Vikan - 22.12.1977, Blaðsíða 11
kannski foreldra stelpunnar, sem
reyndist minni dóttur best, meðan
það stóð, en eiginlega veit ég
ekkert, hvað gera skal. Þú hugsar
eflaust meö þér, að þetta ættum
við hjónin að leysa í sameiningu,
en það er nú svo, að hann hefur
aldrei viljað blanda sér í uppeldi
barnanna, telur það algjörlega í
mínum verkahring, svo að ég oröa
þetta ekki einu sinni við hann. Það
þýðir lítið að reyna að stappa
stálinu í stelpuna, hún er eins og
vængbrotinn fugl, og svo er hún á
viðkvæmasta aldri og er dauð-
hrædd við afskiptasemi mína. Það
tók mig langan tíma að komast að
því, hvað um væri að vera, og ég
er ekki einu sinni viss um, að hún
hafi fyrirgefið mér að hafa komist
svona nálægt henni.
Þetta er nú oröið lengra en ég
ætlaði, og mér finnst heldur
ólíklegt, að þú viljir birta svona
langt bréf. Enda máttu stytta það
eða birta bara svar. En ef þú kannt
einhver ráð, þá yrði ég þakklát.
Með bestu kveðjum.
M. K.
Mér dettur ekki í hug aö stytta
bréfiö þitt, enda er ég viss um, aö
þetta vandamál þekkja ýmsir. Það
er staöreynd, aö það er smámál að
flytja húsgögn /andshorna á milli,
en þaö er stórmál að flytja börnin,
jafnvel bara á mi/li hverfa i ekki
stærri borg en Reykjavík er.
Mitt ráö er, að þú fáir dóttur
þína flutta í annan skó/a. Ég held,
aö eftir þaö skipbrot, sem hún
hefur beðiö þarna, sé nánast
ómögulegt fyrir hana að ná sér þar
aftur á strik. Faröu til skólastjóra
þess skóla, sem næstur er, og
ræddu þetta viö hann, lýstu fyrir
honum, hvernig þetta gekk f
hinum skólanum, og ég trúi ekki
ööru en aö hann sýni skilning og
setji hana / bekk, þar sem hún á
betur heima. Ef dóttir þln kemst
aftur I hóp jafningja, er ég viss
um, aö hún nær sér aftur á strik.
Ég held, að það sé einnig mjög
æski/egt, ef hún getur sinnt
einhverjum áhugamá/um utan
skólans, til dæmis tekið þátt /
íþróttum, dansi.músík eða ein-
hverju, sem fullnægir félagsþörf
hennar, sem er fyrir hendi hjá
öllum, hversu hlédrægir sem þeir
kunna aö vera.
Og aö lokum; Hvers vegna
hefurðu svona Iftið álit á sál-
fræöingum? Ég held það sé alveg
óþarfi að foröast þá, þeir hafa nú
einu sinni lært heilmikið til aö fást
við vandamál af öllu mögulegu
tagi.
ÞROSKAÞJÁLFUN í DANMÖRKU
Kæri Pósturl
Við erum hér tvær vinkonur,
sem höfum áhuga á að læra
þroskaþjálfun í dönskum skóla.
Getur þú gefið okkur upplýsgingar
um góðan heimavistarskóla, sem
kennir þroskaþjálfun, og ef þú
kemst að einhverju, þá skrifa
okkur, hvaða menntun þarf og
hvað kosti. Svo að lokum viljum
viö þakka allt gott efni í Vikunni.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna.
Tvær skólalausar
Oft á ég erfitt meö að skilja, hvers
vegna ég fæ spurningar eins og
þessa frá ykkur. Til hvers heldur
fólk, að erlend sendiráö séu? Ti/
þeirra á að snúa sér með allar
spurningar varöandi viökomandi
/and, hvort sem um skólamál,
viöskipti eða atvinnumál er aö
ræöa, svo eitthvaö sé nefnt. Þið
þurfið ekkert aö vera feimnar viö
að hringja til viökomandi sendi-
ráös, eöa koma þangaö í eigin
persónu á skrifstofutíma. Kannski
eru þiö hræddar um að lenda á
dönsku fó/ki, sem þið ski/jið ekki
og það ekki ykkur, en það er
óþarfa hræðsla, þar eru Islending-
ar starfandi viö flest, ef ekki ÖH,
sendiráöin, og þiö getiö rætt þessi
mál á fslensku og fengiö góö og
gild svör við þvi, sem ykkur liggur
á hjarta.
MISSKILNINGUR LEIÐRÉTTUR
Kirkjubóli, 13. 11 1977
i ágætu viðtali við Helgu Steph-
ensen í síðasta tölublaði Vikunnar
er tvíþættur misskilningur, sem
undirritaður óskar leiðréttingar á. i
fyrsta lagi gáfu erfingjar Guð-
mundar heitins Böðvarssonar hús-
ið eftirtöldum félagasamböndum,
sem stofnuðu minningarsjóð um
húsið eftir lát hans. Aðstandendur
minningarsjóðsins og eigenaur
eru: Kvenfélagasamband Borgar-
fjarðar, Ungmennasamband
Borgarfjarðar, Búnaðarsamband
Borgarfjarðar og Rithöfundasam-
band islands. Markmið og til-
gangur sjóðsins er að gefa rithöf-
undum og öðru listafólki kost á
ódýrri dvöl í húsi sjóðsins, hvort
heldur til starfa eða hvíldar. í von
og trú á, að Vikan virði þá fornu
skyldu, að hafa heldur það, sem
sannara reynist, óska ég vinsam-
lega eftir leiöréttingu á þessu.
Virðingarfyllst,
f. h. sjóðstjórnar,
Sigurður Guðmundsson
Sápa og shampó í
sama dropa.
Doppeldusch
i steypibaðið
J.S. Helgason sf sími 37450
51.TBL. VIKAN 11
/JlJ