Vikan - 25.11.1976, Síða 9
Segöu mér mamma. Varst þú
einhverntíma ástfangin?
★ ★ ★
Lars Larsen-Ledet var danskur I
blaðamaðurog bindindispostuli. Á
leið til kosningafundar átti hann |
orðaskiptiviðlítinn, gamlan mann.
,,Með leyfi," spurði maðurinn, I
,,eruð þér ekki Larsen- Græsted?" |
„Nei, ég heiti Larsen-Ledet.
,,Já, en eruð það ekki þér, sem I
lesið svo skemmtilega í útvarpið?" [
„Nei, það er Larsen-Græsted.
„Nú, en það er hann, sem er j
bindindispostuli?"
„Nei, það er ég."
„En þértalið jósku. Ég hef alltaf I
haldið, að Larsen-Ledet væri sjá-1
lendingur."
„Nei, það er Larsen-Græsted.
„Já, þá verðið þér að afsaka, að
mér hefur skjátlast. Larsen-Græ-
sted, það er hann með Ijóta andlitið,
hann, sem er nauðalíkur apa."
„Nei, það er ég."
★ ★ ★
★ ★ ★
Maöur nokkur var sendur til j
geðlæknis vegna þess, að hann |
þótti eitthvað undarlegur. Þegar j
hann var sestur við borðiö and-
spænis læknirnum, tók hann upp 1
sígarettu, reytti hana sundur og
tróð tóbakinu upp i nasirnar á sér.
Læknirinn virti þessar aöfarir fyrir |
sér þungur á svip, sagði síðan: Já,
þaðerauðséð, aðþérþurfið á minni
aðstoö aö halda.
Já, mig vantar eld, sagði sá
klikkaði.
I NÆSTU VIKU
JÓLABAKSTURINN
Þegar nœsta VIKA berst ykkur í hendur, er ykkur
óhætt að bretta upp ermunum og taka fram kökukeflin,
því það er okkar árlega „kökublað”, sem við köllum
svo. Okkur er tjáð, að eftir þessu blaði bíði margir allt
árið, og við erum auðvitað stolt af því og reynum að
valda engum vonbrigðum. Sem sagt: þegar þið hafið
búið til jóladagatalið, sem er aftast í þessu blaði, þá er
næst að undirbúa jólabaksturinn — auðvitað með
aðstoð næstu Viku.
ÞEGAR KARLMENNIRNIR KOKKA
Mikil lifandis skelfing virðist það vera þakklátt starf að
kenna karlmönnum að kokka. Um það sannfærðist
Vikan, þegar henni bauðst að koma á síðasta
námskeiðskvöldið hjá karlmönnunum, sem Stella
Skaftadóttir hafði verið að kenna ýmsar eldhúslistir tvö
kvöld í viku um fimm vikna skeið. Þeir buðu þar til
veislu, sem þeir höfðu að sjálfsögðu sjálfir undirbúið,
og áður en upp var staðið var búið að halda þrjár ræður,
sem allar fjölluðu um ágæti Stellu, afhenda henni gjöf
og blómvönd og kyssa hana i bak og fyrir. Sjá frásögn í
næstu Viku.
FRAMHALDSSAGA EFTIR
AGÖTHU CHRISTIE
I næstu fjórum VIKUM höldum við jól með Agöthu
Christie á enskum herragarði. Við fylgjumst með
Hercule Poirot í leit hans að rauðum rúbín, sem stolið
var frá austurlenskum prinsi. Þetta er ósvikin jólasaga
með snjó og mistilteini, gömlum siðum og auðvitað
hinum ómisandi lostæta jólabúðingi. En þrátt fyrir
friðsæld og jólahelgi má alltaf búast við einhverju
óvæntu og dularfullu, þar sem kempan gamla Hercule
Poirot er staddur. Fylgist með í næstu fjórum
VIKUM.Agatha Christie svíkur engan.
HINN ÓMÓTSTÆÐILEGI
ROBERT REDFORD
Hann er 39 ára og hefur leikið í 19 kvikmyndum. Hann
er glæsilegri en Marlon Brando og Charles Bronson,
hefur meira aðdráttarafl en Jack Nicholson og Steve
McQueen, fær hærra kaup en Paul Newman og Clint
Eastwood og er dáðari en vinur hans Dustin Hoffman.
Öneitanlega ein skærasta stjarnan Hollywood í dag.
Það er auðvitað Robert Redford, sem lýst er á þennan
hátt. Og við fáum meira um hann að vita í næsta blaði.
VIKAN Útgefandi: Hilmir h.f. Ritstjórí: Kristin Halldórsdóttir. Blaðamenn: Guðmundur Karlsson,
Sigurjón Jóhannsson, Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson, Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim
Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing Síðumúla 12.
Simar 35320-35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900 fyrir 13 tölublöð
ársfjórðungslega, kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 13.650 í ársáskrift. Áskriftarverð greiðist
fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst.
48. TBL. VIKAN 9