Vikan - 05.01.1978, Síða 7
iúklingar og tókavín
svínahausum. Þetta reyndist allt
annar og betri matur en hin
gamalkunna sviðasulta.
Síðan skildu leiðir. Einn borð-
gesta fékk sér saxað gaesabrjóst
að nafni „Vagdalt Libamell Sól-
ettel." Annar fékk sér kjúklinga í
pönnukökum í paprikusósu, og
hét sá réttur ,,Csirke Palacsinta."
Sá þriðji fékk sér hænsnakjöt j
sósu úr sýrðum rjóma, papriku og
einhverju fleiru, og með linum
hveitiflögum. Hét sá réttur
,,Csirke Paprikás & Galuska."
Allt var þetta frábært að mati
þremenninganna, sem fengu að
smakka hver hjá öðrum, svo sem
sjálfsagt er að gera, þegar menn
kanna ókunnar slóðir. Með var
drukkin flaska af hvítvíni, „Debröi
Hárslevelu" frá árinu 1973.
Þetta var sætt, vel ilmandi, fölt
og milt hvítvín, greinilega í háum
gæðaflokki. Nafnið stafar af því að
vínberjategundin heitir „Hárslev-
elu" og vínakrasvæðið „Debrö."
Nær svæðið yfir þorpin Aldebro,
Feldebro og Verpelét í fjöllunum
norður við landamæri Tékkó-
slóvakíu.
Enn skiptust leiðir í eftirrétt-
unum. Einn fékk sér „Turos
Palacsinta," sem reyndust vera
ostapönnukökur með sítrónu-
bragði. Hinir tveir fengu sér
frægan ungverskan rétt, „Dobos
Torta." Það er tíu-fimmtán laga
terta, þar sem skiptist á krem og
súkkulaði, en efst trónir kara-
melluskorpa.
SÉRSTÆTT VÍN OG
SÖGUFRÆGT
Með eftirréttunum fengu menn
sér að sjálfsögðu glas af sætustu
og frægustu útgáfu Tokaji víns,
sem er hið sögufræga „Aszú 5
Puttonyok." Þetta vín er afar
sérstætt, búið til á svipaðan hátt
og hið þýska „Trochenbeeren-
auslese."
Aszú er búið til úr vínberjateg-
und, sem kallast „Furmint." Það
er aðeins framleitt í hraunhæðum,
þar sem heitir Tokaji í norð-
austurhorni Ungverjalands, rétt
við landamæri Sovétríkjanna.
Furmint-berin eru látin rotna á
sykurmagns. Ur þessu verður
sterkt og vel ilmandi vín með
óljósu karamellubragði, er minnir
á Madeira. Á að sjá er vínið
silkimjúkt og sterklega gullið.
Hér heima fæst Szamorodni,
sem er venjulegur Tokaji eða
tókavín. Ef hann er blandaður
einum fimmta af Aszú, kallast
vínið „Aszú 1 Puttonyok." „Aszú
5 Puttonyok" þýðir þá, að allir
fimm hlutarnir eru Aszú, en
enginn Szamorodni.
Glasið af þessu einstæða eftir-
réttarvíni kostaði ekki nema 75
pence eða 290 krónur.
Hin frábæra matarveisla á Gay
Hussar kostaði þremenningana
ekki nema 22 pund alls að þjórfé
meðtöldu eða 2830 krónur á
hvern. Allir hurfu þeir á brott sælir
og glaðir með því hugarfari, að
aftur yrðu þeir að heimsækja
Victor Sassie á Gay Hussar.
í þessari heimsreisu í West-
minster verður næst staldrað við á
franska staðnum „le Chef," og
segir frá þeirri veislu í næsta
tölublaði Vikunnar.
(Gay Hussar, 2 Greek Street, W 1,
sími 437-0973.
Aðrir ungverskir staðir ekki langt
frá Oxford Street eru Le Mignon,
2 Queensway, W 2, sími 229-0093
og Csarda, 72 Charlotte Street, W
1, sími 580-7719.)
Jónas Kristjánsson.
Ungverjaland íLondon
runnunum, þannig að vökvinn
sígur úr þeim, en sykurinn verður
eftir. Vínið úr berjunum gerjast
ákaflega hægt vegna hins mikla
Umhverfisjörðina ífjórtán veislum 1.
1. TBL. VIKAN 7