Vikan


Vikan - 01.09.1977, Side 10

Vikan - 01.09.1977, Side 10
— Þetta á að vera spurniny um vorið, en leyfið mér að bera fram persónulega spurningu fyrst: Hvað ætlið þér að gera í kvöld? POSTIKIIW MINNIMÁTTARKENND Sæll Póstur! Mig langar að biðja þig að ráða fram úr vandamáli fyrir mig, sem mér finnst mjög erfitt viðureignar. Þannig er mál með vexti, að ég hef alltaf alveg ofsalega minni- máttarkennd. T.d. finnst mér alltaf þegar fólk talar við mig, að það geri það bara fyrir kurteisis- sakir, og svo um leið og einhver annar kemur, þá er ég ekki til. Meira að segja finnst mér oft, að bestu vinkonum mínum finnist ekki einu sinni taka því að hlusta á það, sem ég segi. Ég get ekki lýst því, hvað mér líður oft illa út af þessu, og ég vona að þú getir fundið eitthvað gott ráð handa mér. Hvað lestu úr skriftinni? Með fyrirfram þökk, XXX P.S. Hvert er hægt að skrifa til að eignast pennavini í Englandi? Pósturinn veit nákvæmlega, hvernig þér Höur, því hann hefur einmitt fengið þessa tiifinningu sjáifur. Ég heid að flestir gangi i gegnum þetta stig einhverntíma i lífinu, en mest á aldrinum 13-25 ára. Það eina, sem þú getur gert. er að byggja upp sjá/fstraustið — þú ert alveg örugglega ekki verri en vinkonur þínar, og senni/ega mega þær ekkert við því að /íti/svirða þig svona. En þetta gengur yfir, — það er ég a/veg sannfærður um, a. m. k. var þetta bara tímabundið hjá mér og fleirum.sem Pósturinn veit að hafa þjáðst af þessu sama. Þetta er erfitt meðan það varir, en örvæntu ekki, það kemur dagur eftir bennan dag. Skriftin ber með sér að þú sért góðum gáfum gædd, kannski svolítið ör í skapi annaö veifiö, en g/aðlynd að eölisfari... þótt þú sért svartsýn í augnablik- inu. Ég hef því miöur ekki nafn á pennavinaklúbbi í Englandi, en þú getur skrifað til alþjóðlegs penna- vinaklúbbs i Finnlandi, og þeir geta útvegað þér pennavini frá Englandi. Heimilisfang þeirra er: INTERMA TIONAL YOUTH SER- j VICE, TURKU, FINLAND. - Og svo get ég ekki stillt mig um að hæla skriftinni þinni, sem er alveg sérstaklega falleg og skemmtileg. ALVEG í VANDRÆÐHM Kæri Póstur, Ég hef aldrei skrifað þér áður, en ég er alveg í vandræðum. Ég og vinkona mín erum báðar hrifnar af sama stráknum og ég hef verið með honum, en nú vill hann hana heldur. Hvað á ég að gera? Ég hef sofið hjá honum, en ekki vinkona mín. Ég held hann sé nú svolítið hrifinn af mér ennþá. Hvernig eiga vogin og bogmaður- inn saman? En tvíburinn og bogmaðurinn? Hvað lestu úr skriftinni? Hvað heldurðu að ég sé gömul? Þakka þér fyrir Póstinn, hann er mjög góður. Ég vona að bréfið lendi ekki í þessari frægu ruslakörfu. Ein að norðan P.S. Ekki birta nafnið mitt. Viltu segja í næstu Viku heimilisfang þitt og hvers vegna maður þarf að segja, hvað maður heitir. Það er mjög einfa/t má/, hvað þú átt að gera! Nú ferð þú á stúfana og finnur þér einhvern annan ti/ að vera hrifin af. Má/ið er leyst. — Fyrst pilturinn vi/l vinkonu þína heldur, þá er hann nú ekki svo óskaplega hrifinn af þér — ekki einu sinni svolítið hrifinn af þér. Svo áttirðu að sjálfsögðu ekki að sofa hjá honum, þú ert alltof ung ti/ s/íkra hluta. Vog og bogmaður eiga allsæmilega saman, hann undrast hve róleg þú ert og þú ræður yfir honum - (ef þú vilt eiga hlýðinn 'mann er þetta ágættl). Tvíburi og bogmaður eiga alveg sérstaklega ve/ saman, þau elska Hfið á sama hátt og hafa nóg að gefa hvort öðru. Skriftin ber vott um ákveðni og heiðarleika. Ætli þú sért ekki svona 75 ára. — Heimilisfang Póstsins er: Pósturinn, c/o Vikan, Síðumúla 12, Reykjavík. Og að lokum eins og ég margoft sagt, (geri reyndar lítið annað þessa dagana), þá er það bara almenn kureisisreg/a að undirrita bréf ful/u nafni. 10VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.