Vikan - 25.01.1979, Blaðsíða 13
að ég hafi þurft að fylla blað vikulega.
Maður hefur alltaf eitthvað i bakhöndinni
og í versta falli getur maður þá rifist út af
pólitík, ríkisstjórninni, bönkunum eða bara
einhverju.
Fyrst eftir að ég byrjaði tók ég eftir að
fólk varaði sig á mér. Það gat átt von á því
að eitthvað yrði prentað af því sem það
sagði. En þetta var aðeins fyrst og ég hef
gætt mín á því að hafa aldrei neitt eftir úr
einkaviðtölum við menn. Þ.e.a.s. að Jóna
hafi haldið við Pál og Maggi hafi sést með
Gullu og þess háttar sögur. Slíkt hef ég
alltaf leitt hjá mér og reynt að vera ekki
með neitt slúður. Annað sem ég hef leitt
hjá mér er flokkspólitísk starfsemi. Ég hef
að vísu alltaf fylgt íhaldinu og ekkert hlotið
nema illt af því, aldrei fengið neitt og aldrei
farið fram á neitt. Að vísu er þetta ekki
alveg rétt því ég gekk í Heimdall fyrir 31 ári
til þess eins að komast á ball í Sigtúni.
Þriggja síðna sakavottorð
— Jú, það hefur ansi oft verið höfðað
mál gegn mér. Ég skal segja þér það að
sakavottorðið mitt er upp á 3 blaðsíður og
ég hef ekki framið einn einasta glæp svo
mér sé kunnugt um. Hver ein og einasta
málshöfðun gegn mér er skilmerkilega
skráð í sakavottorðið og ég vil taka það
fram að hvert einasta atriði á þessum 3
síðum er vegna meiðyrða. Ég vakti mikla
eftirtekt þegar ég lét endurnýja öku-
skírteinið mitt síðast og mætti á skrifstof-
una með þriggja síðna sakavottorð. Fólk
sneri sér við og hefur líkast til hugsað með
sér — hvaða glæpamaður er þetta eigin-
lega. Þetta eru tugir mála sem þarna eru
skráð og þetta hefur vissulega verið mér
dýrt. Sumir hafa farið fram á helvíti miklar
summur, eins og Vilhjálmur Þór sem vildi
fá 250 þúsund krónur einhvern tima á
sjötta áratugnum vegna þess að hann vildi
meina að ég hefði skemmt fyrir lánamögu-
leikum Sambandsins (hlær voðalega). Það
kjánalegasta sem ég hef verið dæmdur fyrir
var þegar lögreglustjórinn í Reykjavík fékk
mig dæmdan fyrir að segja að lögreglan
væri helsta almannahættan. Þetta var
1949, þegar íslendingar gengu í NATO. Þá
leyfðu Sigurjón lögreglustjóri, Ólafur
flokksformaður og fleiri sér að stefna
lögreglu og „varnarliði” niður á Austurvöll
þar sem fyrirfram var vitað að yrði
bardagasvæði. Það fór sem fór, og ég var
sektaður fyrir að benda á þessa einföldu
staðreynd. Og ekki var það gáfulegra þegar
ég var sektaður fyrir um það bil 500.000
krónur á núverandi gengi fyrir að segja að
verk Kristmanns Guðmundssonar væru
ótuaega léleg.
— Nei, mér finnst æra mín ekki hafa
beðið neinn hnekki þrátt fyrir alla þessa
dóma, því þetta eru allt meiðyrðadómar, og
meiðyrðalöggjöfin hérlendis er svo
barnaleg að það tekur engu tali. Það er svo
mikið fals og yfirdrepsskapur í þessu öllu.
Þótt þú sjáir mann bókstaflega stela,
hvort sem það er úr búð eða á einhvern
annan hátt, og þú segir að þetta sé þjófur,
þá getur það varðað við meiðyrðalöggjöf-
ina. Svo ég nú ekki tali um að maður leiði
að því getum að einhver sé þjófur — það er
alveg stórhættulegt. En ég vil taka það
fram að ég er langt frá því að vera saklaus,
— ég er enginn engill.
Síðdegisblaðamennskan best
— Mér finnst blaðamennska á íslandi í
dag alveg ágæt, og siðdegisblöðin þykja
mér best. Þá er ég bæði að tala um umbrot
og blaðamennsku yfirleitt. Mér líkar ekki
þetta þétta form sem er t.d. á Morgun-
blaðinu. Það er eins og þeir haldi að þeir séu
Times of London eða New York Times —
að geta ekki skutlað neinu á forsíðuna
nema erlendum fréttum sama hvað kemur
upp. Það er einna helst ef forsetinn deyr, þá
er möguleiki að það komi á forsiðu. Ég
4-tbl. Vlkan 13