Vikan - 22.12.1977, Blaðsíða 14
Ensk skólabörn í
heimsókn á
Islandi.
Hér elta þau
Kertasníki, sem
ætlar að bjóða
þeim góðgerðir
í Árbæ.
Kertasnikir kom
víða við meðan
hann ,.starfaði”
fyrir Flugfélag
Íslands. Hér er
hann á siglingu
fyrir framan Höfn í
Hornafirði, að
heimsækja börnin
þar.
upp í rúm á kvöldin, vorum við látin
syngja eitthvað, sem við kunnum
öll, og síðan fórum við með
bænirnar okkar.
Bemskudagarnir heima á Mos-
felli voru ákaflega ljúfir.
HVAR ER LJÖÐABRÉFIÐ FRÁ
BENEDIKT GRONDAL?_______________
— Ég fékk oft að skoða bréf hjá
pabba, sem var bundið í shirting.
Þetta var ljóðabréf frá Benedikt
Gröndal til Þorsteins Jónssonar afa
míns, sem var læknir í Vestmanna-
eyjum frá 1864, en þeir voru miklir
kunningjar. Þetta Ijóðabréf hefur
algjörlega horfið, en það var í vörslu
móður minnar eftir að hún fór frá
Mosfelli. Gils Guðmundsson hefur
ekki rekist á það, en hann safnaði
öllu, sem hann vissi að var til eftir
Benedikt.
Ég man fyrstu vísuna i þessu
ljóðabréfi, en veit samt ekki, hvort
ég fer alveg rétt með, enda hef ég
ekki séð bréfið, síðan ég var tólf ára:
Að skrifa þér doktor er skelfileg
þraut.
Ég skunda með peiinann snjóhvíta
braút,
kolsvarta stafi ég keyri á blað,
kamfórudropann ég færi mér að,
því mig vantar hressing, og mig
vantar margt,
svo mætti ég flytja þér verðskuldað
skart.
í mínum augum var þetta
ljóðabréf hrein gersemi, skreytt
fjölmörgum teikningum af allskon-
ar kynja,..yndum. Spurningin er
bara: Hvar er það niðurkomið?
Nú sleppum við löngum, og
fróðlegum kafla úr viðtalinu, og
færum okkur nær nútímanum og
spyrjum, hvernig á þvi stóð, að
Olafur gerðist jólasveinn, og hvort
hann myndi eftir einhverjum i
jólasveinagervi á hans unga aldri.
— Nei, ég mah bara eftir kortum
af Sankti Kláusi, en þegar menn
fóru að taka upp þetta gervi hér,
festist jólasveinanafnið strax við
Sankti Kláus, og hann hefur aldrei
verið kallaður annað en jólasveinn.
SÁ ALFREÐ ANDRÉSSON
FYRST I JÖLASVEINSGERVI
— Mnnstu hvenær þú sást
þesskonar jólasvein fyrst?
— Það var einhverntíma í
stríðslokin, að ég sá Alfreð heitinn
Andrésson leikara í gervi jóla-
sveinsins, eins og hann kemur fram
núna. Hann söng þá gamanvísna-
brag og var ákaflega lifandi og
fjörugur. Þá kom Jóhann risi einnig
fram á jólatrésskemmtunum og
sýndi m.a. spilagaldra, en hann
söng ekkert. Þeir fóru báðir niður á
gólf til krakkanna og hoppuðu um
með þá í halarófu á eftir sér. Úr
þessu urðu ansans mikil ærsl, því
stóru strákarnir reyndu að troða sér
sem næst jólasveininum og reyndu
jafnvel að toga í skegg hans og
húfu, en það gátu þeir reyndar ekki,
þegar Jóhann átti í hlut. Aftur á
móti urðu litlu krakkarnir utan-
gátta og jafnvel logandi hrædd.
Þegar við fórum fyrst með litlu
krakkana okkar á þessar skemman-
ir, urðu þau bara hrædd, og þá
skildi ég, að þetta var ekki rétta
leiðin.
— Ég kom fyrst fram á
jólatrésskemmtun á Brúarlandi.og
var vinur minn Sigfús Halldórsson
tónskáld undirleikari. Ég átti þá
forláta jólasveinsskegg, sem ég
hafði keypt í ameríkuför Karlakórs
Reykjavíkur, en annað gervi var
heimatilbúið. Næst gerist það, að
Alfreið kom að máli við mig og bað
mig að hlaupa í skarðið fyrir sig, því
hann væri orðinn þreyttur á þessu.
Ég kom fram í hans stað í
Sjálfstæðishúsinu, en sagði við
ráðamenn þar, að ég vildi ekki fara
niður á gólf, vildi forðast þessi
miklu ærsl. Þeir tóku því vel. Ég
valdi lög, sem höfðaði til þeirra allra
yngstu, og fann fljótt, að því
einfaldari, sem lögin voru, því meiri
þátt tóku allir krakkarnir i þessu
með mér. Þama þöndu þau sig, eins
og þau gátu, til að láta mig heyra,
hvað þau væru nú dugleg að hjálpa
mér! Þetta form hafði semsagt
blessast og létti mikið undir hjá
mér, þegar ég síðar meir varð
kannski að mæta á þremur til
fjórum stöðum sama kvöldið, sem
var hreint út sagt bölvað púl.
SKRÝTIÐ LJÓS Á KERTI
— Ég tók upp á því að kalla mig
Kertasníki og sagði við þá, sem
stóðu fyrir skemmtununum, að þeir
yrðu að hafa einhvers staðar hrúgu
af kertum, sem þeir afhentu litlu
börnunum, þannig að þau gætu rétt
mér kerti. Svo spurði ég þau, hvort
þau vissu, hvað ég héti, og þá vissu
einhverjir krakkar það. Þá spurði
ég: „Eigið þið kannski kerti að gefa
mér?” Þá voru allar hendur á lofti,
og um leið og þau réttu mér kertið,
fengu þau að sjá framan í mig, og ég
náði að brosa til þeirra og segja
nokkur orð við þau: „Mikið ertu
falleg, mikið ertu fín, en hvað þú ert
orðinn sterkur,” og fleira í þeim
dúr. Þá fann ég, að þau voru farin
að hlusta, og ég spurði þá gjarnan:
„Hvað eru nú mörg hér, sem eru
orðin þriggja ára? Viljiði rétta upp
hendurnar?” Jú, margar hendur á
lofti. Þá sagði ég: „Þið stóru
krakkarnir og ég ættum nú að
hjálpa litlu krökkunum að syngja”.
Þá voru allir orðnir þátttakendur.
Svo fann ég kannski upp á að segja:
„Þegar ég er nú kominn í höllina
mína upp í Esju, þar sem eru stórir
gluggar — Hvaða efni haldið þið, að
séu í gluggatjöldunum? Jú, ís og
snjór. En samt sagðist ég nú sjá út
um þennan glugga ansi mikið. En
það er annað — nú eruð þið öll búin
að gefa mér kerti, og þegar ég kem
nú aftur í höllina mina, þá raða ég
upp kertunum ykkar.'Svo skrifa ég
við hvert kerti nafn þess, sem
14 VIKAN 51. TBL.