavik, simar 33614
og 38355. F.Í.B. er aöili að F.I.A
Federation Internationale de
l’Automobile, og hefur rétt til
þess að gefa út æfingaleyfi.
Skrifstofa félagsins veitir þér fús-
lega allar upplýsingar.
Villidýrin og lagið
Kæri Póstur!
Við erum nokkrir strákar hér á
Stöðvarfirði, sem ekki erum á
einu máli um, hver sé höfundur
lagsins, sem leikið er á undan og
eftir Villidýrunum I sjónvdrpinu.
Vildum við gjarna fá að vita vissu
okkar, ef þú, Póstur sæll, vildir
vera svo góður að upplýsa okkur
um þetta atriði. Með fyrirfram
þökk fyrir svarið og svo fyrir allt
gamalt og gott.
Guðni Arnarson.
Lagið er eftir Paul og Lindu
McCartney.
Læknisfræði.
Elsku Póstur!
Þakka þér fyrir allt gamalt og
gott, og ég vona, aö þú svarir mér
I þetta skipti.
Mig langar svo að verða barna-
læknir, en ég veit ekki almenni-
lega hvaða leið ég á að fara til
þess. A ég aö fara I landsprófið,
eða I fjórða bekk gagnfræða-
skóla? Hvað er þetta langt náin?
Viltu svo segja mér, hvernig
hrútur og geit passa saman?
Vertu blessaður, Póstur minn.
Tilvonandi læknir.
P.S. Viltu vera svo elskulegur
að segja mér heiinilisfang
Roberts Redfords, sem leikur
I The Sting?
Mér list prýðilega á það áform
þitt að leggja læknisfræði fyrir
þig. Leiðin um landsprófið er
styttri en um gagnfræðaprófið.
Að loknu landsprófi þarftu að
stunda menntaskólanám sem
lýkur með stúdentsprófi. Það tek-
ur yfirleitt fjögur ár. Slöan þarftu
að leggja fyrir þig almennt
læknisfræðinám, sem áætlað er
að taki sex til sjö ár. Að þvl loknu
geturðu valiö þér sérgrein, til
dæmis barnalækningar, sem
nokkur ár tekur að ljúka. Hrútur
(stúlka) og steingeit (piltur) eiga
allvel saman, ef stúlkunni tekst
að brjóta odd af oflæti slnu, hrút-
ur (piltur) og geit (stúlka) eiga
einnig nokkuö vel saman, ef
stúlkunni tekst að verða við ósk-
um piltsins, án þess um hreina
þrælslund sé að ræða. Pósturinn
gefur aldrei upp heimilisföng
kvikmyndaleikara, enda hefur
hann sjaldnast hugmynd um þau.
Gangi þér námið vel.
lÍMÍÍlJIÍlÉÉÉi
PREOTOí
MIM
Látið prenta alls konar aðgöngumiða,
kontrolnúmer, afgreiðslumiða og
fleira á rúllupappír. Eina prentsmiðj-
an á landinu, sem prentar slíka miða.
Höfum einnig fyrirliggjandi og útveg-
um með stuttum fyrirvara ýmiss konar
afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
Hilmír lif.
SIÐUMULA 12 - SIMI 35320
13. TBL. VIKAN 13