Vikan - 01.09.1977, Síða 49
Þetta var mjög vistlegt herbei , ,
smekklega búið húsgögnum. ’íak
við stórt skrifborð sat George
Lorimer í stól með háu baki og
virtist önnum kafinn við að opna
bréf.
— 6engur fram af mér. Aldrei
hefði mig órað fyrir, að þér yrðuð
viðskiptavinur minn. Hvað get ég
gert fyrir yður?
— Jæja. Þér eruð sem sagt
„Enterprises Limited?”
— Það má orða það svo, já. Ég
vinn sjálfur erfiðustu verkin.
— Hvaða verk?
— Hlustið á, sagði Lorimer og
slétti úr bréfi, sem hann var
nýbúinn að taka upp: „Enterprises
Limited.
Ég hef lesið auglýsingu yðar og
spyr nú, hvort þér getið hjálpað
mér. Maðurinn minn hefur verið
mér fráhverfur í seinni tíð, og ég
hefi grun um, að önnur kona sé með
í spilinu. Ég vil ekki skilja við hann,
en mér finnst ég eiga rétt á að vita,
hvað hann hefur fyrir stafni..”
— Þér þurfið ekki að lesa meira,
greip McLean fram i fyrir Lorimer.
— Viljið þér vera svo góður að
gera grein fyrir þvi, hvað fyrirtæki
yðar starfar?
— Ég er að reyna að segja yður
það. Ég hjálpa fólki að leysa
vandamál sín. Ég gef hugmynda-
snauðu fólki góð ráð.
— Ég sé, að þér hafið sima, en
nafnið er ekki í simaskránni.
— Ég var of seinn að láta setja
það í síðustu skrána. Þetta fyrir-
tæki er nýstofnað, en virðist
sannarlega velkomið. Viljið þér lita
á auglýsingarnar, sem ég sendi frá
mér?
— Nei, takk. Það leiðir ekki til
neins.
— Liklega ekki, nei. — Fyrst hélt
ég, að þér væruð kominn til að gera
mér gramt í geði — vegna þess sem
áður er skeð. En ég hefi líklega ekki
rétt fyrir mér.
— Nei, ég kom reyndar bara til að
aðvara yður og allra mildilegast
ráðleggja yður að halda yður við
lögin. Annað borgar sig ekki, þegar
til lengdar lætur.
— Það er nú einmitt mín skoðun
líka, sagði Lorimer. — Þess vegna
stofnsetti ég þetta fyrirtæki. „Góð
þjónusta” er kjörorð okkar, góð
þjónusta við alla. Ef t.d. tengda-
móðir yðar kvelur yður, getum við
bjargað málunum, nú eða ef þér
viljið ávaxta fé og treystið ekki
veðlánurun, þá lumum við á
ráðleggingum.
ACLEAN gat ekki still sig
um að brosa. Lorimer var
óforbetranlegur. — Ég skal ekki
eyða meira af tíma yðar, sagði
hann. — Ég er sjálfur dálítið önnum
kafinn. Verið þér sælir.
— Já, bless, bless, sagði Lorim-
er. — Ef þér eigið leið hjá, væri
ánægjulegt að sjá yður aftur.
Á Jeiðinni niður stigann mætti
McLean ungri stúlku, sem var á leið
upp. Hún var há og grönn, og hann
sá, að hár hennar var rauðbrúnt og
augun blá eins og gleym-mér -ei.
Hann minntist þess, sem Walters
hafði sagt honum.
Q EORGE Lorimer horfði á
McLean út um gluggann.
Svo var hurðin opnuð, og rauð-
hærða stúlkan kom inn.
— Á hvað horfðirðu? spurði hún.
— O — það er ekkert.
— Það skyldi þó ekki vera
maðurinn, sem ég mætti í stigan-
um, sem v'-Vur forvitni þina?
— Sá liann þig?
— Já, svo framarlega, að hann sé
ekki blindur.
— Ég get fullvissað þig um, að
það er ekkert athugavert við sjón
hans. Mér er illa við, að hann komi
og snuðri hér núna.
— Hver er hann annars?
— Þú þekkir hann ekkert. Við
skulum ekki tala meira um hann.
Komstu því í verk, sem ég bað þig
um, Pamella.
— Já, en það var útilokað að fá
herbergi við hliðina, svo að ég varð
að taka þriðja herbergi frá. Það
verður auðvitað erfiðara, en ég efast
ekki um, að þetta heppnast.
— Það verður að heppnast, sagði
hann með áherslu. — Það eru
þúsund pund í veði.
Pamela kveikti sér i vindlingi og
sat hugsi drykklanga stund. —
George, þetta er vonandi ekki
hættulegt?
— Hættulegt? Hvað átt þú
eiginlega við?
— Ég vil ekki taka þátt i neinu.
badedas i næsta bað.
Badedas inniheldur kastaníusafa sem hefur hressandi
áhrif og bætir litarháttinn.
Badedas er sápulaust hreinsiefni úr jurtaolíum, opnar
svitaholurnar og lætur húðina anda.
Umboö H. A.Tulinius heildverzlun
Badedas inniheldur engin lútsölt og eyðir því ekki
varnarsýru líkamans.
35. TBL. VIKAN49