Vikan - 22.12.1977, Blaðsíða 17
Ólafur sem álfakonungur. Við hlifl hans er Unnur Eyfells sem álfadrottning.
Þegar ég kem að Fossvogslæknum,
sé ég, hvar kona stendur við
vegkantinn. Hún er að berjast við
regnhlífina sína, þegar ég stansa
hjá henni. Hún segir um leið og hún
brýtur regnhlífina saman: „Mikið
ertu almennilegur að stoppa.”
Þegar hún leit upp, brá henni svo
illa, að hún rak upp vein. Síðan
áttaði hún sig og sagði: ,,Á dauða
mínum átti ég von, en ekki þessu!”
Hún hló siðan alla leiðina i bæinn.
Nú vendum við okkar kvæði í
kross og spyrjum Olaf um álfa og
álfakonunginn.
— Álfaskemmtanir hófust hér i
Reykjavík upp úr aldamótum.
Ástæðan fyrir því, að ég var beðinn
að vera álfakóngur, er líklega sú, að
meðan ég söng i útvarpið, flokkaði
ég gjarnan lögin, sem ég söng. Þeu-
á meðal hafði ég sungið þrettánda-
lög, einmitt lög, sem höfðuðu til
álfatrúar. Það var í striðslokin, sem
skátar gengust fyrir álfabrennu á
íþróttavellinum, og þá kom ég fyrst
fram ásamt stúlku, sem kölluð var
_Lyllí, en hún er dóttir Gísla Sigurðs-
sonar, sem lengi var fyrsti tenór í
Fóstbræðrum. Hann var rakari að
iðn, og það leiddist engum, sem
beið á hans rakarastofu, því
maðurinn var óvenju skemmtilegur.
Ég held, að ég hafi komið sjö
smnum fram sem álfakonungur og
síðast við opnun Þjóðhátíðarársins
1974. Þá, eins og stundum áður,
varð að fresta hátiðarhöldunum
vegna veðurs, í þetta skipti um eina
viku. Sú álfadrottning, sem einna
lengst var mín fylgikona, er Unnur
Eyfells, sem hefur átt mikinn þátt í
að hefja á ný merki islenskra
þjóðdansa.
í lokin er rétt að skýra frá því, að
á meðan þetta samtal átti sér stað,
ákvað Ölafur að koma fram um
þessi jól ó jólatrésskemmtun hjó
Flugleiðum. Hinn eini og sanni
Kertasníkir fer því aftur ó stjó um
þessi jól. I mörg ár hefur hann ekki
birst öðrum er bömunum í Lyngási.
SJ
mk
" v,- i
* ■ - x
jólaskeíd *7j
GUCtAutuf A^MAGNUSSCM
skartgripaverzlun
LAUGAVEGI 22A
51.TBL. VIKAN 17