Vikan


Vikan - 01.09.1977, Síða 36

Vikan - 01.09.1977, Síða 36
mE/T um FÓLK NOfíSKT BLAÐ spuröi nokkra aðila hvaö þeir gerðu tii þess aö sofna, ef svefn/eysi steðjaði að þeim. Hér koma nokkur athyglisverð svör: ,,Hafa sterkan bjór við hendina. Það er gamait og þekkt ráð viö svefn/eysi." ,,Ég byrja þá að hugsa um það sem ég þarf að gera daginn eftir — trúi ekki á svefnmeðul og vii heidur vera án svefns en taka meðul." ,,Ég hef bókina Doktor Zivago á náttborðinu. Það er besta svefnmeða/ið mitt." ,, Ég laga koddann og hugsa h/ýtt ti/ fja/lakofans míns. Það hjá/par yfir/eitt." ,, Ég hef vissa kvöldkæki og læt hugann smám saman róast við hitt og þetta sýsl áður en ég leggst til svefns og það virðist gera sitt gagn." ,,Ef ég get ekkisofnað þá erþað vegna þess að ég hef unnið of mikið. Besta ráðið er þviað finna rétt hlutfall milli vinnu og frítima og endilega að hvílast frá vinnuþönkum áður en lagst er til svefns." EFTIfí M/KLAR samningaum- leitanir og talsverðar geðshræringar, komu íslensku handritin aftur heim á eyjuna sína. En þar með eru ekki allir h/utir komnir á sinn stað að áliti íbúa á eyjum I Atlantshafinu, sem nú taka ekkilengur sem sjálfsagðan hlut að Kaupmanna- höfn sé miðpunktur alheimsins. Þvert á móti hafa örlög handritanna endurnýjað von íbúanna í Kirkjubæ í Færeyjum, um að þeir geti fengið aftur gömlu kirkjustólana sina, sem nú eru á Þjóðminjasafninu i Kaupmannahöfn. Þessi frásögn er í nýlegu dönsku vikublaði, og heidur áfram: Krafa þess efnis hefur nú verið borin fram af Só/vá Patursson, sem 1968 giftist konungsbónd- anum Páli Patursson. Tengda- faðir hennar var hinn nafnkunni konungsbóndi Jóhannes Patursson, en á undan honum voru uppi 14 aðrir konungsbændur í Kirkjubæ, af sömu ætt, sem annaðhvort höfðu fornafnið Jóhannes eða Páll. Sólvá hafði lokið námi sem hjúkrunarkona i Árósum, áður en hún giftist 16. ættliðnum af þessari /ífsseigu ætt. Árið 1874 tók Þjóðminjasafnið gömlu kirkjustólana úr sóknar- kirkjunni, undir því yfirskini að þeir þörfnuöust lagfæringar og þeir lægju undir skemmdum í gömlu kirkjunni. En þáverandi konungsbóndi í Kirkjubæ mótmæ/tiþvísvo harðlega að stólarnir yrðu fjarlægðir, að lögreglan í Þórshöfn varð að blanda sérí málið, svo Þjóðminjasafnið fengi vilja sínum framgengt. Ári síðar kom upp pínleg aðstaða í Þjóðminjasafninu. Safnvörður æt/aðiað reka á brott mann, sem af virðingarleysi hafði sest í einn kirkjustólinn á safninu. — ,,ÆtHð þér að banna mér að sitja hér?" spurði hinn frakki maður. ,,Ég var vanurað sitja i svona stól í fangiafa míns, þegar ég varbarn." Yfirmaður safnsins, sem var kallað á, gerði fljótlega upp við sig, að það yrðu að gi/da sérstakar reg/ur fyrir þáverandi konungsbónda, Jóhannes Patursson. — Nú er kominn tími ti/ að stólarnir komi aftur til Kirkju- bæjar, segir Sólvá Patursson. Í Þjóðminjasafninu sjást þeir ekki innan um allan fjöldann, en hér söknum við þeirra. Og fyrst þeir þoldu að vera í Kirkjubæ frá 1400 til 1874, ættu þeir líka að þola að vera sendir aftur, með þakklæti fyrir lánið. ,, Fyrst Ísland gat fengið uppfyllta réttmæta ósk, ætti okkur Færeyingum einnig að takastþað," segir Sóvá Patursson að lokum. jgsMyBWD ÞEGAR ÞETTA btað kemur ykkur fyrir sjónir er sýningin HeimiHð 1977 i fullum gangi. Þetta er þriðja sýningin af þessu tagi og hafa þær verið mjög vinsæ/ar meðal áhorfenda, enda vel úr garði gerðar. Það þarf vartf að hvetja fólk til að sækja þessa sýningu; eitt mesta áhugamál okkar flestra er að eiga sem hlýlegast og fallegast heimili. 36 VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.