Vikan - 19.10.1978, Blaðsíða 11
Ffcinur og BJÖm R. Einarmson áaamt
betri helmingum i Þórscafó irM
1969.
Nýtrúlofufl i Allanum irifl 1959.
kjallaranum, Silfurtunglinu,
Glaumbæ og á Keflavikur-
flugvelli. Árið 1966 flytjast þau
til Akureyrar aftur, og Finnur
gengur strax inn í hljómsveit
Ingimars Eydal, sem þá og síðar
naut mikilla vinsælda og lék í
Sjálfstæðishúsinu okkar.
Helena söng aftur á móti um
eins árs skeið með hljómsveit
Páls Helgasonar á hótel K.E.A.,
en 1967 réðst hún einnig í hljóm-
sveit Ingimars Eydal, og voru
þau hjónin með henni, uns hún
var leyst upp árið 1976.
1977 er svo myndað nýtt
„band”, hljómsveit Finns Eydal,
Helena og Öli. Þessi hópur
hefur síðan skemmt gestum
Sjálfstæðishússins við góðar
undirtektir.
Á þessum 25 árum hefur
einnig verið tími til þess að leika
um 120 lög inn á hljómplötur,
vera með í 15 sjónvarpsþáttum,
spila og syngja í ótal revíum og
söngleikjum hér í Sjallanum, og
á Reykjavíkurárunum var
Finnur mafl fagottifl f Brsiflfirflinga-
búflinni f Reykjavfk. Þá lók hann i
hljómsveit undir stjórn KK sjálfs.
Myndin er tekin irifl 1958.
Austurbæjarbfói. Þar lók Atlantic-
kvartett og söngkonan Helena
Eyjólfsdóttir.
Finnur með Haraldi Á.
Sigurðssyni í revíum og einnig í
Járnhausnum í Þjóðleikhúsinu.
Svona mætti lengi telja, því ótal
mörgum hefir verið veitt aðstoð
við hljómplötugerð, og nú síðast
var leikið undir á nýjustu plötu
Óðins Valdimarssonar.
ABar myndirnar eru úr einkasafni
„Lady be good" í SjaHanum mefl
hljómsveit Ingimars Eydal árifl 1968.
Svo hefir verið tími til þess að
skreppa út yfir pollinn oftar en
einu sinni. Það hefur verið spilað
og sungið á Mallorca, í
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi
og í Luxemburg. Þrisvar var
farið utan til þess að skemmta
gestum næturklúbbsins Jack el
Negro og í grísaveislum Sunnu á
Mallorca.
Enn er ótalinn Jazzkvartett
Ingimars Eydal, þar leikur
Finnur í fullri alvöru, þó hljóm-
sveitin hafi sennilega verið
mynduð til dægrastyttingar.
Helena er fædd 23. janúar
1942, Reykvíkingur, dóttir
Laufeyjar Árnadóttur og
Eyjólfs Steinssonar, en Finnur
er Akureyringur fæddur 25.
mars 1940 sonur Pálínu og
Harðar Eydal.
Finnur er vel skólaður tón-
þoirra Finns og Helenu nema nýjasta
myndin af þeim hjónum, sem Fax
tók núna fyrir skömmu.
Tónlistarskóla Akureyrar í 5
vetur og Tónlistarskóla Reykja-
víkur í tvo vetur. Seinna var
hann kennari einn vetur við
Tónlistarskóla Akureyrar.
Finnur á ekki langt að sækja
tónlistina, því móðurafi og
móðurbræður voru frægir
harmonikkujuðarar á Fáskrúðs-
firði.
Föðursystir Finns er Þyri
Eydal, þekktur tónlistarkennari
hér á Akureyri.
Helena hóf klassískt söngnám
11 ára gömul og lærði meðal
annars hjá Guörúnu Pálsdóttur,
Reykjavík. Seinna nam hún svo
tónfræði í tvo vetur í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Það er
eins með hana, að hún er af
músikölsku fólki komin, og það
má geta þess til gamans, að
Björn Björnsson, sem var með
Savannatríóinu, Einar Júlíusson
í Pónik, Keflavík, og Helena eru
systkinabörn.
Þegar Helena og Finnur eru
ekki uppi á hljómsveitarpalli, þá
vinnur Helena hjá MIFA-tón-
böndum, en Finnur sníður tísku-
fatnað úr skinni hjá fata-
verksmiðjunni HEKLU.
Ég læt svo þessu spjalli lokið
með því að óska þeim hjónum
góðs gengis og þakka þeim fyrir
25 ára góða skemmtun.
Fax
listarmaður. Hann hóf píanó-
nám, þegar hann var 7 ára, en 11
ára fór hann aö fikta við klari-
nettið. Hann nam við
42. TBL. VIKAN 11