Vikan - 25.11.1976, Side 29
Ornar Sharif
Meira fyrir
bridge en konur
En samt ættuð þið að lesa það sem
hann hefur að segja um
konur og ástina.
kvaðst meira að segja sjálf hafa
afgreitt Omar með mestu ánægju.
Omar hefur sagt, að hann hafi
meiri ánægju af bridge en að gamna
sér við kvenfólk, en i Vín hefur hann
augsýnilega vantað spilafélaga dag-
inn, sem hann gekk á fund Edithar.
Omar, sem fær 25 þúsund bróf frá
aðdáendum sínum, er mikill sér-
fræðingur í öllu, sem snertir konur
og sumir segja, að aðeins kvik-
myndaleikarinn Eroll Flynn heitinn
hafi átt vingott við fleiri konur en
Omar.
Omar hefur látið hafa eftir sér eitt
og annað um afstöðu sína til
kvenna, og verður hér vitnað til
hans.
KONA Á EKKI AÐ REYNA AÐ
LEIKA HLUTVERK KARL
MANNSINS.
,,Ég veit af langri reynslu, að
margar konur hafa meiri gáfur til að
bera en makar þeirra, en oft eru
gáfur þeirra af sérstökum kvenleg-
um toga. Barbra Streisand hefur
einmitt slíkar gáfur. Við elskuð-
umst í fjóra mánuði, og hún gerði
enga tilraun til að leika hlutverk
hins sterka. Enda þótt hún hafi til
að bera mjög sterkan persónuleika,
og mikinn þokka, fannst mér hún
við fyrstu sýn mjög ófrið.”
ÁNÆGÐUR í ÁSTLAUSU
HJONABANDI.
,,Ég var giftur Fatem Harama í
tíu ár, og hjónabandið byggðist
ekki á ást. En ég var samt
ánægður. Er það ekki í sjálfu sér
einskonar ást? Aðrar konur? Þær
verða að gera sér grein fyrir að ég
kveð einn góðan veðurdag. Ég get
ekki bundist manneskju til lang-
frama.”
ÁST í KVIKMYNDUM.
,,Ég veit ekki, hvað ég hef elskað
margar leikkor.ur. Fyrir framan
kvikmyndavélina ber mér að elska
mótleikarann í viku eða mánuð.
Þegar kvikmyndatökunni er lokið,
þá á þessi ást að vera úr sögunni!
Ég get ekki fellt mig við þetta — ég
er ástfanginn af sjálfri ástinni!”
Á efri myndinni er Omar með
Nathalie Delon og á þeirri neðri með
Julie Andrews.
Omar i fylgd með Barbara Bouchet.
Omar skólar við Karin Dor (efri
mynd), en neðri myndin sýnir hann i
vinsamlegum viðræðum við ónafn-
greinda stúlku.
EF ÞÚ REKST Á KONU, SEM
ROÐNAR...
„Bandarískar konur vilja ráða
yfir karlmanninum. Ég sem suður-
landabúi get ekki fellt mig við það.
I mínu föðurlandi er þetta öðruvísi.
Þar er konan undirgefin, og þar sér
maður konur roðna. Ef þú rekst á
konu, sem roðnar, þá áttu að
umgangast hana eins og dýrgrip.
Bandarískar konur roðna ekki. Þær
eru samt margar mjög fallegar, en
þær vilja róða ferðinni. Ég get ekki
fellt mig við að kvænast konu, sem
leggur meira kapp á stjórnsemi en
vináttu. Franskar konur eru allt
öðru vísi, miklu kvenlegri. Franska
konan er ekki hrædd við að sýna
veikleika sinn. Þessvegna elska ég
franskar konur, og þá fyrst og
fremst konurnar í París.”
KARLMENN Á MORGNANA,
KONURÁ KVÖLDIN.
„Mér finnst karlmenn yfirleitt
áhugaverðari en konur í samræðum
um íþróttir, stjórnmál og ástir. Þeir
ræða um þessi efni án þess að vera
leiðinlegir. Þetta er öðruvísi með
konur, þær eru yfirleitt á höttunum
eftir skjalli eða hjónabandstilboð-
um. Þegar ég vakna á morgnana vil
ég helst tala við karlmenn í simann.
En á kvöldin vil ég gjarnan tala við
konur i sima...
48. TBL. VIKAN 29