Vikan


Vikan - 01.09.1977, Side 40

Vikan - 01.09.1977, Side 40
Hárlagningarvökvinn €) fyrir blástur: iiiíbrin Inform í litlu, fjólubláu og grænu glösunum.fær hárið til að sitja alveg eins og þú vilt hafa það,- eðlilega og með lyftingu. Inform - fyrir dömur og herra. bílstjóranum pundseðil og leiðbein- ingar. Eví læddist aftur inn til sin. FRANSISKA virtist koma sjaldn- ar. og kvöld eitt bauð Adam sjálfum sér i kaffi. Hann sat á legubekknum og horfði út um gluggann til að virða fyrir sér laugina. „Fransiska og ég höfum slitið trúlofuninni, það var ákvörðun af beggja hálfu." sagði hann skyndi- lega. Hún varð undrandi. „En af hverju?” „Þú og , þinar frjálsu ástir,” svaraði hann án biturleika. „En hvað kemur það mér við?” spurði hún, rugluð. „Sennilega ekkert. Ég var bara farinn að sjá, að hvað Fransisku snertir, er ekkert frjálst. Allt, sérhver púði, sérhver tilreiddur matur, jafnvel sérhver koss hafði verðmiða." Hann stóð upp. „Ekk- ert kaffi, þrátt fyrir allt, takk. Ég þarf að leiðrétta verkefni. Ég vildi bara segja þér, hvernig málin standa, það er allt og sumt.” Hann var ekki sú manngerð, er leitar sér huggunar, en hún vildi gera eitthvað, sem sýndi, að hún skildi, að þau væru á sama báti — verðandi elskendur, en höfðu engan að elska. Nú var tími til kominn að hafa matarboðið fyrir Bristow hjónin — og Adam. Hana langaði til að hjálpa Adam strax, hún valdi föstudaginn. Bristow hjónin voru yfir sig hrifin, og Adam lét hana fá lykilinn sinn og leyfi til að nota eldavélina. Hún ætlaði að útbúa alveg sérstakan pottrétt og súkkulaði- búðing. Nokkurra mánaða æfing í eldamennsku hafði stórbætt hæfn- ina. Þegar Bristow hjónin komu klukkan sex, var Adam ekki kominn heim. Og klukkan 15 mín. eftir í sjö ákvað hún, að þau yrðu að bvrja án hans. Hún hlustaði þó eftir fótataki hans, undarlega óróleg. Klukkan var hálf átta, þegar hann kom, fölur af þreytu og virtist yfirbugaðri en hún hafði séð hann áður. * „Fyrirgefðu,” sagði hann. „Ég tafðist.” „Það gerir ekkert til, flýtti hún sér að segja. „Ég hélt heitu.” Þegar hann hafði borðað og þau höfðu öll fengið sér kaffi, fóru Bristow hjónin full af þakklæti. Þá sagði Eví alvarlega: „Adam, það hefur eitthvað komið fyrir?” Hann kinkaði kolli og kveikti sér í sigarettu. „Einn nemandi minn vinnur að stúdentsprófi. Hún er frábær nemandi, og það var búist við miklu af henni. Hún átti að fara í háskóla.” „Hvað gerðist?” „Hún er ófrísk,” sagði hann niðurdreginn. „Ó, aumingja stúlkan. Hún hlýtur að vera hræðilega miður sín.” „Hún er það. Hún varð eftir og sagði mér þetta. Foreldrar hennar vildu, að ég kæmi til þeirra, svo að ég gerði það auðvitað. Þau eru fastákveðin í, að hún giftist föður barnsins strax, og þetta táknar auðvitað, að hún fer ekki í háskólann.” „Og elskar hún hann?” „Ekki held ég það. Bara eitt af þessum litlu ævintýrum, laust í báða enda, sem þú talaðir einu sinni um. En bönd hafa myndast.” „Ég talaði með hnakkanum í þá daga.” Hann brosti, en það var hryggð í augum hans. „Ég hálf elskaði þig strax, þó þú værir ung og full af sjálfstæði.” „Hálf elskaðirðu mig?” „Já.” HÚN sagði: „Og nú hafa brum- knapparnir á trénu mínu fyrir utan sprungið út, og ég er sex mánuðum eldri. Það hefur verið gæfa mín, að það varð aldrei af þessum frjálsu ástum mínum, því ég veit núna, að fáir hlutir eru raunverulega frjálsir, síst af öllu ást.” „Ég giftist þér ekki.” „Af hverju ekki? Hálf elskarðu mig ekki einu sinni núna?” „Eví, ég ætla að kyssa þig, raunverulega kyssa þig i fyrsta sinn, og þá komumst við að þvi.” Seinna lágu þau saman á legubekknum. Þú munt giftast mér, er það ekki, Adam? Seint og um síðir, að minnsta kosti.” „Ég efast um, að ég geti beðið svo lengi,” sagði hann. Seinna sagði hún: „Erum við ekki heppin? Við byrjum með tveggja herbergja ibúð og baðher- bergi að auki.” „Við munum rifast um baðher- bergið.” „Já, og um tónlistina." „Við gerum fjölskylduáætlun og eignumst svo barn af slysni." „Við komum til með að þarfnast eigin húss, og við munum þurfa að spara og nurla.” Þau horfðu þegjandi á tunglskin- ið silfra lauf trésins. Þá sagði Eví hamingjusöm: „Þetta hljómar dásamlega. Það er vel þess virði að fórna miklu fyrir það, sem er svona unaðslegt....” Endir. 40VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.