Vikan - 05.01.1978, Page 11
aldri, en börn undir 12 ára aidri
mega vera úti tii klukkan átta á
kvöldin. Annars er það ekki lög-
reglunnar að setja lög, heldur
aðeins sjá þeir til þess, að settum
lögum sé framfy/gt. Persónulega
finnst mér krakkar á þessum aidri
ekkert hafa að gera úti seint á
kvöldin, þið eigið flest að vakna í
skólann næsta dag, og svo vill
þessi aldur vera svolítið gjarn á að
halda vöku fyrir heilu hverfunum
með látum. Er svona fjarskalega
erfitt að bíða eftir að verða stór?
Ljónsstelpa og nautsstrákur eiga
ekki vel saman, /jónsstelpan er
alltof ráðrík fyrir hann.
ÁSTFANGNAR AF ÚTLENDING-
UM
Heillaði Póstur!
Við vonumst til að þú getir
svarað þessum spurningum okk-
ar. Okkur líður hreint og beint
hærðilega út af þessum atburð-
um, sem hér á eftir koma. Þannig
stendur á, að við tvær vinkon-
urnar fórum í utanlandsferð í
sumar og kynntumst tveimur
sætustu, myndarlegustu og
skemmtilegustu strákum veraldar.
Við vorum með strákunum dag-
lega og allt í fína. Jæja, svo rann
dagurinn upp, og við þurftum að
halda heim á leið. Og nú sitjum við
hérna heima og hugsum um
gamlar minningar um elskhuga
okkar. Við höldum þetta bara ekki
út lengur. Elsku, besti Póstur,
hvað eigum við að gera? Við erum
algjörlega peningalausar og erum í
skóla. Svo vinnum við auðvitað á
sumrin, og foreldrar okkar ætla
ekki áðtaka í mál, að við förum út
aftur næsta sumar og eyðum
peningum í það, því við verðum
að hafa vasapeninga yfir veturinn.
Svo tala ég nú ekki um, að við
þurfum að kaupa allar námsbækur
sjálfar. Þetta eru nú meiri vand-
ræðin. Við munum ekki lifa þetta
af. Hvernig eigum við að snúa
okkur í þessu? Svo í restina:
Hvernig passa saman hrútur (kvk)
og dreki (kk) og steingeit (kvk) og
Ijón (kk)? Hvað lestu úr skriftinni,
og hvað heldur þú, að ég sé
gömul? Við vonumst eftir, að þú
sért svo hjartagóður að svara
þessum spurningum okkar. Þökk-
um fyrirfram birtingu.
Tvær að drepast úr leiðindum.
Ég vona, að þið séuð enn Hfandi,
þegar þetta svar kemur! Hafiö þið
ekki heimilisföng þessara skemmti-
legustu, myndarlegustu og sæt-
ustu stráka veraldar? Ef svo er, þá
skuluð þið bara skrifa þeim eitt
bréf á dag, og þá læknast
hjartasorgin, þ.e.a.s. ef þeir svara
þá bréfunum! Annars eru þeir nú
heldur fljótir að gleyma í útlönd-
unum, svo það borgar sig ekkert
að verða of ástfangin af manni
einhvers staðar úti á Spáni eða
annars staðar. Hafið þið ekki tekið
eftir því, hvað strákarnir hérna
heima eru sætir, myndarlegir,
skemmtilegir og gáfaðir i þokka-
bót? Það er miklu sniðugra að
finna sér ,,einn að heiman," þið
bæði sparið peninga á því og
losnið þar að auki við að tala upp
úr orðabók! Svo er líka skynsam-
legra að láta menntunina ganga
fyrir svona sumarást, þið hafið
nægan tíma til að fara aftur út
seinna. Hrútur og dreki eiga ekki
vel saman, sambúð þeirra verður
stormasöm, þvi þau eiga bæði
erfitt með að s/á af kröfunum.
Steingeitarstelpan verður yfir sig
hrifin af Ijónsstráknum, og hann
tekur fram öllu, sem hún hefur
þekkt, — en er hann sá rétti fyrir
hana? Það er stóra spurningin!
,,NÚ, ÉG HÉLT ÞÚ VÆRIR
ÖÐRUVÍSI"
Kæri Póstur!
Þakka þér alla skemmtunina. Ég
hef skrifað þér tvisvar áður, ef ekki
oftar (en sendi bréfin reyndar
aldrei). Þessi bréf, sem hafa verið
allof löng, hafa aðallega fjallað
um, hvers vegna í ósköpunum
fólk skrifaði bréf, eins og þau sem
byrja: ,,Ég er svo hrifin af strák...
