Vikan - 25.11.1976, Qupperneq 16
Oraunsær
ótti
Phobia er óraunsær ótti við hluti
eða aðstæður, sem eru í rauninni
ekkert hættulegar.
Claustrophobiu (innilokunarkennd)
kannast flestir við, en aðrar tegundir
phobia eru ekki eins algengar.
Sumum veitist örðugt að skilja það,
að aðrar persónur verða oft
skelfingu lostnar, ef þær til dæmis
sjá hund eða kött. Þessi skilnings-
skortur gerir allar aðstæður mun
verri fyrir viðkomandi einstakling.
Sumt fólk fær alls ekki notið
lifsins til fulls vegna þess að það
þjáist af einhverri phobiu þ.e. sjúk-
legri hræðslu við einstaka hluti eða
aðstæður. Það fyrirfinnst fólk, sem
ekki hefur komið út úr húsi i ára-
raðir, og fólk, sem aldrei færi í
almenningsvagna, flugvélar eða
járnbrautarlestir, hvað sem í boði
væri.
— En vertu nú rólegur! Bull og
vitleysa þetta er ekkert, sem þú
þarft að óttast! Þetta skaðar engan!
Slikur er ..skilningurinn,” sem
flestir reyna að sýna viðkomandi
fólki. og hann gerir bara illt verra.
Auk þess ganga flest okkar í raun-
inni með a.m.k. eina eða fleiri
phobiur. Við verðum þó ekki alltaf
vör við það sjálf, ef við erum svo
heppin að lenda sjaldan í þeim að-
stæðum að phobian fái notið sín.
Að ganga með ophidrophobiu er
kannski allt 1 lagi fyrir Norður-
landabúa. Það þýðir nefnilega, að
viðkomandi sé hræddur við slöngur
og hvað er j)á auðveldara en að
forðast þær. Innfæddur Afrikubúi
væri hins vegar verr settur með
slika phobiu.
I Englandi hafa sálfræðingar og
geðlæknar reiknað út, að á milli 70
og 80% þjóðarinnar gangi með
einhverja tegund af phobiu. Þessar
tölur eru sennilegar mjög svipaðar
á Norðurlöndum. En það eru fáir,
sem leita sér lækninga við þessu, og
til allrar hamingju eru margar teg-
undir phobia alveg meinlausar.
Venjulega er phobia óþægilegur
ótti, en sjaldan eða aldrei ofsa-
hræðsla.
HVAÐ ER PHOBOPHOBIA?
Til eru afar margar tegundir af
phobium. Allar eru þær nefndar
fræðilegum nöfnum, og
skulu hér nefndar þær algengustu.
Agoraphobia: hræðsla sem gerir
vart við sig úti á víðavangi.
Ornitophobia: hræðsla við fiðraða
hluti og dýr.
Claustrophobia: innilokunarkennd.
Akrophobia: lofthræðsla.
Aerophobia: flughræðsla.
Arachnephobia: hræðsla við köng-
ulær.
Tricaidephobia: hræðsla við töluna
13.
Pyrophobia: eldhræðsla.
Demophobia: hræðsla við mann-
þröng og troðning.
Ailurophobia: hræðsla við ketti.
Algophobia: hræðsla við sársauka.
Astrapophobia: hræðsla við þrumu-
veður.
Erythrophobia: hræðsla við að
roðna.
Monophobia: hræðsla við einveru.
Nykophobia: myrkfælni.
Pathophobia: hræðsla við sjúk-
dóma.
16 VIKAN 48. TBL.