Vikan - 22.12.1977, Blaðsíða 43
Sólarfilrria hefur gefið út kort með jólasveinun-
um þrettán og hefur Bjarni Jónsson, listmálari,
gert myndirnar. Við rifjum hér upp kafla úr
þjóðsögum Jóns Árnasonar sem heitir:
Fjölskylda Grýlu:
,,Þess var getið að bóndi Grýlu hét Leppalúði,
hann var að öllu samboðinn henni I háttum
sínum, en ekki fullt eins skrýmslislegur ef til
vill. Þau áttu saman tuttugu börn sem þulan
segir:
Grýla var að sönnu
gömul herkerling
bæði á hún bónda
og börn tuttugu.
Eitt heitir Skreppur,
annað Leppur,
þriðji Þröstur,
Þrándur hinn fjórði,
Böðvar og Brynki
Bolli og Hnúta,
Koppur og Kyppa,
Strokkur og Strympa,
Dallurog Dáni,
Sleggja og Sláni,
Djangi og Skotta.
Ól hún í elli
eina tvíbura,
Sighvat og Syrpu,
og sofnuðu bæði.
Þau Grýla og Leppalúði áttu og fleiri börn en
þau sem hér eru talin ( þulunni, það voru piltar
þeir sem venjulega hafa verið kallaðir jóla-
sveinar. En þótt þeir séu fortakslaust kallaðir
synir Grýlu og Leppalúöa i Grýlukvæði því sem
prentað er í Snót er það sumra manna mál aö
Grýla hafi átt þá áður en hún giftist Leppalúöa,
og greinir þó ekki frá faðerni þeirra.
Jólasveinar heita svo eiginlegum nöfnum: 1.
Stekkjarstaur, 2. Giljagaur, 3. Stúfur, 4.
Þvörusleikir, 5. Pottasleikir, 6. Askasleikir, 7.
Faldafeykir, 8. Skyrgámur, 8. Bjúgnakrækir,
10. Gluggagægir, 11. Gáttaþefur, 12. Ket-
krókur og 13. Kertasníkir. En því eru þeir
þrettán að tölu að hinn fyrsti kemur þrettán
dögum fyrir jól, síðan einn á hverjum degi og
sá síðasti á aðfangadag jóla. Á jóladaginn fer
hirin fyrsti burt aftur og svo hver af öðrum, en
hinn síðasti á þrettánda dag jóla. Jólasveinar
hafa verið eins og foreldrarnir, haföir til að
hræða börn með, en einkum um jólaleytiö.
Áttu þeir þá að koma af fjöllum ofan til
mannabyggða til að fremja þá iðn er hver
þeirra tamdi sér og flest nöfn þeirra eru við
kennd, en allir voru þeir eins vísir til að taka
börn þau er hrinu mjög eða voru á annan hátt
óstýrilát.
Þó það virðist eftir áðursögðu engum efa
bundiö að jólasveinar hafi verið þrettán að tölu
hefur þó ekki öllum borið saman um það atriöi
heldur en um faðerni þeirra; segja sumir aö þeir
hafi ekki verið fleiri en níu og bera fyrir sig þulu
þessa:
„Jólaveinar einn og átta
ofan komu af fjöllunum .
i fyrrakvöld þá fór ég að hátta
þeir fundu hann Jón á Völlunum.
En Andrés stóð þar utan gátta,
þeir ætluðu að færa hann tröllunum.
En hann beiddist af þeim sátta,
óhýrustu körlunum,
og þá var hringt öllum jólabjöllunum."
KETKROKUR ’
KERTASNÍKIR
Auk tuttugu hinna fyrrtöldu barna og jólasveina
segir ein þula enn að hún eigi nítján til; þulan er
þannig:
Grýla kallará börnin sín
þegar hún fer að sjóða til jóla:
,,Komið hingað öll til mín,
Nípa, Típa,
Næja, Tæja,
Nútur, Pútur,
Nafar, Tafar,
Láni, Gráni,
Leppur, Skreppur,
Loki, Poki,
Leppatuska, Lánlgileggur
og Leiðindaskjóða,
Völustallurog Bóla."
51. TBL. VIKAN 43