Vikan - 06.07.1978, Síða 2
27. tbl. 40. árg. 6. júlí 1978
Verö kr. 530
tiREINAR OG VIÐTÖL:
10 Vikan á neytendamarkadi: Viðtal
við Jytte Hjartarson.
12 Vikan á neytcndamarkaði: Hvað
kostar uppþvottalögurinn?
14 Sex karlar svara: Hvað er það
fyrsta. sem þú tekur eftir i fari
kvenna?
16 Matur i Kaupmannahöfn, 8. grein
Jónasar Kristjánssonar: Jacoþs
barBQ.
27 Skemmtum okkur sjálfum og von-
andi öðrum. Vikan spjallar við
hljómsveitina Melchior.
32 Það var Kjarval, sem kveikti fyrsta
neistann. Örlitill samanburður á
viðbrögðunt við sýningum Errós
fyrr ognú.
4I Poppfræðiritið: AliceCooper.
SÖGUR:
I8 Andlit án grimu. 9. hluti
framhladssögu eftir Sidney
Sheldon.
24 Framtíðarvonir. Smásaga eflir
Sallie Bingham.
36 Bláa nælan. Sögulok framhalds-
sögueftir Lois Paxton.
ÝMISLEGT:
2 Mest uni lólk.
4 Sumargetraun Vikunnar, 2. hluti.
6 Pósturinn.
38 Stjörnuspá.
43 Mig dreymdi.
44 Vikan kynnir: I Adamsklæðum.
46 Sitt litiðaf hverju.
48 Blái fuglinn.
50 Heilabrotin.
FORSÍÐAN:
Það er inikið sumar í þessari fallegu
stemmningsmynd Einars Guðmunds-
sonar. Einar er Reykvikingur, og hann
var einn þeirra fjölmörgu, sem freistuðu
gæfunnar í Ijósmyndasamkeppni
Vikunnar og Dagblaðsins á siðasta ári.
íiiejt
um
FÓLK
sönggleöi
Þeir eru fjórir, þeir eru
skeggjaðir, þeir eru frábærir... !
Það var fimmtudagskvöldið 8.
júní, sem íslendingum gafst
tækifæri til þess að sjá og hlýða
á einn vinsælasta þjóðlagaflokk í
heimi um þessar mundir.
Dubliners eru írskir, eins og
flestir vita, og það var greinilegt
að áhorfendur kunnu vel að
meta fjölbreytt lagaval þeirra,
þvi hvað eftir annað hristist
troðfullur salurinn af hlátra-
sköllum og fagnaðarlátum
áhorfenda. Og þegar írarnir
kvöddu. eftir tveggja tima söng,
þá ruku allir áhorfendur á fætur
og hylltu þá sem ákafast þannig
að þeir sluppu ekki fyrr.en þeir
höfðu flutt tvö aukalög.
Eins og áður er sagt, þá var
lagavalið einstaklega fjölbreytt,
þeir sungu irska, skoska, enska
og ástralska söngva, baráttu-
söngva, drykkjukvæði, og ástar-
vísur. En það voru þó aukalögin
tvö sem sýndu best snilli þeirra,
því þau sungu þeir algerlega án
undirleiks, þar voru það þessar
yndislega hrjúfu raddir, sem
voru aðalatriðið og áhorfendur
voru ekki sviknir.
Það má segja að um leið og
miðasala Listahátíðarinnar
opnaði varð uppselt á þessa
tónleika, og eins og gefur að
skilja, þá var það mjög litríkur
hópur sem mætti klukkan átta
til að tryggja sér sem best sæti.
Þarna mátti sjá allt frá unga-
börnum upp í fólk á gamals
aldri, unnendur klassískrar
tónlistar, popptónlistar, og jass-
tónlistar, fólk úr öllum heims-
hornum, og jafnvel írskar
nunnur, sem hér voru staddar í
heimsókn í klaustrinu í Hafnar-
firði. Við birtum hér nokkrar
myndir af gestum Laugar-
dalshallar þann 8. júní, og
þökkum jafnframt Dubliners
fyrir ógleymanlega kvöldstund.
HS
Só þeirra, sem söng flest lögin, var
t.uke Kelly, en hann stofnaði
Dubliners ásamt Barney McKenna
og Ronnie Drew.
Nýjasti liðsmaður Dubliners er Jim McCann, og syngur hann mörg
laganna bœði einn og með Luke Kelly.
"Meðal gesta á hljómleikunum voru forsetahjónin Hr. Kristján Eldjám og
frú Halldóra Eldjám. Meðlimir Dubliners kunnu greinilega að meta það og
tileinkuðu forsetanum m.a. eitt lagið „l'm a Rover." Við hiið forsetans
situr Davið Oddsson formaður Listahátíðamefndar, en við hlið forseta-
frúarinnar sjáum við hjónin Þóru Kristjánsdóttur og Svein Einarsson
Þjóðieikhússtjóra og loks Thor Vilhjálmsson rithöfund.
A Iskeggjuð