Vikan - 24.03.1977, Blaðsíða 42
Hadda
fer í búðir
Þessi öryggisstóll i bilinn er með
sérstökum gæðastimpli frá neyt-
endasamtökum Rinarlanda, á-
samt viðurkenningu frá þýska
bifreiðaeftirlitinu. Stóllinn er úr
einangrunarplasti með borði
fyrir framan barnið, sem er jafn-
framt öryggisbelti. Stóllinn fæst
i versluninni Varðan, Grettis-
götu 2 a, og kostar kr. 12.900.
Þessi skæn eru með plast-
höldum og blöðin úr þýsku
ryðfriu gæðastáli, og á ekki að
þurfa að brýna þau. Skærin
kósta aðeins kr. 1.775 og fást í
versluninni Hamborg, Lauga-
vegi 22, Hafnarstræti 1 og
Bankastræti 11.
Þessir fallegu borðdúkar fást í
verluninni Vogue, Skólavörðu-
stíg 12. Háaleitisbraut 58,
Strandgötu 31, Hafnarfirði og í
Glæsibæ. Dúkarnir eru sænskir
og fást i fleiri litum og mynstr-
um. Þeir eru til í tveimur stærð-
um. 155 sm og 180 sm, og eru úr
100% bómull.
Þetta ljós er finnskt. Það fæst
ósamsett, og er leikur einn fyrir
hvern sem er að setja það
saman. Ljósið kostar kr. 2.319
og fæst i versluninni Roði,
Hverfisgötu 98.
Þessi failegu barnaföt eru sænsk
og eru væntanleg um mánaða-
mótin apríl - mai i verslunina
Bangsa v. Klapparstig. Fötin
eru mjög vönduð og með gæða-
stimpli frá sænskum neytenda-
samtökum.
hafði hins vegar verið svo vel
útilátinn, að ég hafði litla sem enga
matarlyst.
Þegar Randal kom i sina venju-
legu eftirlitsferð i borðsalinn, var ég
að biðja þjóninn um að færa mér
kaffi út á veröndina.
„Hafðu það fyrir tvo,” sagði
hann og gekk á eftir mér út.
„Var ferðin til Marsalfornflóa
skemmtileg?” spurði hann.
„Já, þakka þér fyrir,” svaraði ég,
en bætti síðan við. „Ég fór með
Michael og sýndi honum bóndabýl-
ið.”
Randal virtist vart trúa sínum
eigin eyrum og svipur hans bar vott
um gremju, er hann sagði stuttur í
spuna. „Hann hefur sjálfsagt haft
gamanafþví.”
Er þjónninn kom með kaffið
pantaði Randal koníak handa okkur
báðum og þegar við vorum orðin ein
aftur sagði ég.,,Þetta hótel þitt er
mjög vistlegt. Mig langar til þess
að þú vitir það vegna þess að ég er
að hugsa um að fara héðan
bráðum.”
„Ætlarðu að fara aftur til
London?” spurði hann vonsvikinn.
„Eða til Möltu?”
„Hvorugt,” sagði ég. „Ég hef
ákveðið að flytja á bóndabýli föður
mins.” Ég dreypti á koníakinu og
forðaðist að líta í augu Randals.
„Þar er allt sem ég þarfnast, og ef
satt skal segja, fæ ég enga peninga
fyrr en búið er að ganga frá málum
mínum.”
„En þér er velkomið að dvelja hér
áfram og þú getur síðan greitt
reikninginn hvenær sem þér hent-
ar.”
„Þetta er mjög fallega boðið, en
mér er ómögulegt að þiggja það.”
„Já, en það er engin leið fyrir
þig að búa þarna á bóndabýlinu,”
sagði Randal ákveðinn. „Það er
ekki viðeigandi fyrir stúlku að vera
þar ein.”
„Það sagði Michael einnig.”
„Öjá, Michael,” sagði hann og
roðnaði. „Ertu búin að gera það
upp við þig, hvort þú vilt krækja í
hann aftur eða ekki?”
„Það er ekki undir minni
ákvörðun komið,” sagði ég reiði-
lega. , ,Ég er ekkert barn og Michael
er ekkert leikfang.”
„Rétt er það,” sagði Randal og
stundi. „En gerðu það fyrir
y.
utigogn
llentugur stóll skiptir tniklu
um heilsu yöar og vellíöan.
Landsins bezta úrval og þjónusta.
Smiðjuvegi 5
Kópavogi
Sími 43211
TR einnig án arma
Vélritunarstóll
Tilvalin fermingargjöf
42 VIKAN 12. TBL.