Vikan - 25.11.1976, Síða 15
tímanum, held ég. Þau eru oft að
spyrja mig, hvað eigi að vera
i næsta þætti og þar fram eftir
götunum, en eru feimin við að
virðurkenna, að þeim finnst eitt-
hvað skemmtilegt, sérstaklega þau
eldri. Það er ekki fyrr en ég er að
labba frá þeim, að þau hrópa á eftir
mér,,að láta þetta og hitt koma
aftur í þættinum”, því að það sé svo
skemmtilegt.
— Hvaðaskoðanirhefurþúáupp-
eldismálum?
— Mér finnst feður taka allt of lit-
inn þátt í uppeldi bama sinna. Það
eru alltof mörg börn, sem varla
þekkjafeður sína, þvi að þeir eru allt-
af úti að vinna. En margir líta svo á,
að það sé aðeins skylda móðurinnar
aðsjáumbörnin, því miður. Égheld,
að barnaheimilisdvöl sé ekki slæm
fyrir krakka, svo framarlega sem
þau njóta ástúðar og öryggis heima
fyrir. Ööryggið er verst, en það
fylgir oft óreglu og öðrum erfiðleik-
um á heimilum. Staðreyndin er
nefnilega sú, að það eru ekki bömin
sem skapa vandamálin, heldur for-
eldrarnir. Venjulega tökum við allt
of lítið tillit til þarfa bamsins. Það
gera skólamir líka, og það er verst af
öllu.
— Mér finnst oft erfitt að upp-
fylla kröfur námsskrárinnar og
leyfa jafnframt hverjum og einum
nemenda að njóta sín, því að þeir
þurfa að fá útrás fyrir sköpunar-
þrána og gera ýmislegt eftir sínu
eigin höfði. En það er svo skrýtið,
að þrátt fyrir allt þá þurfa krakkar
aga, því að þau þurfa að fá að vita,
hvar þau standa.
— Ég hef þá trú, að með nýja
grunnskólanum breytist skólinn til
batnaðar og komi inn jákvæðum
viðhorfum gagnvart skólagöngunni
hjá þeim. Viðhorf kennara til barn-
anna hefur áreiðanlega breyst mikið
til hins betra síðustu árin, og
samband þeirra á milli orðið mun
manneskjulegra. Það er nauðsyn-
legra en margt annað að vekja upp
gagnrýni í krökkunum, því það þarf
að venja þau strax við láta ekki
bjóða sér hvað sem er. En okkur
skortir tiltakanlega gott barnaefni.
Það er alltof lítifs metið, sem gert er
fyrir börn. Maður heyrir oft setn-
ingar eins og — Hann skrifar nú
bara barnabækur, eða — Hún
kennir bara smákrökkum — og það
er eins og það sé nú lítill vandi. En
það er meiri vandi en flestir halda að
semja heppilegt efni fyrir börn,
enda tekst líka misjafnlega til.
— Það er mikil þörf fyrir góða
íslenskar bamabækur, því að það
sem gerist í umhverfi, sem börnin
þekkja, höfðar mest til þeirra. Eins
og mætti vanda námsbækurnar
betur. En þetta stendur nú allt til
bóta, að minnsta kosti lítur þetta
allt ógurlega vel út í nýju grunn-
skólalögunum.
— Að lokum Sirrí, hafið þið
einhverjar stóráætlanir á prjón-
unum?
— Nei, eiginlega ekki. En okkur
hefur lengi langað til þess að fara í
hnattsiglingu. Kannski við látum
verða af því einhverntíma í ellinni?
Á.K.
Nýr bíll
Litli sjálfskipti Volvobíllinn
Innlegg í lækkun rekstrarkostnaðar
Lítill, nettur og harður af sér.
Sjálfskiptur (variomatic).
4 cyl. vatnskæld vél.
47 eða 57 ha vél.
Volvo öryggisbúnaður.
Volvo 66 sameinar sparneytni,
öryggi, þægindi og gæði.
Árs ábyrgð (án tillits til ekins km.
fjölda).
Suðurlandsbraut 16 Reykjavík Sími 35200
48. TBL. VIKAN 15