ég hef tvisvar hleypt honum upp á
mig... hvernig get ég komist að
því, hvað hann heitir?" Þrátt fyrir
allt er þetta stórskemmtilegt
lesefni, og núna hef ég komist að
því, að mig dauðlangar að senda
eitt álíka til þín Póstur góður, og
vita, hvernig þú, sem ættir að vera
góður mannþekkjari, lítur á málin.
Ég, eins og flestar stelpur á
mínum aldrei, hef verið með
mörgum strákum, og þá meina ég
eitt og eitt kvöld og síðan búið.
Aðeins einum strák hef ég verið
með í lengri tíma, þó voru það ekki
nema nokkrir mánuðir. En ég hef
alltaf sagt nei, þú vonandi veist,
hvað.ég á við. Nú er mér farið að
skiljast, að ég sé ein af örfáum,
sem flokkast undir sama hóp í
þjóðfélaginu, þ.e. hinar hafa
gengið lengra með strákum. Ég
man, hverju einn svaraði, þegar
ég sagði honum, að ég vildi það
ekki, eða: ,,Nú, ég hélt þú værir
öðruvísi," Hvaða skilning á ég að
leggja í þessi orð? Ég hef hugsað
það mikið um þetta mál, að -nú
þýðir ekki fyrir þig, Póstur góður,
að segja, að það sé misskilningur
hjá mér, þetta með stelpurnar, ég
er svo mikið inni í þessu. En það,
sem ég er að spá í, í þessu máli, er
hvernig strákarnir líta á stelpur
eins og mig. Ég vil taka það fram,
að ég vil ekki detta út úr þessum
þjóðfélagshópi, sem ég tilheyri,
þó að strákarnir hugsi kannski,
þegar þeir sjá mig: ,,Hún er
ómöguleg þessi, segir alltaf nei."
Það er ekki svo, að ég viti ekki, að
! þetta eru einmitt strákarnir, sem
ekkert er varið í, en ég nenni bara
ekki að bíða og lifa algjöru
! piparjónkulífi, þar til sá birtist
loksins, sem hugsar um annað en
þessa hliðina. Eða er þetta vitleysa
í mér, að þessi hugsun sé orðin
svona útbreidd hjá strákum? Eftir
allt þetta hrafnaspark, hvað heldur
þú þá um persónuleika minn og
aldur? Hvað segirðu um málið í
heild?
AKÓP
Þú ætlar vonandi ekki að fara að
sofa hjá einhverjum og einhverjum
til þess eins að lifa ekki einhverju
\ piparjónkuiífi. Þú sérð ekki eftir að
j hafa hagað þér eins og mann-
\ eskja, þegar sá kemur, sem
hugsar um annað en ,,þessa
hliðina. " Annars held ég, að þetta
sé ekkert orðin neitt sérstaklega
útbreidd hugsun hjá strákum, það
- er alltaf ákveðinn hluti, sem
hugsar svona — hinir eru skyn-
samari, og ég álít, að strákar beri
I alltaf meiri virðingu fyrir stúlkum,
sem hoppa ekki beint upp i rúm
með þeim. PHturinn, sem hélt þú
' værir öðruvísi, hefur ábyggilega
\ ekki meint ne/tt annað en
nákvæm/ega það, sem hann
sagði; kannski ertu bara hress og
kát, og hann hefur misskilið málið
algjörlega. Eg held, að þú sért
nokkuð ákveðin og /átir ógjarnan
stjórnast af öðrum, og þú ert
svona 16 ára.
VERÐUR AÐ LOSNA VIÐ
ANNAN ÞEIRRA
Kæri Póstur,
Hvað á ég að gera? Það er
þannig mál og vexti að ég er með
strák að sunnan og líka þar sem ég
bý en nú ætlar strákurinn sem ég
er með að koma norðjr að vinna
hér ég verð að losna við annan
þeirra hvernig fer ég að því. En ég
hef oft sagt þeim upp en ég losna
aldrey við þá. Og svo þetta
vanalega hvað lestu úr skriftini og
hvað heldurðu að ég sé gömul?
Ein klikkuð
Lesendur góðir! Þetta er bara smá
sýnishorn, hvernig bréfin, sem ég
fæ, eru skrifuð! Aldrei skrifað með
y, spurningjamerkjum s/eppt, og
allt í belg og biðu... Þú þarna
klikkaða! Hættu við þá báða!
Ekkert vera að segja þeim upp,
fyrst þeir eru svona treggáfaðir,
farðu bara ti/ Austfjarða og fáðu
þér vinnu þar. Eg /es ekkert úr
skriftinni, nema stafsetningarvill-
ur, og ég held þú sért 12 ára.
Sendum ókeypis
upplýsingabœkling
Hringió 1 síma8 2930
1. TBL. VIKAN 11