Vikan - 01.09.1977, Síða 9
r
Rigning hefur aldrei komið fyrir
Atacama auðnina í Chile.
★
i Bretlandi eru tvær sauðkindur á
hvern íbúa. Rollurnar hafa sex
sinnum fleiri fætur, en að öðru
leyti....
★
Á veitingastað í London veðjaði
herra Fuller við vin sinn, og
sagðist geta séð sjö kirkjuturna frá
heimili sínu. En á heimleiðinni gat
hann ekki komið auga á fleiri en
sex. Herra Fuller var enskur herra-
maður og brá því skjótt við og lét
byggja sjöunda turninn á nálægri
hæð.
★
Árið 1970 komust kennarar við
barnaskóla nokkurn í Englandi að
þvf, að sum barnanna gátu ekki
etið nestið sitt með hníf og gafli,
því þau höfðu vanist því að borða
,,fisk og kartöflur" beint úr
umbúðunum.
★
London Express Service.
★
Siðferðispostular miðalda voru
sammála um að eyru kvenna yrði
að hjúpa, því að getnaður Maríu
meyjar hafði að þeirra áliti farið
fram um eyrun.
★
Þekktur breskur fjöllistamaður
kallaði sig ávallt nafninu Nosmo
King. Hann hafði nefnilega séð
þetta stórum stöfum á dyrum,
sem hann átti leið um. No
smoking.
★
í Sviss er það talinn hreinn
dónaskapur að skella á eftir sér
bíldyrum.
I NÆSTU VIKU
VIÐTALVIÐ RAUSNARHJÓN
Sjálfsagt muna margir eftir veislu mikilli, sem haldin var þann 17. júní s. I. i einum
fámennasta hreppi landsins. Þetta var sannkölluð veisla aldarinnar, en það var Kjartan
Halldórsson frá Bæjum á Snæfjallaströnd, sem hélt upp á sextugsafmæli sitt og 30 ára
hjúskaparafmæli sitt og konu sinnar Kristínar Þorsteinsdóttur. Til veislunnar var boðið
öllum íbúum sveitarinnar og einnig kom fjöldu manns úr Reykjavík og annars staðar að.
Það hefur ýmislegt drifið á daga þeirra Kristínar og Kjartans, og í næstu Viku birtist
fyrri hluti ítarlegt viðtal við þessi heiðurshjón.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kxistin llalldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson.
Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Krístinsson. Ljósmyndari:
Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn og auglýsingar í Síðumúla 12. Símar
35320—35323. Afgreiðsla og dreifing i Þverholti 11. Simi 36720. Pósthólf 533. Verð i lausasölu kr. 400.
Áskriftarverð kr. 1500 pr. mánuð, kr. 4500 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 8460 fyrir 26 tölubl.
hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, maí, ágúst.
35. TBL. VIKAN 9