Vikan


Vikan - 01.09.1977, Side 13

Vikan - 01.09.1977, Side 13
hjá sér. Þegar ég frétti af því, fannst mér hugmyndin ekki svo fráleit, og reynandi væri að sækja um. Þegar ég sótti um, var ekkert starf laust, en Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri S.V.R. var svo elskulegur að bjóða mér og vinkonu minni, sem einnig er með meirapróf, að æfa okkur að aka vögnunum eins og við vildum. Ekki leið á löngu þar til rööin kom aö okkur. — Hvernig var ykkur tekið af hinum bílstjórunum? — Þeirtóku okkur bara vel. Kannski hefur einum og einum fundist sér misboðið, þar sem þetta væri karlmannastarf, - en meirihlutinn tók okkur mjög vel. Allir voru boðnir og búnir að hjálpa og leiðbeina. — Hvað sögðu vinirnir, þegar þú ákvaðst að taka meirapróf? - Ja, strákarnir höfðu nú ekki mikla trú á þessu, og sögðu mér að tala aftur við sig, þegar ég hefði fengið starf sem bílstjóri! Hvernig fannst þér farþegarnir taka því að sjá kvenmann við stýrið? Flestir urðu hissa, og svipur þeirra bar með sér, að þeir væru hálfsmeykir, - en vildu nú samt reyna! Það hefur enginn snúið við á leið upp í vagninn hjá mér! Varstu taugaóstyrk í upphafi? Svona frekar. Annars var ég víst taugaóstyrkari en ég gerði mér sjálf grein fyrir, því farþegar, sem ég er farin að þekkja, sögðu mun á akstrinum hjá mér fyrsta daginn og svo t.d. mánuði síðar. Nei, starfið er ekki erfitt. Það er ekki erfitt að aka strætisvagni, en far- þegarnir geta verið erfiðir og þrasa tiltölulega mikið, og virðast ekki skilja, að það er ekki bílstjórinn, sem ræður umferðinni í borginni! Við gerum okkar besta til að halda tíma, og það þarf að gera mörgum til geðs, en mér finnst samt ekki mikil streita fylgja þessu starfi. Ég var svolítið kvíðin, þegar ég byrjaði, að mér tækist ekki að hafa hemil á unglingunum, en það hefur gengið mjög vel, og þeir hlýða mér ekkert síöur en karlmönnum ! Heldurðu að fólk sé ekki farið að venjast því núna að sjá kvenmann við stýrið? Jú, alveg tvímælalaust. Það er helst fólk utan af landi, sem hefur ekki séð okkur fyrr, sem rekur upp stór augu. Gætirðu hugsað þér að vinna við þetta allan ársins hring? Nei, ekki nema þá að vinna eitthvað annað með. Ég gæti ekki hugsað mér að gera þetta eingöngu að framtíðarstarfi. Það er ekki algeng sjón að sjá kvenmann með bensínslöngu í hönd, en þó eru nokkrar stúlkur sem vinna slík störf hjá Shell. Við náðum tali af einni þeirra, Ásu Hreggviðsdóttur, en hún vinnur á bensínafgreiðslunni við Birkimel. Ása er 17 ára gömul, og fer í M. R. í haust, og er þetta því bara sumarvinna hjá henni. Hvað kom til að þú valdir þér þetta starf? Ævintýralöngun! Ég vildi ekki fara að vinna í frystihúsi, og langaði að gera eitthvað sem enginn eða fáir höfðu gert áður. Voru engin vandkvæði á að fá þetta starf? Nei, alls ekki. Að vísu sótti ég umþetta starf í fyrra, en var þá sagt að ég væri of ung, svo ég sótti bara um aftur nú í sumar og hlaut starfið. Er þetta skemmtilegt starf? Nei, alls ekki. Það er ekkert spennandi við þetta. Þó er mjög gott hversu mikið er hægt að dveljast úti við, sérstaklega þegar veðrið er gott. — En í rigningu og slagveðri? - Það skiptir engu máli, ég fer þá bara í regngallann minn, svo ég verð ekkert vör við kuldann. — Hvernig taka viðskiptavinirnir því að sjá stúlku koma að afgreiða þá? Það er misjafnt. Mörgum er ekkert vel við að kvenmaður sé að fara að fikta í bílnum þeirra og eitt sinn kom hingað miðaldra maður, sem hreinlega neitaði að láta mig afgreiða sig. Það átti að mæla olíuna og setja bensín á, en hann sagði bara: ,,Ekki þú. Ég vil fá karlmann!!** — Flestir taka ekki einu sinni eftir því að ég er kvenmaður, og segja: ,,Fylla VINUR” og það tekur því ekki að leiðrétta það! Nú, svo koma hingað ,,gæjar" á 35. TBL.VIKAN 13

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.