Vikan - 27.03.1975, Page 44
Sængurfötin breyta svipnum
Þegar vorar og sól hækkar á lofti og þrengir sér inn í hvert horn, fá margir löng-
un til að lyfta vetrardrunganum af sjálfum sér og umhverfinu með því að
breyta hjá sér; mála, veggfóðra, setja upp ný gluggatjöld o.s.frv. Það getur oft
kostað nokkra fyrirhöfn og fé — en stundum er hægt með lítilli fyrirhöfn og litlum
kostnaði að lífga ótrúlega mikið upp á eitt herbergi. Skrautlegur dúkur, púði eða
fallegt blóm getur breytt svipnum ótrúlega mikið — og á meðfylgjandi myndum
sjáum við, hvað ný sængurföt geta gert. Við sjáum tvær myndir af hvoru svefnher-
bergi og eini munurinn á myndunum er, að skipt hefur verið um sængurföt á rúm-
inu. Um þessi rúm er búið á erlenda vísu, þvi þar eru notuð teppi í stað sænga. En
þrátt fyrir það ættu þessar myndir að geta sett hugmyndaf lugið af stað hjá ein-
hverjum.