Vikan - 06.07.1978, Page 19
HLUTI
imu
gegnt skrifstofubyggingu Stevens. Á
miðvikudagskvöld, þegar einhver braust
inn í skrifstofu dr. Stevens var hann ein-
mitt að fara á vakt. Hann sá tvo men%-
fara inn i húsið. Útidyrnar voru læstar,
og þeir opnuðu með lykli. Hann hélt að
þeir ynnu þarna.”
„Bar hann kennsl á þá?”
„Hann beriti á mynd af Angeli.”
„Angeli átti að vera með flensu og
rúmliggjandi á miðvikudaginn.”
„Einmitt.”
„Hvað með hinn manmnn?”
„Varðmaðurinn sá hann ekki greini-
lega.”
Símsvari stakk í samband hjá einu af
óteljandi rauðu Ijósunum. sem blikkuðu
á skiptiborðinu, og snéri sér að Bertelli.
„Til þín, varðstjóri. Vegalögreglan í
New Jersey.”
Bertelli greip símtól. „Bertelli hér."
Hann lagði við hlustir um stund. „Ertu
viss?... Gott! Sendu þangað alla bíla,
sem hægt er. Setjið upp vegartálma. Ég
vil að þessa svæðis verði fullkomlega
gætt. Láttu mig vita .. . Takk.” Hann
lagði á og snéri sér að mönnunum tveim.
„Við virðumst hafa haft heppnina með
okkur þarna. Vegalögregla í New Jersey
sá bíl Angelis á hliðarvegi nálægt
Orangeburg. Þeir eru að fínkemba svæð-
ið núna.”
„Dr. Stevens?”
„Hann var í bilnum með Angeli. Á
lífi. Hafðu engar áhyggjur. Þeir finna
þá.”
McGreavy dró upp tvo vindla. Hann
bauð Sullivan annan, en hann afþakk-
aði. McGreavy rétti Bertelli annan vind-
ilinn og stakk hinum uppí sig. „Það er
eitt, sem vinnur með okkur. Dr. Stevens
er ekki feigur.” Hann kveikti á eldspýtu
og kveikti í vindlunum tveim. „Ég talaði
við vin hans áðan — Dr. Peter Hadley.
Dr. Hadley sagði mér að hann hafi farið
til að sækja Stevens á skrifstofuna fyrir
nokkrum dögum síðan, og komið að
Angeli þar, með byssu í hendinni. Ang-
eli sagði einhverja þvælu þess efnis, að
hann hefði haldið að þetta væri inn-
þrotsþjófur. Ég held, að koma dr. Had-
leys hafi bjargað lífi Stevens."
„Hvernig komust þið fyrst á slóð Ang-
elis?” spurði Sullivan.
„Það byrjað með nokkrum ábending-
um um að hann væri að hræða kaup-
menn,” sagði McGreavy. „Þegar ég fór
til að tala við þá, þá vildu þeir ekkert
segja. Þeir voru hræddir, en ég vissi ekki
við hvað. Ég nefndi þetta ekki við Ang-
eli. Ég fór bara að fylgjast með ferðum
hans. Þegar Hanson morðið átti sér stað,
þá kom Angeli og spurði, hvort hann
mætti vinna með mér að málinu. Hann
kom með einhverja þvælu um það, að
hann dáði mig svo mikið og að hann
hefði alltaf langað til að verða félagi
minn. Ég vissi, að honum gekk eitthvað
til. svo ég sló til, eftir að Bertelli varðs-
tjóri hafði gefið samþykkti sitt. Það var
ekki að undra, að hann vildi vinna að
málinu — hann var á kafi í þvi! Um
þetta leyti var ég ekki viss um, að dr.
Stevens væri ekki viðriðinn morð Han-
sons og Carol Roberts, en ég ákvað að
nota hann til að koma Angeli í klípu. Ég
byggði upp gervimál gegn Stevens, og
sagði Angeli að ég ætlaði að koma morð-
unum á Stevens. Ég hélt, að ef Angeli
héldi að hann væri sloppinn. þá myndi
hann slaka á og verða óvarkár.”
„Gerði hann þaðekki?”
„Nei. Angeli kom mér mikið á óvart
með þvi að reyna að halda dr. Stevens
frá fangelsi."
Sullivan leit undrandi upp. „Hvers
vegna?"
„Af því að hann var að reyna að
koma honum fyrir kattarnef, og gat ekki
náð til hans, ef hann var læstur inni.”
„Þegar McGreavy jók þrýstinginn,”
sagði Bertelli, „þá kom Angeli til mín, og
gaf i skyn að McGreavy væri að reyna
að koma Stevens inn á fölskum forsend-
um.”
„Þá urðum við sannfærðir um það, að
við værum á réttri leið,” sagði
McGreavy. „Stevens réði sér einkaspæj-
ara, sem hét Norman Moody. Ég lét at-
huga Moody, og komst að þvi, að hon-
um hafði lent saman við Angeli áður,
þegar Angeli tók skjólstæðing Moodys
fastan fyrir fíknilyf. Moody sagði að
skjólstæðingur hans hefði verið hand-
tekinn á fölskum forsendum. Þegar ég
veit það, sem ég veit nú, þá held ég, að
Moody hafi haft á réttu að standa.”
„Þannig að Moody giskaði á lausn
málsins þegar í upphafi.”
„Það var nú ekki af tómri heppni.
Moody var snjall. Hann vissi, að Angeli
var að öllum likindum blandaður i mál-
ið. Þegar hann fann sprengjuna í bíl dr.
Stevens. þá snéri hann sér til FBI og bað
þá um að aðgæta hana.”
„Óttaðist hann, að Angeli myndi losa
27. TBL. VIKAN 19*